Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1939, Blaðsíða 30

Náttúrufræðingurinn - 1939, Blaðsíða 30
188 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiiiiiiiiiiiimiiiMiiiiiiiiiiiiiiiimiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiimHimimiiiiiiiiiiuiiiiimiiii! til sölu, væru falar. Einnig hefir sá sami ritað auglýsingar um rjúpnaveiði, og látið frá sér fara ýmislegt annað skemmtilegt. Væri vel, að ríkið heiðraði þennan mann á viðeigandi hátt fyrir óvenjuleg ritstörf, t. d. með ókeypis húsnæði og fæði, og hefir margur síður unnið til. Á. F. Fiðrildi. Hr. Þóroddur Guðmundsson frá Sandi sendi mér vængi af stóru fiðrildi, og gat þess til að þarna væri um erlendan flæking að ræða. Lýsir hann því þannig: „Það var allstórt fiðrildi, um 22 mm á lengd, og fannst um mánaðamótin ágúst—september (1939) í einni af norðlægustu sveitum landsins, Núpasveit í N.-Þingeyjarsýslu. Grunnlitur vængjanna var gulur, framvængirnir dökkgulir, en afturvæng- irnir ljósgulir. Á miðjum framvængjunum var svartur, nýrlaga blettur, en á faldi (afturrönd) afturvængjanna svört ræma, og sáust vængtaugarnar í gegnum hana. Kögrar vængjanna voru rauðleitir og framvængirnir mjórri en afturvængirnir. Fiðrildi þetta var hið glæsilegasta að útliti og vakti strax á sér athygli vegna sterkra lita afturvængjanna og stærðar sinnar. Það var með afbrigðum vel fleygt“. Fiðrildi þetta, sem á latínu nefnist Agrostis pronuba, er íslenzkt að ætt og uppruna, þótt stórt og lögulegt sé, en margir, sem finna það, halda að það sé útlent. Á. F.

x

Náttúrufræðingurinn

Undirtitill:
alþýðlegt fræðslurit um náttúrufræði
Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
0028-0550
Tungumál:
Árgangar:
92
Fjöldi tölublaða/hefta:
295
Skráðar greinar:
Gefið út:
1931-í dag
Myndað til:
2023
Útgáfustaðir:
Efnisorð:
Lýsing:
Náttúrufræði.
Styrktaraðili:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað: 4. Tölublað (1939)
https://timarit.is/issue/290650

Tengja á þessa síðu: 188
https://timarit.is/page/4264594

Tengja á þessa grein: Fiðrildi
https://timarit.is/gegnir/991003604909706886

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

4. Tölublað (1939)

Aðgerðir: