Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1952, Qupperneq 2

Samvinnan - 01.10.1952, Qupperneq 2
Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga. Ritstjóri: Benedikt Gröndal. Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, Reykjavík. Ritstjórnarsími 7080. Kemur út mánaðarlega. Verð árgangsins kr. 40.00. Verð í lausasölu 5 kr. Prentsmiðjan Edda. Efni- Er stóriðja eina leiðin 3 Reistu í verki viljans merki 4 Fyrsta íslenzka iðnaðar- borgin — fyrir 200 árum 6 F ramleiðslusamvinna, eftir Eystein Jónsson 7 Strand Persier og járnið á Dynskógafjöru 9 Ostgerð og ostneyzla, eftir Jónas Kristjánsson 12 Vinsælir ostaréttir 13 Sýnd vara, en ekki seld 14 Gjöf Borgfirðinga til Bifrastar 15 Hvor sigrar, Eisenhower eða Stevenson 16 Heimilistækninni fleygir fram 18 Stúlkan úr Svartaskógi, ný framhaldssaga, eftir Louis Bromfield 28 XLVI. árg. 8—9 Sept.-okt. 1952 FORSÍÐUMYNDIN á þessu hefti er frá fjárflutningunum miklu í haust, og sýnir fé koma til hinna nýju heim- kynna sinna eftir langa ferð í bifreið- inni. Flutningar þessir voru einhverj- ir mestu í sögu landsins, enda var skiptasvæðið að þessu sinni mjög stórt, meginhluti Suðurlandsundirlendisins. Guðni Þórðarson tók myndina, en hann hefur einnig tekið myndirnar frá Iðnsýningunni og myndina af Eiríki Þorsteinssyni. IÐNSÝNINGIN 1952 var tvímæla- laust einn merkasti viðburður ársins og hún hefur orðið til þess að opna augu margra fyrir þýðingu iðnaðarins fyrir þjóðina nú, og þeim opnu mögu- leikum, sem blasa við iðnaðinum, ef vel er á málum hans haldið. í frá- sögninni af sýningunni var aðeins leitazt við að lýsa stuttlega sýningar- deild SÍS, en tókst þó ekki án þess að eitthvað gleymdist. Á ganginum milli sýningardeildanna voru sýningar frá Kaffibætisgerðinni Freyju og Kaffi- brennslu Akureyrar, og þar var einn- ig geysimikið og haglega gert línurit, er sýndi hinn öra vöxt iðnaðarfram- leiðslu íslenzkra samvinnumanna. Þá voru þar afmælismerki Sambandsins, og undir þeim bekkir, sem Jón Karls- son teiknaði til þess eins að lofa gest- um að hvila sig, en hafa þó vakið at- hygli ekki síður en sýningargripir. EINU ATRIÐI mætti bæta við grein- ina um kosningarnar í Bandaríkjun- um, en það er viðhorf þeirra Eisen- howers og Stevensons til samvinn- unnar. í stefnuskrám beggja aðal- flokkanna er lýst stuðningi við sam- vinnufélög bænda, en demókratar eru að því leyti raunhæfari í stuðn- ingi sínum, að þeir taka fram, að þeir muni beita sér gegn því, að starfsemi samvinnufélaganna verði heft með óréttmætri lagasetningu, og er þar átt við skattabaráttuna. í aðalræðum sínum til bændastéttarinnar, sem frambjóðendur fluttu samdægurs á mikilli landbúnaðarsýningu í Kasson í Minnesota, kom þetta skýrt fram, báðir lýstu stuðningi við samvinnu- féíög bænda, en Stevenson ræddi sér- staklega um lagasetninguna. Hann gat þess einnig, að hann væri sjálfur samvinnumaður, en hann er meðlim- ur í samvinnufélagi í Illinois og kaupir flestar nauðsynjar til búgarðs síns í Libertyville hjá kaupfélaginu þar. JÁRNIÐ Á DYNSKÓGAFJÖRU hef- ur komið allmjög við fréttir dagblað- anna undanfarnar vikur, vegna hinna miklu og flóknu málaferla, sem spunnizt hafa út af eignarrétti og björgunarrétti þess. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn, sem hér verða flókin málaferli út af þessu skipi, strandi þess og björgun, því að 1941 stóðu yfir málaferli í sjórétti og hæstarétti út af björgunarlaunum. Strand Persier, sem járnið flutti, og afleiðingar þess, eru einn af hin- um fjölmörgu atburðum, sem hér gerðust á stríðsárunum, en lítið hef- ur verið sagt frá opinberlega, enda þótt óþarfi væri að halda mikilli leynd um þetta skipsstrand. í þessu hefti birtir Samvinnan söguna af þessu skipi, strandi þess hér við land, björg- un farmsins og skipsins sjálfs, og loks frá járninu, sem fleygt var á Dyn- skógafjöru til að létta á skipinu, og þá þótti ekki þess virði að bjarga og flytja til Reykjavíkur. Þessa sögu má setja í flokk með sögunni af E1 Grillo, olíuskipinu í Seyðisfirði, og má vel vera, að margar slíkar sögur liggi enn ósagðar frá stríðsárunum hér á landi. Væri gaman að grafa þær upp. OSTAR hafa verið mjög á dagskrá undanfarnar vikur, þar eð Samband- ið gerði sérstaka tilraun til að vekja áhuga á þeim og auka sölu á þeim í sambandi við Iðnsýninguna. Vakti sýningareldhúsið þar hina mestu athygli og áhugi á ostneyzlu og mat- reiðslu með osti fór sýnilega vax- andi. Var sýningargestum m. a. gef- inn ritlingur með uppskriftum osta- rétta, og er grein Jónasar Kristjáns- sonar, sem í þessu hefti birtist, for- máli að því riti. Hér á landi er hægt að framleiða miklu meira af osti en nú er neytt í landinu, og er sjálfsagt að auka ostaneyzluna og hagnýta þessa möguleika á framleiðslu hollr- ar kjarnafæðu í landinu sjálfu. MYNDIN af Jónasi Kristjánssyni var tekin af Svíanum Jöran Fors- lund, en myndina af slaghörpunni í Bifröst af Árna Böðvarssyni.

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.