Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1953, Side 10

Náttúrufræðingurinn - 1953, Side 10
120 NÁTTtJRUFRÆÐINGURINN stærst af öllum, og C. Dowiana, sem er einna allra fegurst, eru báSar upprunnar frá Costa Rica. C. labiata, C. Warneri og C. Trianae, sem hafa verið einna mest eftirsóttar, vegna fegurðar, eru allar frá Bras- ilíu. C. Mendeli á heima í Columbíu og C. Mossiae og C. Gaskelliana í Venezuela. Aðrar tegundir eru minni, en líka fallegar, hver upp á sinn máta, svo sem C. Bowringeana, C. bicolor, C. citrina, C. Skin- neri„ C. Schröderae o. fl. Allar þessar tegundir eru frá hitabeltislöndum og vaxa bezt við 20—30 stiga hita á daginn og 15—20 stig að nóttunni. 2. Laelia. Þessi tegund er mjög lík Cattleya, svo að sumt, sem nú er kallað Laelia, var áður nefnt Cattleya. Það, sem skilur á milli flokkanna, er það, að Cattleyae hafa 4 pollenkorn, en Laeliae 8. Laeliae eiga aðallega heima í Brasilíu og Mexico. Þær hafa lengi verið notaðar til skrauts, og þegar Cortez réðst inn í Mexico, dáð- ust menn hans að blómaskrauti landsmanna, því að svo fagra garða höfðu þeir aldrei séð. Af lýsingum þeirra á blómunum má kenna ýmsar Laeliutegundir. Fyrst verður að telja Laelia purpurata, sem á heima í Brasiliu. Þar er hún talin drottning allra blóma. Hún er ræktuð í mörg hundr- uð afbrigðum í Brasilíu, og verður flestum að orði, er þeir sjá fallega Laelia purpurata, að fegurra blóm hafi þeir aldrei séð. Krónublöðin eru venjulega mjallahvít, vörin mjög stór, purpurarauð. Falleg L. pur- purata er svo falleg, að engin orð og engin mynd, ekki einu sinni litmynd, getur gefið þeim, sem ekki hafa séð hana, rétta hugmynd um fegurð hennar. önnur tegund, sem líka vex i Brasilíu, er L. tenebrosa, með brún- leitum blöðum og dökkrauðri vör og er blómið álíka stórt og á L. purpurata, ca. 8—10 cm í þvermál. Af mexíkönsku tegundunum má sérstaklega nefna L. majalis, L. Gouldiana, L. anceps og L. pumila. Sameiginlegt með öllum Cattleyae og Laeliae er það, að í náttúr- unni vaxa þær einlægt uppi í trjám og oft á trjástofnum, sem eru fallnir og dauðir. 1 skógunum er erfitt að ná til þeirra vegna þess, að þær sitja oft hátt uppi í trjánum, þar sem greinarnar kvíslast, og teygja sig þar upp í sólina. En trén í frumskógunum eru stór og fyrir ofan þær er venjulega mikið lauf, sem gefur þeim skugga með- an sólin er hæst á lofti. Rætur þeirra eru því ekki í neinni mold, heldur grípa þær utan rnn börk trésins og halda plöntunni þannig fastri, en margar lafa niður og út í loftið og geta orðið einn til fleiri metrar á lengd. Ræturnar eru hvítar og gljáandi, gildar eins og snæri. Að utan eru þær þaktar sérstökum vatnssólgnum frumum,

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.