Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1940, Blaðsíða 14

Samvinnan - 01.05.1940, Blaðsíða 14
SAMVINNAN 5. HEFTI 40 smál. af smjöri og 64 smál. af ostum. Meðalfitumagn var 3,7%. En meöalverð að meðtöldu stofn- sjóðsgjaldi var 22,78 aur, líterinn. Alls voru greiddar kr. 471 þús. til bænda fyrir innlagða mjólk á ár- inu. Félagið ól í vetur 100 kálfa, mest á undanrennu, sem annars hefði farið til ónýtis. Áður hafa verið gerðir ostar úr þessari mjólk, en þar sem erlendi markaðurinn er lokaður fyrir ostana, er tilgangs- laust að framleiða meira af þeim en fyrir heimamarkaðinn. En með þessu móti ætti að mega koma undanrennunni í verð. Kaupfélag Eyfirðinga. Aðalfundur Kaupfélags Eyfirð- inga var haldinn á Akureyri 8.—9. maí. Mættir voru 157 fulltrúar frá 23 deildum félagsins, auk stjórnar og margra gesta. í árslok 1939 voru félagsmenn alls 3136. Öll vöruvelta félagsins síðastl. ár var 10,5 milj. kr. Rekstursaf- gangur nam 160 þús. kr. Endur- greiddur tekjuafgangur 8%. Skuld- ir lækkuðu hjá félaginu um 127 þús. kr. Eignir félagsins sjálfs og innstæður félagsmanna höfðu auk- izt á árinu um 370 þús. kr. Eigið fé félagsins og félagsmanna í stofn- sjóði og innlánsdeild nam um ára- mótin kr. 4,989,075. Félagið sjálft og félagsmenn þess eiga því nú 89% af veltufé félagsins í árslok. Sýnir þetta ljóst, hve góður fjár- hagur félagsins nú er orðinn. Bókfært verð fasteigna og véla félagsins var samanlagt um síð- ustu áramót kr. 1.735.999.65. — Starfsmenn félagsins voru í árslok 1939 172. Ýmsar framkvæmdir og um- bætur voru gerðar á árinu eins og unnt hefur verið, Ákveðið var að koma upp hraðfrystihúsum í Dal- vík, Ólafsfirði og Hrísey. Keypt var frystihús og vélar á Skálum á Langanesi, og verður það flutt til Ólafsfjarðar og sett þar upp. Fé- lagið keypti 2500 skp. af saltfiski og lét verka á Akureyri til þess að auka þar atvinnu. Lokið var við byggingu Mjólkursamlagsins og Efnagerðin og Smjörlíkisgerðin stækkaðar og endurbættar. Þá var komið upp kassaverksmiðju, sem smíðar alla umbúðakassa fyrir fé- lagið. Ýmislegt var og fleira gert. Ræktunin aukin, byggð kartöflu- geymsla o. fl. Um síðustu áramót lét Vilhjálm- ur Þór af framkvæmdastjórastarf- inu eftir 15 ára farsæla fram- kvæmdastjórn, en við tók Jakob Frímannsson, sem verið hefur full- trúi við félagið í mörg ár og gegnt hefur framkvæmdastjórastörfum í forföllum Vilhjálms Þór. Kaupfélag Vestur-Húnvetninga. Aðalfundur Kaupfélags Vestur- Húnvetninga var haldinn á Hvammstanga 5.—8. maí. Fundinn sóttu 18 fulltrúar frá 6 deildum, auk stjórnar og endurskoðenda. Tala félagsmanna um síðustu ára- mót var 349. Vörusala var síðastl. ár fyrir um 400 þús kr. og kaup innlendra vara kr. 250 þús. Er það nokkuð lægra en næsta ár á undan, og stafar það af því, hve fjárstofn bænda hefur minnkað af völdum mæðiveikinn- ar. Engar skuldir söfnuðust, þrátt fyrir þá erfiðleika, sem af veikind- um fjárins stafar. Stofnsjóður fé- lagsins er nú 80 þús. kr. og sam- eignasjóðir 74 þús. Tekjuafgangi var úthlutað til félagsmanna 4% af ágóðaskyldri vöruúttekt og auk þess 3% í sjóði. Kaupfélag Langnesinga. Aðalfundur Kaupfélags Lang- nesinga var haldinn á Þórshöfn um miðjan maí. Viðskiptavelta fé- lagsins var meiri síðastliðið ár en nokkru sinni fyrr og nam kr. 1,214,000. Félagið lækkaði skuldir sínar á árinu um 150 þús. kr. og er nú svo að segja laust við skuldir frá kreppuárunum. Félagið hefur á undanförnum árum lagt mikið í fasteignir. Hefur það byggt hrað- frystihús og keypt verzlunarhús, bæði á Þórshöfn og á Bakkafirði. Skuldir félagsmanna minnkuðu líka á árinu um 45 þúsund krón- ur. Sameignarsjóðir félagsins uxu um 18.5 þúsund krónur, Úthlut- að var tekjuafgangi til félags- manna, er nam 4% af verðmætri keyptra vara og 3% lagt í sjóði. Vinna hefur mikið aukizt á Þórs- höfn við frystihúsið, auk þess, sem meira hefur fengist fyrir aflann. Kaupfélag Norður-Þingeyinga. Aðalfundur Kaupfélags Norður- Þingeyinga var haldinn 26. apríl. Mættir voru 33 fulltrúar frá 10 deildum félagsins, ásamt félags- stjórn og nokkrum öðrum félags- mönnum. Vöruveltan á árinu nam kr. 1.166.500. Rekstursafgangur, að frádregnum tillögum til sameigna- sjóða nam kr. 20.421. Samþykkt var að greiða 10% af ágóðaskyldri úttekt félagsmanna. í sameigna- sjóði var lagt 26,5 þús. kr. og námu sameginasjóðir um áramót kr. 198 þús. Inneignir félagsmanna í stofnsjóði og viðskiptareikningum voru 234,4 þús. kr. Félagið lét auka og bæta frystihús félagsins á árinu og kostaði sú viðgerð kr. 29 þús. og til bryggjugerða á Kópaskeri og Raufarhöfn lagði félagið 11 þús. kr. Á fundinum var samþykkt að kaupa jörðina Bakka í Keldu- hverfi, en þar er jarðhiti og hafa þar verið gerðar tilraunir með jarðeplarækt, með ágætum á- rangri. Daginn eftir aðalfundinn gekkst menningarsjóöur kaupfé- lagsins fyrir fjölbreyttri skemmti- samkomu. Prentsm. Edda h.f. 78

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.