Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1948, Page 8

Samvinnan - 01.11.1948, Page 8
Laukur var ein aðalmatjurtin til forna á íslandi, og Guðrún Ósvífurs- dóttir kallar sonu sína út í laukagarð sinn og eggjar þá til hefnda eftir Bolla. Þegar norrænir menn leggjast í vík- ing og fara alla leið til Austurlanda, hafa þeir með sér í nestið brauð og lauk. Þetta skrifar arabískur maður sem hitti þá þar. Hér eru auk þess villtar jurtir, sem vel voru ætar, svo sem hvannir, en það er gömul matjurt á Norðurlöndum, meira að segja í Danmörku. Auk þess borða menn þang og ber og hefur lík- lega verið notað töluvert af slíku í fornöld, en þó hefur þetta allt haft minni þýðingu en sumir halda. Fiskur, kjöt, mjólk, ostur og skyr var aðalfæðan og nam líklega um 60% allrar fæðunnar. Brauð og grautar voru þar næst að- alfæða eða um 35—38%, en 2—5% ein hafa stafað frá öðrum matjurtum og er þetta miðað við hitaeiningar. Nú er það svo, að mataræði er ekki eingöngu undir því komið hvaða fæðutegundir þjóðirnar nota. Mjög mikla þýðingu hefur það líka, hvernig farið er með þær, hvernig þær eru framleiddar, geymdar og matreiddar, en þetta hefur að mörgu leyti verið sérkennilegt fyrir íslenzkt mataræði. VO AÐ SEGJA öll framleiðsla mat- væla hér á landi fór fram á vissum árstímum. Það var slátrað á haustin, róið á ver- tíðinni og matjurtum safnað á sumrin. Þetta hefur aftur í för með sér að geyma þurfti matinn frá einum bjarg- ræðistímanum til annars eða oft næst- um því í heilt ár. Margar aðrar þjóðir borða nýjan mat allan ársins hring og eiga ekkert orð í málinu eins og orðið bjargræðis- tími. En hér á landi varð að geyma flestan mat. Hann var saltaður, þurrkaður og súrsaður, og súrmetið varð seinna al- veg sérkennilegt fyrir ísland og þekk- ist varla nokkurs staðar annars staðar. íslenzk matreiðsla var áður fyrr mjög einföld, harðfiskurinn var etinn hrár og kjötið soðið einu sinni en sjaldnast steikt, en orðið að steikja þýddi í fornöld að sjóða. „Andhrímnir lætur í Eldhrímni sæ- hrímni soðinn,“ segir í Gylfaginn- 8 ing. Eldhrímnir nefndist ketillinn, en Andhrímnir sauð kjöt af sæhrímni en steikti ekki. Matur goðanna var soðið svínakjöt. Kornmaturinn var soðinn eða bak- aður, og matjurtir, svo sem fjallagrös, voru einnig soðin. Hráar matjurtir hafa verið heldur sjaldgæfar. Svona var það líka á Norðurlöndum, hrátt græn- meti var mjög sjaldgæft og kom eigin- lega fyrst til sögunnar þegar matjurta- rækt jókst til muna fyrir áhrif frá Suð- urlöndum, mest með klaustrum og kristnum sið. „Ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið,“ segir mjög forn málsháttur. Þeir hafa þá soðið kálið í súpu og sop- ið það og er þetta algengt enn í dag. Kornmatur var notaður annað hvort sem grjón, og þá soðinn í grauta, elleg- ar sem mjöl, ósigtað og óspillt, í brauð og súpur. Grautar hafa líklega verið mjög al- gengir til forna og höfðu þá þegar fengið orð á sig sem lítt virðulegir réttir. Þessi rótgróna lítilsvirðing fyrir grautunum sýnir bezt hve algengir þeir hafa verið, og menn hafa borðað þá svo oft að þeir hafa orðið leiðir á þeim. Hunang var flutt til íslands, en það er mjög óvíst, hvort það hefur verið notað í stað sykurs, sem auðvitað þekktist ekki fyrr á tímum, ellegar það hefur verið notað til framleiðslu áfengra drykkja, svo sem mjaðar. Krydd hefur varla þekkzt nema þá krydd hins primitiva manns, sem er rotnunarefni, súr, selta, þrái og önnur sterk efni sem myndast í fæðutegund- um við geymslu og matreiðslu. Hvernig var nú þetta einfalda fa?ði frá sjónarmiði heilsufræðinga nú á tímum? Var í því nóg af eggjahvítu- efni, kolvetnum, fitu, söltum og vita- minum? Fæðan úr dýraríkinu hefur vafalaust gefið yfrið nóg af eggjahvítu og fitu, kornmaturinn kolvetni, en sölt komu bæði úr mjólk, kjöti, fiskmeti og korni. Úr fiskmetinu fékkst nóg af A- og D.-vitaminum, en B-vitamin úr kjöti og kornmat. Margir hafa talið að C-vitamin hafi verið af skornum skammti í mat til forna. Þetta stafar af því að fram á síð- ustu tíma hefur sú stefna ríkt í vísind- um, og þó meira meðal almennings, að C-vitamin sé nær eingöngu í jurt- um, og öfgamenn hafa talið að ávextir og grænmeti væru lífsnauðsynleg fæða til að sjá okkur fyrir nógu C-vitamini. Það ríkja trúarsetningar í matarvís- indum alveg eins og í kirkjufélögum og þær eru ótrúlega lífsseigar. Þor- geirsboli fylgdi þó ekki ættinni lengur en í 7. lið ,en trúarsetningar lifa miklu lengur. Sannleikurinn er sá, að seinni ára vísindin hafa með óyggjandi rökum sannað, að fæða úr dýraríkinu getur verið alveg eins C-vitaminauðug og jurtafæða og oft miklu auðugri, og C- vitaminið getur myndast innan dýra- líkamans alveg eins og í jurtum, og enn eitt: C-vitaminið er miklu hald- betra í dýrafæðu og er þar sennilega í slíkum samböndum og í slíku ástandi, að það kemur miklu betur að notum í fæðu úr dýraríkinu en í fæðu úr jurta- ríkinu. EG HEF því miður ekki tima til að útlista þetta nánar, en verð að hætta á, að það verði tekið trúanlegt. Það var ekkert því til fyrirstöðu, að íslendingar til forna fengju nóg af C- vitamini þótt fæða þeirra hafi verið mjög snauð af grænmeti og ávöxtum. Sjálfsagt hafa þeir þó fengið töluvert C-vitamin úr jurtum, svo sem hvönn, lauk og ef til vill sölvum og berjum. Látum nú þetta niður falla og at- hugum svo hvort nokkuð bendi á að næringarsjúkdómar hafi gengið á Is- landi til forna. Ekkert bendir til þess að A-vitamin- sjúkdómar, svo sem augnveiki, nátt- blinda, mjög-næmi fyrir smitandi sjúk- dómum eða tregur uppvöxtur hafi verið algengt. Það var nóg A-vitamin í fæðunni. B-vitaminsjúkdómar, svo sem beri- beri og pellagra hafa líklega varla þekkzt, og enga frásögn hef ég fundið, sem leiða líkur að þeim sjúkdómum. Maður skyldi halda að skyrbjúgur hafi verið algengur, t. d. í siglingum til forna. „Ok eru úti aukið hundrað dægra," segir í Gísla sögu Súrssonar. Oft höfðu þeir mjög langa útivist og á skyrbjúgs- öldum seinni tíma myndu menn hafa fengið skyrbjúg unnvörpum í svo löngum sjóferðum. Að vísu veiktust

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.