Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1939, Qupperneq 25

Náttúrufræðingurinn - 1939, Qupperneq 25
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 183 lllfillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Rjúpnaræktun í Noregi. Fyrir rúmlega þremur árum byrjuðu Norðmenn á því að gera tilraunir með ræktun á rjúpum. Tilgangurinn með slíkri ræktun er fyrst og fremst sá, að auka rjúpnastofninn í þeim héruðum landsins, sem veiðimenn sækjast mest eftir að dvelja í, á þeim tíma ársins, sem veiði er leyfð. Sú stofnun, sem látið hefir gera tilraunirnar heitir: „Norges Jeger og Fiskerforbund“, og er aðal-umsjón rannsóknanna í höndum hr. cand. Per Höst. Þess er ekki að vænta, að búið sé að leysa öll vandkvæði, sem komið hafa í ljós við tilraunina, enda ekki við því að búast með þriggja ára starfsemi, en árangurinn má þó teljast allgóður í flestum atriðum. Síðastliðið sumar, er ég var á ferð í Noregi, var mér boðið að skoða þetta tilraunabú, en þangað er aðeins nokkurra kílómetra vegalengd frá Osló. Eg vil hér skýra nokkuð frá þessari merkilegu nýjung, en að miklu leyti styðst eg við upp- lýsingar úr skýrslu þess manns, sem stjórnar rannsóknunum. Öll árin, 1936—1939, var hafður sami fjöldi á tilraunabúinu, 18 karlfuglar og álíka margir kvenfuglar. Reynslan sýndi á fyrsta ári, að ekki var ráðlegt að hafa karl- og kvenfugla sam- an um það leyti, sem rjúpan fór að makast, illdeilur urðu þá oft, og sumir fuglanna meiddust talsvert. Var því tekið það ráð, að stía pörunum í sundur þann tíma, sem erfiðastur var, og kom þá í ljós, að eggjafjöldinn hjá hverri rjúpu hafði aukizt mjög mikið og frjóvgun eggjanna varð öruggari. Um það leyti, sem varptíminn byrjaði, var aðbúnaður rjúp- unnar hafður á tvennan hátt: 1. 12 rjúpur voru hafðar í búrum með vírnetsbotnum, og verptu þær í netið, án þess að liggja í hreiðri. Eggin voru tekin frá þeim strax eftir að þær höfðu verpt. 2. 6 rjúpur voru hafðar í þannig útbúnum búrum, að þær byggðu sjálfar hreiður sín og unguðu út eggjunum. Þær rjúpur, sem voru í búrunum með netbotnunum, vei'ptu samtals 194 eggjum, eða að meðaltali 16,2 eggjum hver rjúpa. Þrjár verptu langt fram yfir meðaltal, tvær 27 eggjum og ein 28. Þær, sem gerðu sér hreiður, verptu samtals 75 eggjum, eða að meðaltali 12,5 eggjum hver rjúpa. Meðaltal eggjafjöldans var talsvert hærra árið 1938 en tvö undanfai'in ár, en þá var það 11,6.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.