Samvinnan - 01.01.1947, Síða 16
3 RISAR -
f A
L Y K I L L
USA = Bandaríkin.
SSSR = Sovét-Rússland.
UK = Stóra-Bretland
(Un'-ted Kingdom)
Eftir funcl Churchills, Roosevelts og Stal-
ins í Yalta á Krímskaganum, á meðan loka-
þáttur heimsstyrjaldarinnar var háður, var
það ekki lengur baráttan sjálf — framsókn
hinna sigursælu herja á vígstöðvunum — sem
hertók hug almennings í flestum löndum —
heldur fyrirheit hinna þriggja heimsvelda um
það, að upp úr rjúkandi rústum Evrópu- og
Asíuvígstöðvanna, skyldi rísa nýr, varanlegur
friður í milli þjóðanna.
Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og
mannheimur hefur gengið í gegnum erfið
I HEIMUR
reynsluár. Atómsprengjur hafa fallið á menn
í Hiroshima og málleysingja á Bikini-ey. Sam-
cinuðu þjóðirnar hafa hafið starf og friðar-
fundur hel'ur setið í París, í annað sinn á ald-
arfjórðungi. Innan þessa heildarramma
heimsviðburðanna hafa þjóðunum birzt smá-
myntlir af hinni nýju heimsmynd í sköpun
„undir smásjá stórveldanna". — „Málin"
hafa ekki verið leyst eins auðveldlega, né
heldur af eins samstilltum hug, og hinar
fögru Yalta-yfirlýsingar gáfu þjáðum lýð til-
efni til að halda. Hvert „málið" af öðru hef-
ur skotið upp kollinum og öll friðarbygging
stórveldanna hefur virzt leika á reiðiskjálfi.
Nægir að minna á „íransmálin", „Dónár-
málin", „Trieste-vandamálið", „Umboðs-
stjórnarmálin" og mörg fleiri. að meðttildu
„Islandsmálinu", sem stundum er nefnt í
heimsblöðunum, sem dæmi um togstreitu
stórveldanna, sem friðinn ætluðu að byggja.
Betur horlir þessa stundina, en oft áður,
um friðsamlega sambúð stórveldanna, en eig»
að síður gefast þeim, sem að staðaldri hlýða
á fréttir, jafnan næg tilefni til jress, að íhuga
hina „eðlilegu" hagsmunaárekstra liinna
þriggja sterku ríkja, sem mestu ráða um frið-
arhorfurnar í heiminum, og tilhneigingu
þeirra til þess að láta þessa „eðilegu" hags-
muni vfirskyggja gjörvalla friðarmyndina,
sem brugðið var ujjp eftir Yalta-fundinn, og
hrinda Jrannig af stað hinu þráláta umtali
um hið Jtriðja heimsstríð.
Tilgangurinn með uppdráttunum, sem
fylgja hér með, er sá, að benda á það, sem á
bak við býr, er stórveldin „ota sínum tota" á
ráðstefnum þjóðanna og í refskák diplómat-
anna. Þessi ábending uppdráttanna getur
vitaskuld. aðeins orðið mjög ófullkomin, á
tveimur fátæklegum blaðsíðum og fjórum
landabréfarissum, en Jró er vert að minnast
j>ess, að allt, sem gerizt í stórpólitíkinni, ger-
izt einhvers staðar á jarðskorpunni, og þess
vegna geta landfræðilegar ábendingar verið
mjög lærdómsríkar.
(Framhald á bls. 18).
Spaniei
SthnlUr.
ÍldtbniMl
SsHttía
hmet
Grekid.
„ÞAR SEM A'LDREI SÓLIN SEZT.“ mjóa línan flugleiðirnar. Yfirráðasvæði Breta eru Suður-Kína eru merkt þannig. Stautamir merkja
Svarta linan eftir endilöngu kortinu merkir merkt með svörtum lit. Eftirtektarvert er, að helztu stöðvar Breta á þessuin lciðum.
sjóleiðir til landa brezku krúnunnar í austri, en Miðjarðarhafslöndin, nálægari Austurlöndin og
SOVÉT-HAFNIR.
Svörtu örvarnar merkja samgönguleiðir
rússnesku utanríkisverzlunarinnar til um-
htimsins. Verksmiðjurnar sýna þýðingu
þessara samgönguleiða, liverrar fyrir sig.
Mongólia er rússneskt yfirráðasvæði og
norðuxbrún Góbí-eyðimerkurinnar er var-
in af Rauða hemum. Sovét-stjómin ræður
járnbrautinni í gcgnum Mansjúríu og
Dairen og Port Arthur eru rússneskar
flotabækistöðvar.
SiiUua
Cwrtiái,-