Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1940, Blaðsíða 7

Samvinnan - 01.05.1940, Blaðsíða 7
5. HEFTI S AM VINN AN veg'um félagsins. Voru gerðar ályktanir um vagna og önnur flutningatækjakaup. Framkvæmdir í þessum efnum urðu síðar grundvöllur að bifreiðarekstri fé- lagsins, sem síðar verður minnst og gerð grein fyrir. Þar var og minnst á nýjar leiðir í kjöt- og ullar- verkun. Þótti sjálfsagt að gera tilraun með útflutning á kældu kjöti. Sýnt þótti, að saltkjötsmarkaður yrði ekki tii frambúðar, þó að slík verzlunaraðferð sé raun- ar enn við líði. Kjötmatslögin réðu samt mikla bót á þessu og eins ullarmatslöggjöfin um ullina. Slátrun á haustinu 1909 var ákveðin á Reyðarfirði. Framkvæmdarstjóri réði Vigfús Guttormsson frá Geitagerði, sem lært hafði slátraraiðn í Danmörku, til að standa fyrir því verki og æ síðan. Ákveðið var að leggja 4% af vöruumsetning í bygg- ingarsjóð félagsins fyrst um sinn. Ennfremur átti framkvæmdarstjóri að hafa 5% í ómakslaun við afhendingu vara og reikningshald. Talið var sjálfsagt, að taka það af vöruleifum gamla pöntunarfélagsins á Seyðisfirði, sem fært þætti, til að finlnægja pöntunum manna í þessu nýja félagi. Framkvæmdarstjóra var falið að útvega peninga fyrir félagsmenn, svo að hægt væri að standa í skil- um við kröfuhafa gamla pöntunarfélagsins. Umboðsmaður félagsins varð Thor E. Tulinius í Kaupmannahöfn. Lög fyrir félagið var væntanlegri stjórn falið að •semja og leggja fyrir aukafund, sem haldinn yrði seint á sumrinu 1909. í stjórnina voru kosnir: Sigurður Jónsson, Hrafns- gerði, Sölvi Vigfússon, Arnheiðarstöðum og Björn Hallsson, Rangá. Skipti hún með sér verkum þannig, að Sigurður varð formaður stjórnarinnar. Sumarið 1909 var á- kaflega úrfellasamt, einkum haustið. Rekstur félagsins hafði gengið vonum framar. Leigt var húsrúm á Reyðarfirði hjá Tuliniusi, en reyndist óhentugt er fram í sótti. Úthlutun vara fór því stund- um fram undir veru lofti. Aðalfundur 1909 var haldinn á Skeggjastöðum í Fellum í desember. 5 deildir voru í félaginu. Þar var samþykkt að taka lán til þess að byggja vörugeymslu- hús á Egilsstöðum að upphæð 6000 krónur, helzt hjá umboðsmanni. Úr þessu varð aldrei. Efni hússins, sem Tulinium lánaði, var selt Jóni Bergssyni, fram- kvæmdastjóra félagsins. Byggði hann úr því viðbótar- byggingu íbúðarhúss síns á Egilsstöðum. Hafði hann í húsi þessu dálitla verzlun til hægðarauka fyrir fé- lagið, þó var hún að engu leyti á ábyrgð þess og lagð- ist niður, er söludeild var sett upp síðar í húsi félags- ins á Búðareyri. Nefnd sú, er kosin var á pöntunarfélagsfundi 1908, vildi hrinda fram hlutafélagsstofnun, er stæði að byggingu sláturhúss fyrir Austurland á Reyðarfirði. Aðalfundur kaupfélagsins ályktaði að taka þátt í þessu fyrirtæki með hlutabréfakaupum, en vildi samt hins vegar athuga málið heima fyrir í deildum félags- ins. Kaupfélagið gerði það að skilyrði fyrir þátttöku, að það fengi sláturhúsið, ef upp kæmist, til afnota fyrir vörugeymslu gegn vægu gjaldi. Aðstaða félagsins á Reyðarfirði var æði bágborin hvað snerti húsnæðið. Reyndi það til að fá bætt úr því með því að fala til kaups ýmis hús, sem til voru þarna frá síldveiðitímanum, svo sem húseignir Wathnesfélagsins o. fl„ helzt í félagi við áðurnefnt Sláturfélag Austurlands, sem þóttist hafa vilyrði fyrir viðlagasjóðsláni til húsakaupa eða nýbyggingar. Sendimaður frá kaupfélaginu fór til Stafangurs um sumarið 1910. Árangurinn af þeirri för varð sá, að húseignin var gerð föl fyrir 24 þús. kr., svo framar- lega sem ekki fengist hærra boð í húsin. Síðar varð ekkert af þessum húsakaupum eða sam- komulagi um þau. Kaupfélagið hafði ekkert nema tafir og kostnað af þessu öllu. Séra Þórarinn Þórarinsson að Valþjófsstað, fæddur 10. marz 1864. Vígður til prest- skapar 1890 til Mýrdalsþinga. Veittur Valþjófsstaður 1895, og verið þar prestur til 1939. Einn af stofnendum Kaupfé- lags Héraðsbúa 19. apríl 1909. V a r a s t j órnamefndarmaður þess um nokkurra ára skeið. Brynjólfur Bergsson, fyrr- um bóndi að Ási í Fellum, f. 5. júní 1863, dáinn 4. nóv- ember 1933. Gagnfræðingur frá Möðruvöllum 1885. Byrj- aði búskap á Ási 1894 og bjó þar til dauðadags. í stjórn Pöntunarfélags Fljótsdals- héraðs 1906—1908. Einn af stofnendum Kaupfélags Hér- aðsbúa 19. apríl 1909. Deild- arstjóri í Fellum 1909—1927. Brynjólfur var fjörmikill og glæsilegur samvinnumaður. 71

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.