Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1940, Blaðsíða 3

Samvinnan - 01.05.1940, Blaðsíða 3
SAMVINNAN 34. árg. . 5. hefti Ritstjórar: Jónas Jónsson og Guðl. Rósinkranz. 10 hefti á ári. Kr. 2,50 til kaupfélaga Reykjavík, maí 1940 Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga. Afgreiðsla: Edduhúsinu . Sími 2323 Bók um íslenzka samvinnu í þessu tímariti hafa á undanförnum árum birzt allmargar greinar með myndum um íslenzku sam- vinnufélögin og þróun þeirra. Ein hin ítarlegasta, um Kaupfélag Héraðsbúa, kemur nú í vorheftum Sam- vinnunnar. Stjórn Sambandsins hefur um nokkur undanfarin ár látið vinna að því að gera kvikmynd af íslenzkum atvinnuvegum, einkanlega í sambandi við starfsemi kaupfélaganna. Sú mynd er nú þegar orðin einskon- ar samvinnumynd, en þó verður væntanlega bætt þar við á næstu misserum, svo að þar komi fram sem flest af mannvirkjum samvinnumanna og fólk það, sem á hverjum stað starfar fyrir félögin. Slíkar mynd- ir eru ómetanlegar heimildir fyrir seinni tímann. Mikið myndi nú þykja til þess koma, ef til væru kvikmyndir af starfi þeirra mörgu merku manna, sem nú eru fallnir frá, en hafa grundvallað sam- vinnustarfsemina á íslandi. All^r þessar aðgerðir miða að því, að ala upp sam- vinnukynslóð í landinu. Þeir, sem taka við arfi fyrri kynslóða, geta aldrei gætt þess arfs, svo sem vera þarf, nema þeir skilji hið sögulega samhengi í þróun þeirra verka, sem þeir starfa að. En það er erfitt að gæta þessa samhengis. Nútíma- líf á íslandi er mjög ólíkt því, sem áður var. Hraðinn í samgöngum, hreyfingin í atvinnulífi, nýstárlegur skemmtana- og fréttaflutningur, eins og kvikmyndir og útvarp, skapa gersamlega nýtt viðhorf um allt daglegt líf. Að sumu leyti táknar þetta framför, að sumu leyti fylgir því afturför. Oftast eru gæði og gall- ar samanofnir í hverri stórbreytingu. En allur þessi hraði, sem kominn er á daglegt líf manna, veldur því, að mikil hætta er á að þjóðin slitni í tvennt, að hið sögulega samræmi, sem þrátt fyrir allt hafði haldizt við, verði rofið, og mikið af því, sem var bezt í íslenzkri menningu, glatist að meira eða minna leyti. íslenzku samvinnumennirnir mynda sterkasta bandið milli gamla og nýja íslands. Þeir hafa líka haft gleggstan skilning á því að viðhalda þessu sam- hengi. Minningarrit og minningargreinar Samvinnu- félaganna og þetta tímarit eru talandi vottur um, að samvinnumenn ætla ekki að rjúfa samhengið við fortíðina. Fyrir nokkrum árum bauð stjórn sænska Sambands- ins Sigurði Kristinssyni, að senda hingað til lands merkan, sænskan rithöfund, Thorstein Odhe, í því skyni, að hann skrifaði á sænsku yfirlitsbók um ís- lenzka samvinnu. Forstjóri Sambandsins tók þessu boði vel, sem vænta mátti, og gerði ráðstafanir til, í sambandi við marga af kaupfélagsstjórum landsins, að þessi sænski rithöfundur gæti á ferðum sínum kynnzt sem bezt mönnum og málefnum samvinn- unnar á íslandi. Dvaldi hr. Odhe hér á landi mikinn hluta sumars og fór um flest héruð landsins nema Múlasýslu, Norður-Þingeyjarsýslu og Vestfirði. Eftir heimkomuna ritaði Odhe síðan þá ágætu bók um samvinnuhreyfinguna á íslandi, sem mörgum er kunnug hér á landi. Sænska Sambandið gaf bókina út í mjög stóru upplagi, prýdda fjölda góðra mynda. Var íslandi og félagsskap samvinnumanna sýndur mikill sómi og viðurkenning með útgáfu þessarar bókar. Áður var hin margþætta samvinna íslendinga sama og óþekkt hvarvetna í útlöndum. Nú fengu Norðurlandaþjóðirnar glögga og velsamda lýsingu á þróun þessara mála hjá minnstu norrænu þjóðinni. Stjórn Sambandsins afréð að láta þýða bók Odhes á íslenzku. Fékkst til þess góðfúst leyfi höfundar og útgefenda. Auk þess lánaði sænska Sambandið hinar mörgu ágætu myndir, sem prýddu bókina. Jón Sig- urðsson í Yztafelli þýddi bókina á íslenzku, og var hún að mestu fullprentuð í haust, sem leið. Stjórn Sambandsins vildi ekki, úr því bókin var gefin út á íslenzku, að niður félli að lýsa samvinnunni í þeim héruðum, sem hinn sænski höfundur hafði ekki heim- sótt. Var mér falið að rita um þetta efni nokkurn eftirmála. Þegar til kom, hafði ég ekki tíma til að ljúka þessu verki í skyndi. Alþingi starfaði nálega allan veturinn, og ég var þar mjög önnum kafinn, einkum á fyrra þinginu, þar sem ég var formaður fjárveitinganefndar. Ég gat því ekki byrjað á þessu verki fyrr en vetrar- 67

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.