Samvinnan - 01.11.1948, Blaðsíða 24
KONURNAR OG SAMVINNAN
HÚSMÆÐRAFUNDIR í KAUPFÉLAGI ÁRNESINGA
Fræðsludeild S. í. S., hefir sent Samvinnunni eftirfar-
andi frásögn af fundarhöldum með húsmæðrum og
öðrum félagskonum í Kaupfélagi Árnesinga, sem ný-
lega fóru fram þar syðra.
NÝLEGA voru haldnir í Kaup-
félagi Árnesinga fundir með
húsmæðrum og öðrum félagskon-
um. Fundir þessir voru fimm sam-
tals. Voru þeir í Hveragerði, á Eyr-
arbakka, á Stokkseyri og tveir fund-
ir á Selfossi, annar fyrir konur í
þorpinu en hinn fyrir konur úr
sveitinni, aðallega fyrir ofan Sel-
foss. Þessir fundir voru mjög vel
sóttir. Á fimmta hundrað konur
alls sátu þá. Fjölmennastur var síð-
asti fundurinn, en hann var hald-
inn á Selfossi með félagskonum úr
sveitunum, sem áður er getið. Þann
fund sóttu um eða yfir 150 konur.
Egill Thorarensen, kaupfélags-
stjóri, stjórnaði öllum fundunum.
Ræður voru fluttar, kvikmyndir
sýnd og sameiginleg kaffidrykkja
frjálsum ræðuhöldum. Milli dag-
skrárliða var sungið.
Hin fasta dagskrá var svipuð á
öllum fundunum, en ræðumenn
voru: Egill Thorarensen, kaupfé-
lagsstjóri, Bjarni Bjarnason, skóla-
stjóri Vilhjálmur Árnason, framkv.-
stj. Fræðsludeildar S. í. S. Grímur
Thorarensen fulltrúi K.Á. og Ingvi
Ebenhardson frá K.Á.. Ræðumenn
komu víða við. Þeir töluðu um
samvinnumál almennt og með sér-
stöku tilliti til kvenanna, um félags-
mál, K.Á., um vörur og vörukaup,
vöruskömmtun, heimilin og heimi-
lislíf o. s. frv.
Á fundunum voru sýndar sam-
vinnukvikmyndir, danskar og amer-
ískar. Milli dagskrárliða var sungið.
Ungur og hljómelskur félagsmaður
stjórnaði söngnum og tókst honum
það hið bezta. Fundum þessum lauk
með sameiginlegri kaffidrykkju í
boði félagsins. Var þar frjáls ræðu-
höld. Margar fundarkonur tóku til
máls og ræddu mál félagsins og sér-
staklega þau er konum eru hug-
stæðust. Voru ræður húsmæðranna
yfirleitt stuttar, glöggar og skemmti-
legar.
Yfirleitt voru fundir þessir hinir
ánægjulegustu. Ríkti góður andi
og samhugur, og þó til fulls hrein-
skilni. Jafnframt hagnýtum fróð-
töldu fundarkonur sig hafa mikla
skemmtun og ánægju af fundunum.
Fundunum lauk milli kl. 11 og 12
á kvöldin, en þeir byrjuðu kl. 8—
8i/2. Síðasti fundurinn (á Selfossi)
byrjaði kl. 4 e. h. og stóð til kl. lOl/íj
um kvöldið. Á þeim fundi var fé-
lagskonum, auk hinnar föstu fund-
ardagskrár, sýnd góð kvikmynd. En
á þessum fundi voru margar hverj-
ar konur mjög langt að, og því sér-
stök ástæða til að lengja dagskrána.
FUNDIR sem þessir eru til mik-
illar örfunar og styrktar í félags-
starfi hvaða kaupfélags sem er. Þeir
auka og bæta félagsanda og skiln-
ing milli félagsmanna og forráða-
manna félaga, og Jreir minna menn
á það, að samvinnufélögin eu eign
félagsmanna og undir þeirra stjórn,
en ekki óviðkomandi stofnanir.
Það er sérstök ástæða til þess að
lýsa ánægju yfir þessum fundum
húsmæðra og annarra félagskvenna
í K. Á., og á kaupfélagsstjóri og fé-
lagsstjórn, sem forgöngu höfðu um
•fundinn, þakkir skilið.“
*
AÐ eru alltaf mikil gleðitíðindi,
þegar samtök okkar sýna, bæði
í vilja og verki, að þeim er ætlað
að sinna fleiri málum en verzlunar-
málunum. Fundarhöld með hús-
mæðrum, eins og Kaupfélag Árnes-
inga hefur nú beitt sér fyrir, eru
mjög til fyrirmyndar, og ættu sem
allra flest kaupfélög í landinu að
taka þetta upp, sem fastan lið í
starfi sínu. Með slíkum fundum er
mjög styrktur félagsandi -viðkonr
andi félags, og tækifæri gefast til
að koma fram með ýmiss mál til
aukins samstarfs og skilnings á milli
húsmæðranna og félaga þeirra.
Konur þurfa að fá sterka tilfinn-
ingu fyrir því, hver regin munur
er á því, að vera félagsmaður í
kaupfélagi og venjulegur viðskipta-
vinur í kaupmannsverzlun. Allt,
sem gert er í þá átt, að tengja fé-
lagsmenn við samtökin og tengja
þá saman innbyrðis, má því tví-
mælalaust teljast í rétta átt og
fagnaðarefni öllum þeim, sem mál-
efninu unna. Hið gamla máltæki
„Sameinaðir stöndum vér, sundr-
aðir föllum vér“ á vel við hér, eins
og víða annars staðar. Samvinnu-
samtökin, sem kölluð hafa verið
„Samhjálp fólksins", geta leyst ýmis
þeirra mála, sem konum eru sérstök
áhugamál, vegna þess, að þeim er
í raun réttri engin takmörk sett.
Konur ættu að hafa það hugfast, að
samvinnufélagsskapurinn hefur frá
upphafi vegar sýnt konum virðingu
með því að veita þeim fullt jafn-
rétti á við karlmenn, atkvæðisrétt
og kjörgengi. Þetta þykja okkur
engin fríðindi nú til dags, en fyrir
rúmri öld, þegar samtökin voru í
fæðingu, var öðru máli að gegna.
Það er óhætt að fullyrða, að merki-
leg framsýni og skilningur hafi sett
svip á fyrsta kaupfélagið og stofn-
endur þess, bæði hvað þetta atriði
snertir og mörg önnur, enda var hér
um að ræða félagssamtök, sem áttu
eftir að breiðast út um víða veröld
og lifa um ókomin ár.
A.
Lœrið um samtökin!
Konur, sem áhuga hafa á sam-
vinnumálum, ættu að kynnast
starfsháttum þeirra og skipulagi á
sem beztan hátt. Það er þekkingar-
auki, sem sæmir hverri konu að
öðlast. Hann hjálpar henni til að
skilja betur ýmislegt, og veitir
henni möguleika til að taka þátt í
umræðum um félagsmál. Ein af
námsgreinum Bréfaskóla S. í. S. er
„Skipulag og starfshættir samvinnu-
félaga“, og er þar ágætt tækifæri til
að nema „með heimilisverkunum".
Samvinnukonur! Lærið um sam-
tökin!