Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1948, Page 5

Samvinnan - 01.11.1948, Page 5
nema að mjög litlu leyti um þetta merkilega viðfangsefni alþjóðasam- vinnunnar, heldur varði hann löng- um tíma til þess að ráðast gegn Mar- shall-áætluninni um efnahagslega end- urreisn Vestur-Evrópu, sem hann taldi að væri „bein ógnun við sjálfstæði og fullveldi Evrópulandanna“. Hann lagðist líka gegn starfsemi hinnar al- þjóðlegu verzlunarstofnunar S. Þ., sem hann taldi aðeins verkfæri í hönd- um amerískra auðmanna. Einn af sænsku fulltrúunum svaraði þessari ræðu og benti á, að hin alþjóðlega verzlunarstofnun reyndi, í stað þess að vera „verkfæri auðvaldsins“, að veita samvinnumönnum tækifæri til þess að hefja árangursríka baráttu gegn hringum og auðvaldi. En þess- um rökum var ekki sinnt, heldur var haldið áfram að þylja fyrri ásakanir, rétt eins og ekkert hefði skeð. AÐ urðu vissulega harðar orða- ræður á 17. alþjóðaþinginu, því að fulltrúar vestrænu þjóðanna sátu ekki alltaf þegjandi undir ásökunum. T. d. sagði brezki fulltrúinn, T. H. Gill — sem seinna var kjörinn forseti Alþjóðasambandsins í stað Rusholme lávarðar, sem baðst undan endur- kosningu — að hann væri í rauninni þess fullviss, að hvorki Sovét-Rússland, né heldur hin svokölluðu „alþýðulýð- veldi“, óskuðu eftir styrjöld eða heims- yfirráðum. En fulltrúar þeirra sökuðu vestrænu ríkin sífellt um stríðsæsingar, fasistaskoðanir og heimsyfirráða- stefnu. „En hverjir voru það,“ sagði hann, „sem fyrstir tóku upp barátt- una gegn fasismanum? Hverjir voru það, sem áttu í styrjöld við þá á með- an þeir, sem nú bera fram ásakanir, höfðu gert vináttusamning við Hitler? Hinar niðurlægjandi orðaræður um hin vestrænu lönd stuðla vissulega ekki að auknum skilningi og friði. Það er kominn tími til þess að hætta að nota alþjóðlegar ráðstefnur til þess að sá tortryggni og fjandskap í milli þjóðanna." En fór þá þingið út um þúfur að mestu leyti? Nei, því var forðað og þingið gerði nokkrar ákvarðanir, sem geta haft mikla þýðingu í framtíðinni. Það voru gerðar ályktanir, sem tengja Alþjóðasambandið við grundvallar- atriði lýðræðisins og hins pólitíska hlutleysis samvinnustefnunnar. Til- raunir þær, sem gerðar voru af rúss- nesku sendinefndinni til þess að leggja niður framkvæmdastjóraembætti Al- þjóðasambandsins og koma Thorsten Odhe — framkvæmdastjóranum og tengilið Sambandsins við Sameinuðu þjóðirnar — frá störfum, tókust ekki. Ný stjórn og framkvæmdanefnd voru kosnar. Og nýr forseti, T. H. Gill, kunnur samvinnufrömuður í Bret- landi og þátttakandi í verkalýðshreyf- ingunni. I viðbót við þetta, voru samþykktar allmargar ályktanir, með um það bil 100 atkvæða meirihluta. Þar á meðal ályktun um aukið samstarf samvinnu- sambandanna á viðskipta- og fjármála- sviðinu, og ályktun um olíumálin. í þeirri ályktun skorar Alþjóðasam- bandið á Sameinuðu þjóðirnar að láta fara fram rannsókn á tangarhaldi auð- hringa og ríkisstjórna á olíulindum heimsins, með það fyrir augum að leggja grundvöll að alþjóðlegu sam- starfi um aukna olíuframleiðslu og frjálsan og jafnan aðgang að þessum auðlindum fyrir allar þjóðir heims. Þá er að geta ályktunar um aukið, raunhæft samstarf í milli samvinnu- byggingafélaga og neytendafélaga, í því augnamiði að lækka byggingar- kostnað þar sem því verður við komið og stuðla að iðnaðarlegri uppbygg- ingu í þeim löndum, sem þar eru skemmst á veg komin. Þá voru dregn- ar hreinar línur til þess að merkja samband samvinnuhreyfingarinnar við ríkisvaldið, og verður e. t. v. vikið að því máli síðar. Að lokum má nefna það, að sam- þykkt var ályktun um frið milli þjóð- anna, og hún samþykkt í einu hljóði. í þessari ályktun var það viðurkennt, að hinar félagslegu og efnahagslegu stofnanir Sameinuðu þjóðanna hefðu unnið mikið starf og væru í vexti, og að þær hefðu gert ýmsar ráðstafanir með það takmark fyrir augum, að bæta lífskjör milljóna manna. Skorað var á allar stofnanir, sem tengdar eru Alþjóðasambandi samvinnumanna, að vinna að því, að þekking á þessari starfsemi verði útbreidd meðal með- limanna, og yfirleitt að styðja starf- semi Sameinuðu þjóðanan á allan hátt. AÐ hefur vitaskuld komið fyrir. fyrr, bæði innan Alþjóðasamb. og stofnana þess, að deilur hafa orðið allharðar. Enda er það ekki nema eðli- legt. Fulltrúarnir á slíkum þingum mæla fyrir mismunandi þjóðir og viðhorf. En þessar deilur hafa hingað til jafnan verið því marki brenndar, að þær hafa farið fram í fullri vin- semd og í einlægri leit að samkomu- lagi. Á þessu þingi fannst ýmsum full- trúum þennan góða vilja skorta. Full- trúarnir voru klofnir í tvær fylking- ar. Sú spuming var ofarlega í huga (Framhald á bls. 27.) Stjórnarnefnd ICA á fundi. í stjórninni eiga seeti fulltrúar allra Sambandslanda. Vilhjálmur Þór, forstjóri, á þar sceti f. h. Sambands islenzkra samvinnufélaga. 5

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.