Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1960, Page 55

Náttúrufræðingurinn - 1960, Page 55
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN 221 verið að minnsta kosti 1500 m þykkur á ísaskilum. En Guðmundur Kjartansson hefur leitt að því sterkar líkur, að ísaskil hafi legið frá Mýrdalsjökli yfir í Vatnajökul vestanverðan, — þar hafi ísaldar- jökullinn verið þykkastur. Sig undan jökulfargi. Því hef ég rætt um þykkt ísaldarjökulsins, að ég ætla að teikna líkan (model) (mynd 8) af honum og nota síðan líkanið til þess að reikna út landsig í Skaftártungu undan jökulfarginu eftir aðferð, sem Trausti Einarsson hefur kynnt í Jökli (1953). Það skal tekið fram, að það eina, sem ég hef við að styðjast, eru hugleiðingar mínar hér að framan og grein Guðmund- ar Kjartanssonar: Fróðlegar jökulrákir. Línurnar þrjár eiga þá að merkja 1500, 1000, 500 m þykkt og reikna ég með, að jökullinn liafi endað á 100 m dýptarlínu í haf- inu og haft þar 100 m þykkt. 100 m línan er ekki teiknuð á kortið. Það skal ennþá einu sinni tekið fram, að þetta er líkan til þess eins að nota sem undirstöðu undir þessa reikninga og ber ekki að skoðast sem tilraun að „rekonstruera" ísaldarjökulinn. Ég gerði einn reikning, þar sem ég reiknaði með 20 km þykkt hinnar stífu jarðskorpu — fékk ég þar úr 265 m sig í innri hluta Skaftártungu — og tvo reikninga með jarðskorpuþykkt 10 km og fékk þar fyrir Inntungu 330 m og Framtungu 265 m sig. Óneitan- lega virðast gildin fyrir 10 km jarðskorpn betur geta skýrt sjávar- mörkin, og finnst mér þó, að 65 m fyrir ris landsins áður en strand- línan myndaðist og hækkun í heimshöfunum eftir að hún mynd- aðist, séu í minnsta lagi. Nú í sumar voru gerðar mælingar á þykkt jarðskorpunnnar á íslandi og virðast bráðabirgðaniðurstöður þeirra mælinga benda til, að jarðskorpan sé eitthvað þykkari en 10 km. Er þá augljóst, að annað tveggja eða hvort tveggja kemur til, ef sig vegna jökulfargs á að liafa valdið myndun brimklifanna í Tungunni, annaðhvort hef ég áætlað þykkt ísaldarjökulsins of litla, eða þá að formúla Trausta gildir ekki fullkomlega. í reikn- ingum Trausta er gert ráð fyrir, að jarðskorpan verki sem öll nokkurn veginn jafn sterk. En varla er nein ástæða til að ætla, að jarðskorpan á íslandi geri það yfirleitt, því hún er full af sprung- um og jarðeldabeltum, sem h.ljóta að hafa minni styrkleika en jarðskorpan þar á milli. Eitt slíkt jarðeldabelti liggur skammt norðan við Skaftártungu. Þykir mér ekki ótrúlegt, að þetta veik- leikabelti í jarðskorpunni hafi getað verkað eins og hjaraliður og

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.