Fréttablaðið - 19.05.2009, Blaðsíða 14
14 19. maí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Húsdýragarðurinn í
Laugardal var form-
lega opnaður af
Davíð Oddssyni
borgarstjóra á þess-
um degi árið 1990.
Ákvörðun um bygg-
ingu garðsins var
tekin í borgarráði
Reykjavíkur fjórum árum fyrr en
framkvæmdir hófust árið 1989.
Á einu ári voru reist sex hús til
dýrahalds, steypt selatjörn, landslag
mótað fyrir refi, minka og hreindýr,
beitarhólf afgirt og komið upp fisk-
eldiskerjum. Auk þessa var Hafra-
felli, gömlu íbúðarhúsi Örlygs Sig-
urðssonar listmálara, breytt í skrif-
stofu og kennslusalur útbúinn úr
vinnustofu hans.
Markmið með
byggingu húsdýra-
garðsins var að
kynna borgarbú-
um íslensku hús-
dýrin, færa þá nær
íslenskum búskap-
arháttum og efla
tengsl á milli manna og dýra.
Vinsældir Húsdýragarðsins voru
miklar og því var tekin ákvörðun um
að byggja Fjölskyldugarð í næsta
nágrenni. Fyrsta skóflustungan var
tekin árið 1991 og tveimur árum
síðar var nýja svæðið formlega tekið
í notkun. Í dag eru garðarnir reknir
saman undir nafninu Fjölskyldu- og
húsdýragarðurinn.
ÞETTA GERÐIST: 19. MAÍ ÁRIÐ 1990
Húsdýragarðurinn opnaðurMALCOLM X (1925-1965) FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Framtíðin tilheyrir
þeim sem búa sig undir
hana í dag.“
Malcolm X var leiðtogi
íslamskra blökkumanna í
Bandaríkjunum. Hann var
myrtur aðeins fertugur að
aldri.
Digranesskóli heldur uppskeruhátíð í
fyrramálið í tilefni þess að þriggja ára
verkefni fjögurra evrópskra skóla er
lokið. Það nefnist Comenius – Sögur
úr Evrópu, og hefur Marjatta Ísberg
kennari haft forystu í því frá upphafi.
Þátttökulöndin eru Ísland, Finnland,
Ítalía og Portúgal. Ungverjaland var
líka með fyrsta árið en datt svo út.
„Við höfum verið að vinna með
sagnaarfinn í víðri merkingu og hægt
er að segja sögur á margan hátt, með
orðum, tónlist, söng, teikningum og
látbragði. Tilgangurinn er sá að börn-
in kynnist sínum eigin rótum og finni
hvað þau eiga sameiginlegt með öðrum
þjóðum og hvað ekki,“ segir Marjatta
og nefnir sameiginlegt viðfangsefni.
„Krakkar í hverju landi völdu eina
þjóðsögu og teiknuðu myndir við sög-
una. Sendu svo myndirnar til næsta
lands án nokkurs texta og krakkar í
móttökulandinu sömdu textann út frá
myndunum. Næsta land tók við og bjó
til brúður og setti upp í Power Point
í tölvu og fjórða landið hljóðsetti. Svo
kom sagan aftur til upprunalands-
ins. Í okkar tilfelli var sagan Trunt,
trunt og tröllin í fjöllunum notuð og
þegar hún kom til baka var hún með ít-
ölskum texta og portúgölskum brúðum.
Okkar krökkum fannst hún hálf asna-
leg þannig en við máttum engu breyta
heldur tókum upp stutt myndband með
útkomunni.“
Árstíðarsögur frá vinalöndunum
fjórum eru nýkomnar út á bók. Þær
eru myndskreyttar og textinn er bæði
á frummálinu og ensku. „Við skilum
bókinni á stafrænu formi til skólanna
þannig að ef kennarar vilja þýða text-
ann sjálfir, eða fela það eldri nemend-
um, þá geta þeir það. Þannig er hægt
að leika sér með efnið.“ Hún nefnir líka
safndisk sem verið er að gefa út með
lögum sem nemendurnir hafa æft á
þessum þremur árum. Nótnahefti með
textunum fylgir með. „Þórdís Sævars-
dóttir tónlistarkennari okkar hefur um-
sjón með því,“ tekur Marjatta fram.
Comeniusar-verkefnið var styrkt af
ESB og EES og Marjatta segir árang-
ursmælingar hafa farið fram allan tím-
ann. „Stjórnendurnir í Brussel leggja
áherslu á lifandi móðurmál hvers lands.
