Náttúrufræðingurinn - 1960, Blaðsíða 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
203
1. mynd. Útsýn frá Snæbýli til suðurs, Mosabóls- og Stóruskriðuhamrar. Brotin
tvö í þverskurði Stóruskriðuhamra sjást greinilega, þar sem þeir bera við
liiminn. — A view from Snœbýli looking south toward the cliffs Mosabóls- and
Stóruskriðuhamrar. The two angles in the profile of Stóruskriðuhamrar are
clearly seen as they stand out against the sky.
Ljósmynd: Haukur Tómasson.
þetta svæði sem tilheyrandi eldri hluta móbergsmyndunarinnar
(1956, bls. 115).
Jökulruðningur finnst varla nokkurs staðar á yfirborðinu austan
lieiðar. Upp á heiði er aftur á móti lag af jökulruðningi ofan á
móberginu. í lægðum, sérstaklega austan til, er jökulruðningur-
inn oft hulinn jarðvegi og kemur þar ekki í ljós annars staðar en
í skomingum. Upp á háheiði og vestan til er jökulruðningurinn
aftur á móti ríkjandi í yfirborðinu.
Austan heiðar. í skorningum, sem nokkrir lækir hafa grafið
strax áður en þeir renna út á Aura, hef ég séð eftirfarandi lag-
skiptingu: neðst skiptist þama á gróf, illa aðgreind möl og sand-
linsur. Öll er lagskiptingin óskýr og hallandi. Steinamir virðast
töluvert núnir. Ofan á þessu liggja svo lárétt lög af sandi og leir,
mjög dökk að lit; verða lög þessi því fínkornóttari, sem ofar dreg-
ur. Þessi dökki sandur og leir er nú harðnaður í stein.
Við Hafursártanga (þar sem Hafursá rennur í Tungufljót) fann
ég eftirfarandi lagskiptingu: neðst móberg, þar ofan á töluvert