Fréttablaðið - 19.05.2009, Page 30
26 19. maí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT 2. pest, 6. hvort, 8. sauða-
garnir, 9. bein, 11. komast, 12. raup,
14. land, 16. hvað, 17. sigað, 18.
heyskaparamboð, 20. golfáhald, 21.
vera til.
LÓÐRÉTT 1. erindi, 3. tveir eins, 4.
nákvæmlega, 5. skáhalli, 7. fitlari, 10.
húsfreyja, 13. dvelja, 15. yfirbragð, 16.
gap, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. kvef, 6. ef, 8. vil, 9. rif, 11.
ná, 12. skrum, 14. túnis, 16. ha, 17.
att, 18. orf, 20. tí, 21. lifa.
LÓÐRÉTT: 1. vers, 3. vv, 4. einmitt, 5.
flá, 7. fiktari, 10. frú, 13. una, 15. stíl,
16. hol, 19. ff.
„Ég hlusta aðallega á rokk og
núna er Dikta í miklu uppá-
haldi, eitt besta íslenska bandið
að mínu mati. Svo held ég mikið
upp á Muse, Placebo og Kings of
Leon, en þegar ég er í chill-skapi
þá fer Damien Rice á fóninn.“
Pattra Sriyanonge leikkona
„Við erum að fá alla Glerlykils-
kandídatana til landsins og í það
minnsta þrjár alþjóðlegar stór-
stjörnur,“ segir Ævar Örn Jóseps-
son rithöfundur.
Nú er tæpur hálfur mánuður
þar til Glerlykillinn 2009 verð-
ur afhentur en verðlaunin fyrir
besta norræna krimmann eru liður
í mikilli glæpasagnaráðstefnu sem
fram fer 29. og 30. maí í Norræna
húsinu í Reykjavík. Allir þeir
sem tilnefndir eru til verðlaun-
anna hafa boðað komu sína og auk
þeirra koma meðal annarra norski
höfundurinn Jo Nesbø, kínverski
krimmahöfundurinn Dianne Wai
Liang að ógleymdum Arnaldi Ind-
riðasyni. Hann er tilnefndur til
Glerlykilsins fyrir Íslands hönd
og er það bókin Harðskafi sem er
undir. „Arnaldur er náttúrlega í
Glerlykils pallborðinu sem okkar
kandídat,“ segir Ævar Örn sem
ber hita og þunga af skipulagn-
ingu dagskrárinnar. Dagskráin,
fyrir utan félagsfundina sjálfa,
snýst meira og minna um nor-
ræna krimmann. Á föstudeginum
er Glerlykillinn í aðalhlutverki.
Fyrst verða bækurnar kynntar,
svo verður lykillinn afhentur, og
loks setjast höfundar í pallborð,
þar sem þeir verða yfirheyrðir
vandlega um glæpi sína, auk þess
sem áheyrendum gefst kostur á
að bauna á þá spurningum úr sal.
„Á laugardeginum er boðið upp á
tvo stutta fyrirlestra um norræna
krimmann, áður en þrír heims-
þekktir krimmahöfundar verða
teknir til þriðju gráðu yfirheyrslu
um sína glæpi, og aftur fá áheyr-
endur að láta ljós sitt skína,“ segir
Ævar.
Væntanlegir eru um fjörutíu
glæpasagnahöfundar frá Evrópu,
Bandaríkjunum, Kína og Japan.
Sé litið sérstaklega til þeirra
sem tilnefndir eru til Glerlykils-
ins telst Arnaldur mesti reynslu-
boltinn en hann var fyrstur til að
vinna Glerlykilinn tvisvar og sá
eini sem hefur hlotið Glerlykil-
inn tvö ár í röð. Í fyrra var síðasta
bók Stiegs Larsson í Millenium-
trílógíunni, um ævintýri þeirra
Karls Blómquist og Lisbeth Sal-
ander, sæmd Glerlyklinum en sú
fyrsta hlaut verðlaunin árið 2006.
Lene Kaaberbøl og Agnete Friis
eru fulltrúar Dana fyrir bókina
Drengen í kufferten. Fulltrúi Finna
er Marko Kilpi fyrir bókina Jäät-
yneitä ruusuja eða Frosnar rósir.