„Þeir átta sig líka á því að ef þeir vilja
að börn læri meira um löndin, menn-
ingu og tungumál þeirra þá er best
að virkja kennarana því þeir hafa svo
mikil áhrif. Því hafa verið gagnkvæmar
kennaraheimsóknir milli þessara
fjögurra landa síðustu þrjú ár.“
Klukkan átta og tíu í fyrramálið
verða stuttar samkomur fyrir foreldra
í sal Digranesskóla. „Tónlistarkennar-
arnir ákváðu að við lykjum þessu með
því að nemendur syngju vináttusöng á
öllum tungumálum. Svo sýnum við bók-
ina og búta af því sem við höfum sett
upp á vídeó,“ lýsir Marjatta. „En í einni
stofunni geta þeir sem hafa rýmri tíma
skoðað meira efni.“ gun@frettabladid.is
DIGRANESSKÓLI: LÝKUR ÞRIGGJA ÁRA EVRÓPUVERKEFNI MEÐ ÚTGÁFU OG SÖNG
Sagnaarfur sameinar þjóðir
timamot@frettabladid.is
ÁRSTÍÐABÓKIN SKOÐUÐ Marjatta
Ísberg kennari og nokkrir nemendur
Digranesskóla með nýju bókina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Guðmundur Ómar Jónsson
frá Grund, Ólafsvík, til heimilis að
Bjarkarhrauni 11, Borgarbyggð,
lést á gjörgæsludeild LSH í Fossvogi fimmtudaginn 14.
maí. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeir
sem vildu minnast hans er bent á VON, styrktarfélag
skjólstæðinga gjörgæsludeildar LSH í Fossvogi. Reikn.
0513 26 3174 kt. 490807 1010.
Jónína Kristjánsdóttir
Björg Guðmundsdóttir Sigurður K. Sigþórsson
Stefán Már Guðmundsson Kristín Ósk Hjartardóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
Snorri P. Snorrason
lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 16. maí.
Karólína Jónsdóttir
Snorri P. Snorrason Helga Þórarinsdóttir
Kristín Snorradóttir Magnús Eiríkur Jakobsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir og amma,
Aðalheiður Björnsdóttir
Barðastöðum 21, 112 Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
15. maí sl. Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 22. maí klukkan 13.00.
Haraldur Eðvarð Jónsson
Bjarni Ómar Haraldsson Alda Guðmundsdóttir
Jón Haraldur Haraldsson Heiða Björk Ásbjörnsdóttir
Rakel Björk Haraldsdóttir Þröstur Jóhannsson
og ömmubörnin.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Þorbirnu Jakobsdóttur
Gránufélagsgötu 22, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar Sjúkrahúss
Akureyrar fyrir góða umönnun. Guð veri með ykkur.
Marteinn Tryggvi Sigurólason
Siguróli R. Marteinsson Sigfríð Friðbergsdóttir
Marteinn Tryggvi Sigurólason
Björgvin Þór Sigurólason Anna Kristín
Sigursteinsdóttir
Eyþór Árni Sigurólason Alda Ósk Hauksdóttir
og barnabarnabarn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar elskulegs
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Ragnars Hermannssonar
frá Flatey á Skjálfanda.
Sigrún Ragnarsdóttir Gestur Gunnarsson
Helga Ragnarsdóttir Kristinn Hrólfsson
Hermann Ragnarsson Dómhildur Antonsdóttir
Erla Ragnarsdóttir Ómar Ingimundarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Matthildur Jónsdóttir
Granaskjóli 11, Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 13. maí sl., verð-
ur jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
22. maí kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á minningarsjóð Sóltúns, s. 590 6000.
Ingunn Ívarsdóttir
Valdís Ragnheiður Ívarsdóttir Viðar Stefánsson
Herdís Ívarsdóttir Ingi Þór Vigfússon
Ívar Ívarsson Árný Sigríður Jakobsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
Lovísa Ibsen
frá Súgandafirði,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði föstudaginn 15. maí.
Minningarathöfn verður í Víðistaðakirkju föstudaginn
22. maí kl. 15.00. Útförin fer fram frá Suðureyrarkirkju
laugardaginn 30. maí kl. 14.00.
Guðrún Egilsdóttir Ingólfur A. Steindórsson
barnabörn og barnabarnabörn.