Náttúrufræðingurinn - 1953, Qupperneq 9
ORKIDEU-RÆKT
119
Sérkennilegt fyrir orkideumar er það, að þær hafa 3 bikarblöð,
og aðeins 3 krónublöð, en eitt þeirra er öðmvísi í laginu en hin,
mynda vör, sem venjulega er dekkri á litinn en hin blöðin.
Á öllum orkideum er fræni og stíll vaxið saman, svo að stílsúla
(columna) myndast, en frjókornin (pollen) loða saman í lítilli hirslu,
venjulega fremst eða til hliðar á súlunni.
Stundum framlengist vörin aftur á við, þannig að eins konar spori
myndast, sem myndar poka, sem hunang safnast í. Á Angraecum
sesquipedale, sem vex á Madagaskar, verður þessi spori yfir fet á
lengd, allt upp í 40 cm. Til er saga um sporann á þessari orkideu
og Charles Darwin, sem ekki má gleymast, því að hún sýnir, hve
glöggur maður Darwin hefur verið. Eins og kunnugt er, skrifaði
Darwin mjög merkilegt verk um frjóvgun orkideanna (On the ferti-
lization of Orchids). Þegar hann sá Angraecum Sesquipedale, með sín-
um feiknalanga spora, sagði hann, að á þeim slóðum, þar sem þessi
planta vex, hlyti að vera til melfluga, sem hefði svo langa tungu,
að hún næði niður í botn á sporanum. Þetta fannst mönnum býsna
fjarstætt, að til gæti verið melfluga með allt að 40 cm langri tungu.
Enginn þekkti slíkt dýr þá, og fáir trúðu því, að það gæti verið til.
En mörgum árum seinna fannst það. Darwin hafði réttilega séð, að
blómið gat ekki frjóvgazt með öðru móti en þessu.
Helztu tegundir
Af öllum þeim mikla fjölda tegunda, sem til eru af orkideum, eru
tiltölulega fáar ræktaðar sem verzlunarvara, en margar aðrar eru
mjög fallegar og eftirsóttar af þeim, sem rækta orkideur sér til
gamans. Hér verður aðeins getið helztu og þekktustu tegundanna,
aðallega þeirra, sem mest eru ræktaðar til sölu.
1. Cattleya. Þegar almenningur talar um orkideur eiga flestir
við þessa tegund. Hún er af mörgum talin fegurst allra blóma. Krónu-
blöðin geta verið hvít, bleik eða rauðbleik, en vörin sker sig venju-
lega úr með dekkri lit, oft rauð og gul eða dökkrauð-bláleit. Þessi
blóm geta orðið 10—12 cm í þvermál. Oft tindra krónublöðin eins
og þau væru samsett af örlitlum kristöllum, margir mundu segja
gimsteinum. Yfirleitt halda blómin sér lengi eftir að þau eru sprung-
in út, svo að kona, sem fær fallega Cattleyu í barminn, getur oft
notað hana meira en eitt skipti.
Þessi tegund á heima í Suður-Ameríku, aðallega í Brasilíu, Colum-
bíu og Venezuela, en einnig í Mið-Ameríku. Cattleya gigas, sem er