Kilpi er tiltölulega nýr á vettvangi
glæpasagna en glæpir eru honum
ekki ókunnir því hann er lögga
sjálfur. Hinn norski Viðar Sundstøl
er handhafi Gylltu skammbyssunn-
ar í sínu heimalandi og þar með
kandídat Norðmanna til Glerlyk-
ilsins en það er bókin Drömmens
land eða Draumalandið (kunnug-
legur titill) sem lögð er fram þetta
árið. Fulltrúi Svía er blaðamaður-
inn Johan Theorin og bókin Natt-
fåk, eða Stormur að nóttu.
jakob@frettabladid.is
ÆVAR ÖRN JÓSEPSSON: ARNALDUR ER OKKAR GLERLYKILS-KANDÍDAT
Krimmafár í Reykjavík við
afhendingu Glerlykilsins
ÆVAR ÖRN JÓS-
EPSSON Ber hita
og þunga af
skipulagningu
krimmahá-
tíðar en um
fjörutíu glæpa-
sagnahöfundar
hafa boðað
komu sína, þeirra
á meðal allir sem
tilnefndir eru til
Glerlykilsins.
ARNALDUR INDRIÐASON Mestur reynslubolti meðal þeirra sem tilnefndir eru til Gler-
lykilsins sem afhentur verður eftir tæpan hálfan mánuð í Norræna húsinu. Þetta er í
annað sinn sem Glerlykillinn er afhentur á Íslandi. Fyrra skiptið var árið 2004.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Flestir Íslendingar sátu væntan-
lega límdir við sjónvarpsskjáinn
þegar Jóhanna Guðrún tróð upp
í Eurovision og söng sig inn í hug
og hjörtu velflestra Evrópubúa. Fáir
hafa þó eflaust verið í jafn góðum
félagsskap og Ísold Uggadóttir
kvikmyndaleikstjóri því hún sat á
bar í New York og horfði
á keppnina með
norska dúettinum
Bobbysocks ásamt
öðrum Norðmönn-
um. Af einhverjum
undarlegum ástæð-
um var þessi ágæti
bar í stóra eplinu sá
eini sem sýndi beint
frá keppninni.
Annars virðist þessi frábæri árangur
Jóhönnu Guðrúnar ekki vera
nein tilviljun því lagið er strax
komið í efstu sæti á niðurhals-lista
iTunes. Lagið er ofarlega
á listum í Grikklandi,
Hollandi, Austurríki,
Belgíu, Danmörku,
Finnlandi, Þýskalandi
og á Írlandi. Og
virðist Jóhanna
því eftir að eiga
annasama tíma
fram undan við
að sinna öllum
sínum aðdá-
endum í þess-
um löndum.
Annars sýndi Egill Helgason á
sér fremur óvænta hlið þegar
breskir fjölmiðlar réðust harkalega
á kjólinn sem Jóhanna klæddist
á sviðinu. Bæði Guardian og The
Telegraph létu Andersen & Lauth-
hönnunartvíeykið fá það óþvegið í
umfjöllun sinni en
tískugúrúinn Egill var
sko alls ekki á sama
máli; hann var efnis-
mikill, ólíkt flestum
öðrum kjólum í keppn-
inni, skrifar Egill
og bætir því við
að sennilega
hafi Jóhanna
verið ein af
fáum alvöru
ljóskum í
keppninni.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Það er aldrei nóg af Gauragangi,“ segir rit-
höfundurinn Ólafur Haukur Símonarson. Eins
og Fréttablaðið hefur greint frá er framleiðslu-
fyrirtækið ZikZak nú í fullum gangi að undir-
búa kvikmynd eftir hinni vinsælu unglingabók
um Orm Óðinsson og félaga. Borgarleikhúsið
stökk síðan um borð í Gauragangsskipið
fyrir helgi og tilkynnti að það hygð-
ist setja upp leikverkið. „Mér finnst
bara ánægjulegt ef menn sjá eitt-
hvað í þessu enn þann dag í dag,“
útskýrir Ólafur og viðurkennir að
þetta sé nokkuð gleðilegt fyrir sig.
