Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1940, Blaðsíða 8

Samvinnan - 01.05.1940, Blaðsíða 8
SAMVINNAN 5. HEFTI Á aðalfundi 1910 voru samþykkt lög fyrir Kaupfélag Héraðsbúa. Heimili félagsins var Egilstaðir á Völlum. Lögin höfðu verið rædd á deildarfundum og voru í öllum höfuðatriðum samskonar og í öðrum kaupfé- lögum landsins, nemá tekið var fram í þeim, að pönt- unarfyrirkomulaginu yrði haldið fyrst um sinn, og að sj óðsmyndanir byrjuðu ekki að ráði fyrr en séð væri fyrir um húsnæðismál félagsins og bækistöðvar í framtíðinni, svo og fyrir enda afborgana vegna Pönt- unarfélagsskuldanna. Félagið vildi vinna að því, sem hér fer á eftir: 1. Að sporna við skuldaverzlun. 2. Að reka í félagi og með eigin starfsmönnum sameiginlega verzlun félagsmanna, á sem beztum markaði og með sem minnstum kostnaði. 3. Að auka og bæta framleiðslu á innlendum mark- aði og vekja almennar kröfur um vandaðar og hent- ugar útlendar vörur. 4. Að safna fé til tryggingar fyrir framtíð félags- ins með hundraðsgjaldi af vörum. Félagið reisti sláturskúra til bráðabirgða á leigu- lóð, sem það hafði hjá Tuliniusi. Eftirspurn eftir saltkjöti óx nokkuð, og verðið var sæmilegt eftir atvikum. Lítið vörugeymsluskýli var reist á Egilsstöðum á tanganum við fljótið. Sérstakt hlutafélag hafði með höndum bátsferðir á Lagarfljóti til vöru- og mannflutninga. Deildir höfðu bætzt við af Jökuldal, Skriðdal og í Hjaltastaðaþinghá. Þessi síðasta heltist þó brátt úr lestinni eftir að kaupfélag myndaðist á Borgarfirði. Nokkuð bar á umkvörtunum yfir vörugæðum frá umboðsmanni félagsins. Er svo að sjá á fundargerð- um, að þær hafi sumar hverjar verið á rökum reistar. Framkvæmdarstjóri fékk ráðna bót á þessu, fékk afslátt eða skilaði vörum aftur, sem óhæfar þóttu. Sláturfélagi Austurlands var neitað um viðlaga- Búðareyri, aðsetur Kaupfélags Héraðsbúa. sjóðslánið. Þar með var þeirri félagsstofnun lokið, og tilraunir um sameiginlegar húseignir við kaupfé- lagið að engu orðnar. Wathneshúseignin gekk úr greipum þessara tveggja félaga og varð eign kaup- manns, sem lengi var búinn að hafa hana leigða. Framkvæmdarstjóri félagsins, Jón Bergsson, skýrði félagsstjórninni frá tilboði, sem honum hafði borizt, um stórt verzlunarhús úr timbri, syðst og vestast á Búðareyrinni, kennt við Jón Magnússon kaupmann á Eskifirði. Hús þetta hafði ekki verið notað nokkur ár, al’vel byggt í fyrstu en farið mjög að gisna. Sölubúð var í suðurhluta en vörugeymslur sitt hvorumegin og bakvið og upp á lofti. Allmikið óbyggt svæði var þarna í kring, en útfiri nokkurt framundan húsinu, sem benti til að örðugt mundi verða um bryggjugerð alla. Félagsstjórn vildi bíða með að gera út um kaupin þar til á aðalfundi félagsins um haustið, ekki svo mjög vegna þess, hve húsið var dýrt, heldur hvort fulltrúum sýndist þessi aðstaða þarna væri félaginu heppileg til frambúðar, því að óhjákvæmilegt yrði að byggja bryggju og fleiri hús til reksturs félagsins, ef það ætti fyrir sér að stækka og færa út kvíarnar. Aðalfundur 1911 að Skeggjastöðum samþykkti að kaupa hús þetta og flytja þangað skúra þá, sem fé- lagið hafði látið reisa á leigulóð þeirri, þar sem það hafði haft bækistöð s. 1. tvö ár. Þá var ennfremur ályktað, að hefja bryggjugerð fram undan húsinu svo fljótt, sem auðið yrði. Fá verkfræðing til þess að líta á staðinn og gera áætlun um verkið. Bryggjugerðin var hafin 1913 eftir að nokkur uppfylling var gerð kringum húsið á árinu 1912. Bryggja þessi varð mörg ár í smíðum, því að eins og áður er sagt, var þarna örðug aðstaða sökum út- firis. Vörur félagsins seldust frekar vel það ár. Aftur var nokkur uggur hjá ráðandi mönnum yfir því, að Bryggja kaupfélagsins. 72

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.