Fréttablaðið - 19.05.2009, Page 10

Fréttablaðið - 19.05.2009, Page 10
 19. maí 2009 ÞRIÐJUDAGUR SAMFÉLAGSMÁL „Við vildum skapa vettvang þar sem allir geta komið saman og gert eitthvað sniðugt,“ sagði Hreiðar Már Árnason, einn aðstandenda nýrrar vefsíðu sem ætlað er að tengja saman ungt verk- efnalítið fólk. Hugmyndin gengur út á að ungt fólk með góðar hugmyndir geti fundið sér aðstöðu og fleira fólk sem sé tilbúið að taka þátt, sagði Hreiðar. Í því skyni hefur vefurinn frumkvaedi.is verið opnaður. Á vefnum geta einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og aðrir lagt hugmyndir í hugmyndabanka. Þar má einnig setja inn hugmyndir um aðstöðu sem nýst getur ungu fólki, til dæmis skólahúsnæði, íþróttahús eða annað húsnæði sem stendur autt yfir sumartímann, segir Sindri Snær Einarsson, annar aðstandenda verkefnisins. Samfélagið verður opið öllum, og þar verður hægt að byggja upp tengslanet, og koma sér og sínum hugmyndum á framfæri, segir Sindri. Hann segir vefinn þó alls ekki eingöngu fyrir þá sem séu með frábærar hugmyndir í kollin- um. Allir séu velkomnir og vonandi verði fjölmörg áhugaverð verkefni sem fólk geti tekið þátt í. „Þetta er til marks um hvernig við eigum að hugsa þegar illa árar,“ sagði Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra, áður en hún opnaði formlega fyrir vefinn í Hugmynda- húsinu við Granda í gærmorgun. Hún sagðist ánægð með það frum- kvæði sem aðstandendur verkefn- isins hefðu sýnt. Þeir hefðu strax lagt áherslu á að nýta frumkvæði og þekkingu ungs fólks, sem væri til fyrirmyndar. Hugmyndin að þessu verkefni kviknaði þegar ljóst var að allt stefndi í að stór hluti um þrjátíu þúsund framhaldsskólanema yrði verkefnalaus í sumar vegna erfiðs efnahagsástands, segir Hreiðar. Guðjón Már Guðjónsson hefur ásamt Hugmyndaráðuneytinu komið að verkefninu. Hann segir vefinn heppilega lausn þar sem vandinn sé ekki bundinn við ákveðið svæði, heldur sé verkefnalítið ungt fólk um allt land sem geti nýtt sér vefinn. Vefurinn geti til dæmis komið frumkvöðlum og sprota fyrir tækjum í samband við ungt fólk. Fyrirtæki geti einnig boðið nemendum starfs- þjálfun, eins og þekkist víða erlend- is. brjann@frettabladid.is Nýta frumkvæði og þekkingu ungs fólks Ungt fólk tók málin í sínar hendur þegar stefndi í fjöldaatvinnuleysi mennta- skólanema. Hefur opnað samskiptavef til að tengja saman hugmyndaríkt fólk. Er til marks um hvernig á að hugsa þegar illa árar, segir menntamálaráðherra. SINDRI SNÆR EINARSSON HREIÐAR MÁR ÁRNASON Í NOTKUN Engu var líkara en að Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefði þurft að fremja flókinn galdur til að opna vefsíðuna frumkvaedi.is í Hugmyndahúsinu við Grandagarð í gær. Raunin var þó önnur því ráðherra dugði að ýta á takka til að taka vefsíðuna í notkun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LÆRÐU HEIMA! FJARNÁM VIÐ HÁSKÓLANN Á AKUREYRI ER GÓÐUR KOSTUR ÓHÁÐ BÚSETU Kynntu þér málið nánar á www.haskolanam.is, þar má panta kynningarefni um einstakar námsgreinar Iðjuþjálfunarfræði B.S. Hjúkrunarfræði B.S. HEILBRIGÐISDEILD Kennarafræði B.Ed./ M.Ed. (veitir kennsluréttindi í leik-, grunn- og framhaldsskólum) UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 5. JÚNÍ Sjávarútvegsfræði B.S. Viðskiptafræði B.S. Engin skólagjöld, innritunargjald kr. 45 þúsund fyrir veturinn

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.