„Vonandi verður þetta líka gleðilegt
fyrir aðra.“
Alls sóttust 600 börn og unglingar eftir hlut-
verkum í kvikmyndinni Gauragangi í áheyrnar-
prufum sem haldnar voru í byrjun maí á fjórum
stöðum á landinu. Gunnar Björn Guðmundsson,
leikstjóri myndarinnar, liggur nú yfir umsókn-
unum og viðurkennir að hann hafi þegar komið
auga á nokkra kandídata fyrir hlutverkin. „Ég
er hins vegar ekki reiðubúinn til að setja neina
nákvæma tímasetningu á því hvenær við til-
kynnum niðurstöðurnar, við ætlum að vanda
vel til verksins.“
Grímar Jónsson, einn framleiðanda
myndar innar, segist ekki sjá því neitt til
fyrirstöðu að leikverk og kvikmynd geti
ekki unnið saman. „Menn eiga
ekki að fá neitt ógeð af Gaura-
gangi, við höfum séð að þetta
getur heppnast vel, eins og til að
mynda Brúðguminn og Ívanov,“
segir Grímar og þvertekur fyrir
að það séu einhverjir árekstrar milli leikhúss-
ins og bíómyndarinnar. „Við vorum bara sam-
mála um að þetta væri hið besta mál. Enda held
ég að þetta verði tvennt ólíkt.“ - fgg
Aldrei nóg af Gauragangi
LÍFSEIG BÓK Gauragangur eftir
Ólaf Hauk Símonarson stenst
augljóslega tímans tönn.
600 Í ÁHEYRNARPRUFUR Fjölmörg börn og unglingar
mættu í áheyrnarprufur fyrir kvikmyndina Gauragang.
Leikstjóri hennar er Gunnar Björn Guðmundsson.
MYND/ZIKZAK
„Við stefnum á að negla klúbbana um mitt
sumarið,“ segir Ívar Örn Kolbeinsson sem
hefur stofnað hljómsveitina The Krooks
ásamt Steina úr Quarashi og systur
sinni Rebekku úr Merzedes Club.
„Ég og Rebekka erum búin að vinna
saman í dálítið langan tíma. Steini
kom fyrir mánuði síðan og þetta
einhvern veginn small saman. Við
erum komin með nánast heila
plötu og fullt „live sett“,“ segir
Ívar Örn, sem var áður meðlimur
Dr. Mister and Mr. Handsome.
Sú sveit naut mikilla vinsælda
fyrir þremur árum en eftir að
hún lagði upp laupana flutti
Ívar til Danmerkur og lét lítið
fyrir sér fara. Nokkru síðar kom
hann aftur heim og stofnaði hljóm-
sveitina The Musik Zoo en núna á
The Krooks hug hans allan. „Þetta er
eiginlega meiri danstónlist heldur en
Dr. Mister, aðeins meira fullorðins.
Það er samt ekki hægt að setja þetta
undir neinn hátt,“ segir hann.
Auk Dr. Mister hafa Quarashi og nú síðast
Merzedes Club sungið sitt síð-
asta en upp úr öskustó þeirra
rís nú The Krooks og fer hún
á stjá um miðjan júlí að sögn
Ívars. Hann segir óvíst hve-
nær nýja platan kemur út
en miðað við fyrsta lag
sveitarinnar, The Drop,
verður hún án efa uppfull
af grípandi danstón-
list. „Við erum bara
að vinna í þessu. Við
erum með þetta allt
á skurðarborðinu
ennþá,“ segir Ívar.
„Passið ykkur bara.“
- fb
The Krooks stefnir á klúbbana í sumar
ÍVAR ÖRN KOLBEINSSON Ívar Örn
hefur stofnað danssveitina The Krooks
ásamt systur sinni Rebekku og Steina
úr Quarashi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
REBEKKA Rebekka gerði
garðinn frægan með
hljómsveitinni Merzedes
Club.
STEINI Steini, fyrrum
rappari í Quarashi,
er nú meðlimur í
The Krooks.
PARKET
TILBOÐ
Strandgötu 43 | Hafnarfirði
Sími 565 5454 | www.fridaskart.is
íslensk hönnun
og handverk