Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1953, Qupperneq 11

Náttúrufræðingurinn - 1953, Qupperneq 11
ORKIDEU-RÆKT 121 sem drekka í sig raka loftsins, rétt eins og þær væru úr þerripappir. Næringu sína fá þær fyrst og fremst úr kolsýru loftsins (plantas ae- ras), en einnig úr driti fugla og dýra, sem úir af í skógunum, og berast saurindi þeirra með hinum geisimiklu rigningum, sem eru daglegt brauð í frumskógunum, þar sem apar, fiðrildi og fuglar halda sig í efsta lagi skógarins, en þaðan skolast allur úrgangur niður í neðri lögin, eða réttara sagt miðlagið, þar sem orkideurnar lifa. Við gerum okkur litla grein fyrir því, hve stórkostlegar rigningarnar eru í frumskógunum. En svo koma þurrkatímabilin og rignir ekki mán- uðum saman þann tíma, sem við köllum vetur, en þar er hann líka heitur. Þá hvíla orkideumar sig, hætta að vaxa og lifa á næringar- forða sínum, sem þær á rigningatímabiliniu hafa safnað sér. Svo þegar rigningamar hefjast á ný, vakna þær til lífsins, og áður en varir brjótast blómin alls staðar út. 3. Cypripedium (Paphiopedilum) eru allt öðmvísi útlits en þess- ar orkideur, sem nú hefur verið getið. Á þeim eru krónublöðin tvö vaxin þannig saman, að þau mynda sérkennilega vör, sem lítur út eins og framparturinn af morgunskó. Englendingar kalla þessa teg- und líka oft í daglegu tali ladyslipper. Cypripedium eiga heima í Asíu, einkum Austur-Indlandi, Burma og Indónesísku eyjunum. Þau em jarðarplöntur, vaxa í mold, eink- um mýrum og rökum jarðvegi, þar sem mikið rígnir. Mikill sægur er til af tegundum, sem ræktaðar eru af Cypripe- dium, ekki sízt vegna þess, hve tiltölulega auðvelt er að rækta þær og hve mikið þau gefa af sér af blómum, sem t. d. í Þýzkalandi og Ameríku eru mjög eftirsótt. Cyprípedium eru sennilega sú ætt orkidea, sem bezt er fallin til ræktunar í heimahúsum. Þær tegundir, sem hafa dröfnótt blöð, þurfa meiri hita en hinar, sem em með jafngrænum blöðum og dafna vel við vanalegan stofuhita, ef þess er gætt að láta plöntuna aldrei þorna upp. Með góðri ræktun stækkar plantan tiltölulega fljótt og ber mikið af mjög sérkennilegum og fallegum blómum. 4. Odontoglossum vilja sumir telja fallegasta allra orkideuteg- unda. Mörg hundruð afbrigði eru til af þessari tegund, sem á heima hátt uppi í Andesfjöllunum, í Columbia og Perú aðallega. Þar er svo kalt, að oft stappar nærri frosti á næturnar, en á daginn er hit- inn um 12—15 stig og afarmikið um þokur, rigningar og storma. Odontoglossum crispum er frægt fyrir fegurð, svo að það skákar flest- um öðrum orkideutegundum, en margar aðrar skipa þar einnig háan sess. Sem dæmi þess, hve mikils virði þessar plöntur eru á markaðin-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.