Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 33
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
153
Sigfús A. Schopka:
Ný skrápdýr (Echinoderma) af íslandsmiðum
Árið 1948 kom út í ritverkinu „The Zoology o£ Iceland“ hefti
það, sem fjallar um skrápdýrin. Telur höfundur þess dr. Hermann
Einarsson þá 86 tegundir skrápdýra þekktar með vissu innan 400
m dýptarlínunnar umhverfis ísland. Yfirlit hans byggðist annars
vegar á skráningu safneintaka hér og erlendis og hins vegar á skráð-
um heimildum um skrápdýrafundi hér við land.
Síðan ég fór að fást við fiskirannsóknir hef ég hugað talsvert
að lægri sjávardýrum, þó einkum skrápdýrum, en með tilkomu
okkar eigin rannsóknarskipa hefur öll aðstaða til slíkra athugana
batnað stórlega. Hér verður getið fjögurra nýrra tegunda skráp-
dýra, þ. e. a. s. tveggja sæstjarna (Asteroidea), einnar slöngustjörnu
('Ophiuroidea) og eins ígulkers (Echinoidea), sem öll hafa veið/t
innan 400 m dýptarlínunnar. Sitthvað fleira, sem ég hef í handrað-
anum, mun birtast í riti þessu síðar.
Á íslenzku hefur lítið verið ritað um skrápdýr annað en það,
sem stendur í dýrafræðikennslubókum skólanna og verður þess
vegna ekki hjá því kornizt að skapa nokkur nýyrði auk íslenzkra
ætta- og tegundaheita.
Jón Bogason rannsóknarmaður á Hafrannsóknastofnuninni að-
stoðaði mig talsvert við söfnunina og kann ég honum beztu þakkir
fyrir það.
Ennfremur þakka ég Sigurði Gunnarssyni rannsóknarmanni á
Hafrannsóknastofnuninni, en hann teiknaði mynd 1.
Ættbálkur:
Undirættbálkur:
Ætt:
Flokkur:
ASTEROIDEA
Phanerozonia
Valvata
Undirætt:
Ættkvísl:
Goniasteridae
Goniasterinae
Peltaster