Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1937, Side 13

Samvinnan - 01.01.1937, Side 13
1. HEFTI SAMVINNAN skurður. Þanuig táknaði sá hluti grísku þjóðarinnar, sem kallaði sig íóna, fegurðarhugsjón sína í bygging- arlist. Korintiski súlustíllinn er sprottinn úr hinum íón- íska og honum mjög náskyldur um allt nema skraut- ið á súluhöfðinu. Það er eftirlíking af þroskamiklu blaðskrauti, sem virðist spretta með þróttmiklu laufi út úr steinsúlunni. En þessi súlnagerð hefir ekki orð- ið jafnþýðingarmikil fyrir heimslistina eins og hinar tvær miklu grísku frummyndir í húsagerð menningar- þjóðanna. Menn vita nokkurn veginn með vissu, að hin fyrstu hof Grikkja voru úr timburbjálkum, sem báru þunga þalisins og skýldu mannfjöldanum í skrúðgöngum við helgiathafnir hofanna. Menn vita ennfremur, að endar bita og þverbjálka náðu út undan þakbrúninni. Síðan breyttist byggingarlagið, Griklcir lærðu að reisa hof sín úr steini og síðar úr marmara. Þeim óx máttur og listarþroski. Gömlu timburhofin endurfæddust í Frh. af 10. bls. í Borgarfjarðarsýslu, gekk í Hvítárbakkaskóla árin 1905 til 1907, var kennari í uppsveitum Borgarfjarðar nokkur ár, gekk í Verzlunarskóla íslands 1913—14 og 1915—16, var verzlunarmaður í Stykkishólmi eitt ár, réðst starfsmaður til Kaupfélags Borgíirðinga, Borgarnesi, 1917 og var þar, þangað til hann íluttist til Hornafjarðar seinni liluta árs 1921. Jón var for- maður kjötverðlagsnefndar fyrsta starfsár hennar. Hann var kosinn í stjórn Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga árið 1936. Jón er giftur Guðríði Jóns- dóttur frá Bíldudal. Síðan 1922 hefir hagur Kaupfélags Austur-Skaftfell- inga batnað ár frá ári. Jafnhliða hafa liéraðsbúar bætt hag sinn og tileinkað sér nýjustu tækni við fram- leiðslu sína. Ferðamaður, sem fer um Austur-Skafta- fellssýslu, sér marga nýbyggða, fallega bæi, víðáttu- mikil slétt tún og stóra kartöflugarða. Um sláttinn er vinnuglatt fólk að verki við hvern bæ, og suð sláttu- véla og rakstrarvéla syngur við eyra. Atorka, reglu- semi og nýtni lýsir sér í hvívetna. Kaupfélagið hefir ekki arðrænt almenning. Efnaliagur bænda hefir batnað, síðan það hóf starfsemi sína, og starfsgleði og starfsþor hefir aukizt. íslenzk alþýða liefir undanfarna áratugi háð liarða baráttu fyrir efnalegu frelsi sínu. Hún befir unnið marga sigra, en margir erfiðleikar liafa orðið á vegi hennar. Oft heíir eini fengurinn verið reynslan. Einn af stærstu sigrum síðustu ára hefir verið unninn í Austur-Skaftafellssýslu, og er hvoru tveggja að þakka, góðri stjórn og góðum liðsmönnum. Ragnar Ólafsson. íp r m — 1 □ @ 11 II 1 — • ra o O 1= £ n _ — ~ i ■ T S # [ t z ■ B -- 7TQ _ 1 £ • 0 1 ■ ; X.U ri H 1 ::: m 1 t J S Z m & i ■ 1 1j 'Sfi' 1 1 1 gxv. izmr— 6 ' 1 -i-': • HiB u H Í4cd 'WmásSiá ■i I * 1 11 □ z □ □J ' 1 1 L ~7 I ■= i 3 it s = I E • □ mr ]■[ £ Éj Grunnmynd af grísku hofi. Goðastúkan í miðju marmara, sem gulnaði undan ofurmagni sólarbirtunn- ar. Hofin urðu fegurri og fegurri, en báru alltaf i gerð sinni og steinskrauti, hvar sem á var litið, merki um uppruna sinn úr skógum landsins. En á blómaöld Grikkja lagði þessi Hstelska þjóð mikið af snilld sinni í að reisa úr marmara með þrennskonar súlnaskrauti einföldustu og yndislegustu byggingarnar, sem saga listanna hermir frá. J. J. Kaupfélagsstjóraskipti Þórhallur Sigtryggsson, sem verið hefir kaupfélags- stjóri á Djúpavogi, tók við framkvæmdastjórn Kaup- félags Þingeyinga á Húsavík 1. jan. Karl Kristjánsson gegndi kaupfélagsstjórastörfum frá því, að Sigurður Bjarklind hætti, og þangað til nú, að Þórhallur tók við. Kaupfélagsstjóri á Djúpavogi verður Jón Sigurðs- son, sem verið hefir starfsmaður í mörg ár hjá félaginu. Hjá Kaupfélagi Siglíirðinga á Sigluiirði urðu skipti um áramótin Yilhjálmur Hjartarson, sem verið liefir þar kaupfélagsstjóri, siðan félagið var stofnað, lét af starfi, en Sigurður Tómasson, sonur Tómasar kaupfé- lagsstjóra á Hofsós, tók við. Sigurður hefir verið for- stöðumaður Kjötbviðar Siglufjarðar. Magnús Guðmundsson, • kaupfélagsstjóri hjá Kaup- félagi Önfirðinga á Flateyri, sagði lausri stöðu sinni um áramótin, en Ólafur Þórarinsson, starfsmaður lijá S. 1. S., annast stjórn félagsins fyrst um sinn. Hann var áður kaupfélagsstjóri á Patreksfirði. Hjá Kaupfélagi Saurbæinga á Salthólmavík urðu skipti um áramótin. Jón Þórðarson kaupfélagsstjóri lét af störfum fyrir elli sakir, en Markús Torfason frá Ólafsdal tók við. Hjá Verzlunarfélagi Vindliælinga á Skagaströnd urðu einnig slcipti. Ólafur Lárusson kaupfélagsstjóri lét af störfum um áramót, flutlist til Reykjavíkur og verður starfsmaður hjá Grænmetisverzlun rikisins. Við kaup- félagsstjórastöðu þar tekur Gunnar Grímsson frá Eski- firði. Hann hefir undanfarið verið starfsmaður hjá útibúi Landsbankans á Eskifirði. 13

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.