Náttúrufræðingurinn - 1936, Blaðsíða 54
48 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillilliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiilii
höfundur bréfsins, að það sé af völdum fugla. Bendir hann á, að
nokkuð muni vera af marhálmi innst í Gilsfirði.
Frá Hjörsey kemur sú fregn, að úti fyrir Mýrum sé nú eng-
an marhálm að fá né finna. Bréfritari segir, að áður fyrr, frá
um 1880 og þangað til frostaveturinn 1917—1918, hafi verið
mikill gróður af marhálmi á leirum í víkum og vogum, og til mik-
illa þarfa fyrir pening. Hafi þá gæsir etið hann mjög. Frosta-
veturinn hafi hann eyðst, og gæsirnar þá farið að leggjast á ný-
græðinginn á túnunum, og nú séu þær hættar að standa við til
þess að leita sér fæðu á ferðum sínum til varpstöðvanna í apríl—
maí á vorin. Seinna var marhálmurinn byrjaður að vaxa upp að
nýju, en þá segir bréfritarinn að álftir hafi eytt honum, svo að
nú sé hann horfinn aftur. Eg fyrir mitt leyti er nú ekki trúaður
á að þetta sé rétt, en mér finnst þetta benda í þá átt, að því miður
höfum við ekki farið varhluta af pestinni, og hafi hún þá valdið
síðara hvarfinu, og um þetta ber bréfið frá Langey einnig vott.
Frá Hoftúnum er skrifað, að mikill marhálmur hafi verið
fyrir nokkrum árum í Nesvogi, Vigrafirði, Álftafirði og Hof-
staðavogi, en nú sé hann horfinn, og bendir það einnig í þá átt,
að pestin hafi komizt hingað til Islands.
Frá Skarfsstöðum er skrifað, að þar reki mikið af marhálmi
upp á sanda, en vegna þess, að hann hefir aldrei verið hirtur þar,
getur höfundur bréfsins ekki gefið upplýsingar um, hvort það
myndi borga sig að hirða hann.
Frá Eyvindarstöðum er skrifað, að í löndum margra bæja,
sem þar eru nærri, sé mikill marhálmur, og er gert ráð fyrir, að
þar myndi mega safna að minnsta kosti um 100 hestum á ári.
Loks er skrifað frá Króksfjarðarnesi, að þar sjáist ekki nokk-
urt strá af marhálmi, hann hafi alveg horfið fyrir um þremur
árum.
7. Kostnaðarhliðin.
Þá hafa einnig borizt upplýsingar um það, hvað það myndi
kosta að vinna marhálm, reyndar aðeins frá tveimur stöðum. Frá
öðrum staðnum er skrifað, að þar hafi gamall maður safnað mar-
hálmi og selt hann um aldamótin síðustu, fengið eina krónu fyrir
sátuna, og haft góðar tekjur af. Hinn gerir ráð fyrir, að það
myndi borga sig að vinna marhálm fyrir um 40 kr. smálestina.
Þetta félag, sem eg hefi minnzt á fyrr, sem vill kaupa marhálm,
vill gefa um 100 kr. fyrir hann, kominn til Kaupmannahafnar.