Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1940, Side 12

Samvinnan - 01.05.1940, Side 12
SAMVINNAN 5. HEFTI v:3gerðum eða viðhaldi húsanna. Sláturfjárreikningi var gert að greiða 750 kr. árið 1920. Árið 1918 var ákveðið að breyta félagslögunum til samræmis við önnur kaupfélög S.Í.S., og 1920 var út- býtt prentuðu eintaki á hvern félagsmann, en brátt kom að því, eftir að samvinnulöggjöfin kom 1921, að breytingar þyrfti að gera vegna hennar. Var það svo á tímabili, að félagslögum var breytt svo að segja á hverjum aðalfundi til 1923. Þegar samvinnulögin gengu í gildi og tóku að verka fyrir alvöru, sóttu utan- félagsmenn mjög að hafa viðskipti sín hjá félaginu, eftir að það varð skuldbundið til að hafa söludeild og hafa opna búð að hætti kaupmanna. Þetta varð því erfiðara, þar sem verzlunarárferðið versnaði ákaflega 1920—1921. Verðhrun útflutningsvara varð gífurlegt þessi ár. Útlend vara lækkaði ekki vitund. Skemmd kom fram í aðalvöru félagsins, kjötinu, einskonar súr, sem aldrei varð sannað af hverju stafaði. Af þessu varð mikið tjón og óhagræði fyrir allan rekstur fé- lagsins. Má segja með sanni, að ef ekki hefðu staðið að félaginu vissir menn, sem studdu það með ráðum og dáð og höfðu traust hjá bönkum og ríkisstjórn, þá hefði félagið riðað til falls. Framkvæmdir stöðvuöust. T. d. kom til tals, að félagið seldi bryggjustaura þá, sem það var nýbúið að útvega sér með ærnum kostn- aði til lúkningar á bryggjuhausnum, til þess að hafa rekstursfé. Af því varð samt ekki, sem betur fór. Bryggjusmíðið hélt áfram hægt og bítandi, og 1922 lagðist skip í fyrsta sinn við bryggjuna. Yfirsmiður að bryggjunni var Guðjón trésmiður Jónsson frá Freys- hclum í Skógum. Hafði þá verkið allt kostað ca. 44 þús kr., og fengust 12 þús. úr ríkissjóði, sem styrkur til verksins. Hagræði það, sem félaginu varð að bryggju þessari, var stór liður í sigri þess á örðugleikum verzlunarár- ferðisins 1920—1921. Vegna þessa ískyggilega ástands, sem þá vofði yfir hér á landi og víðsvegar, þá gerði aðalfundur sam- þykktir um takmörkun á kaupum útlends varnings, einkum munaðar- og vefnaðarvöru. Ennfremur hvatningar til meiri notkunar heima fyrir á innlend- um fæðutegundum. Skuldir viðskiptamanna félagsins jukust nokkuð, eins og eðlilegt var. Rekstrarlánin kröfðust hárra vaxta. Aðalfundur samþykkti heimild til að starfrækja vélbátaferðir á Lagarfljóti, sem voru þá í höndum hlutafélags um þær mundir, og gekk reksturinn erfið- lega. Félagið notaði heimild þessa ekki fyrr en síðar á áium. Vélbátaflutningar þessir nutu styrks úr ríkis- sjóði. Ennfremur var félaginu falið að beita sér fyrir því við ríkisstjórnina, að hún léti rannsaka skilyrði fyrir stofnun ullarverksmiðju á Austurlandi. Ríkis- stjórnin var einmitt að láta fara fram rannsókn á þecsu hér á landi. Halldór Stefánsson bóndi að Hamborg, sem verið hafði formaður félagsins síðan 1910, kvaddi félagið á aðalfundi 5. des. 1921, því að hann flutti búferlum í Torfastaði í Vopnafirði. Aðalfundur þakkaði honum ósíngjarnt og gott starf fyrir félagið. Eftir Halldór eru til ýmsar góðar og merkar greinar í Tímariti kaup- félaganna og samvinnufélaganna. Um verðlagningu vara í kaupfélögum 1919, bls. 47—53, Verðlagningar- skipulagið 1921, bls. 6—20, 1922, bls. 125—142 og At- vinnulífshorfur 1925, bls. 24—42. Rekstur félagsins árið 1922 gekk mun betur en árin áður. Þó höfðu skuldirnar heldur vaxið, og var álykt- að að stöðva og taka út úr viðskiptaveltunni nokkrar skuldir, gera um þær sérstaka samninga og taka veð fyrir þeim. Raddir voru uppi um það, að S. í. S. beitti sér fyrir því að hinni sameiginlegu ábyrgð sambandsdeildanna yrði breytt hið bráðasta í takmarkaða ábyrgð. Eins og áður er getið voru lög félagsins í sífeldri endurskoðun, svo að ekki leið langt á miU’ breytinga. Halldór Stefánsson fyrrum bóndi í Hamborg í Fljótsdal og Torfastöðum í Vopnafirði, fæddur 26. maí 1877, útskrif- aðist úr Möðruvallaskóla 1897. Bókhaldari Pöntunar- félags Fljótsdalshéraðs 1903 —1909. Bóndi 1909—1929. Þingmaður Norðmýlinga 1924 —1935, forstjóri Tryggingar- stofnana ríkisins í Reykja- vík 1928 og síðan. Stjórnar- nefndarmaður K. H. B. 1910 —1921. Formaður 1910 og 1912—1921. Halldór er fróður um samvinnumál. Eftir hann eru góðar greinar í þeim efnum í Tímariti kaupfélag- anna og samvinnufélaga, og víðar. Guttormur Vigfússon f. 8 ágúst 1850, í Geitagerði í Fljótsdal. Foreldrar: Vigfús Guttormsson (Vigfússonar alþm.) bóndi og Margrét Þorkelsdóttir. Nam búfræði á Stend í Noregi 18^5—77. Kennari við Mörðuvallaskól- ann 1880—81. Var í Land- búnaðarháskólanum í Khöfn 1881—82. Búnaðarskólastjóri á Eiðum 1883—88. Bóndi í Geitagerði 1894—1908. Um- boðsmaður Múlasýsluumboðs 1905—09. Þingm. Sunnmýl- inga 1893—1907. Deildarstjóri í Pöntunarfél. Fljótsdælinga og Kf. Héraðsbúa og endur- skoðandi. 76

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.