Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1952, Síða 3

Samvinnan - 01.10.1952, Síða 3
r Er stóriðja eina Það er ekki að ástæðulausu, sem margir menn eru hugs- andi um hag íslenzku þjóðarinnar. Hún býr að vísu við góð lífskjör, ef miðað er við flestar aðrar þjóðir heims, en henni hefur aðeins tekizt að halda þessum lífskjörum með rausnarlegri aðstoð erlendrar þjóðar. Slíka aðstoð er rétt og sjálfsagt að þiggja á þrengingatímum, svo sem flestar nágrannaþjóðir okkar gerðu eftir styrjöldina, en það er fráleitt að treysta á slíkt til langframa. Islendingar verða því að gera ráðstafanir til þess að verða sem fyrst mat- vinnungar, en það hafa þeir varla verið undanfarin ár. Þessu marki verður aðeins náð á tvennan hátt: með því að draga svo úr lífskjörum fólksins, að núverandi fram- leiðsla standi að fullu undir þeim, eða auka framleiðsluna nægilega mikið til að halda uppi lífskjörunum, og jafnvel bæta þau. Mun fáum blandast hugur um, að Islendingum beri að velja seinni leiðina, sé hennar nokkur kostur, enda þótt sjálfsagt sé að afnema ýmis konar hégóma og eyðslu- semi, sem fest hafa rætur hjá þjóðinni undanfarin ár. En hvernig á að fara að því að auka framleiðsluna og gera hana örugga ár frá ári, svo að nægilegt reynist? Erf- itt mun að treysta á stórfellda aukningu sjávarútvegsins, þar sem fiskimiðin eru nú þegar talin í hættu af ofveiði. Enda þótt útgerðin muni með núverandi tækjum skila stórum meiri arði á aflaárum, en hún hefur gert undan- farin aflaleysisár, þarf annað og meira til. Landbúnaður- inn verður áfram hinn trausti hornsteinn íslenzks atvinnu- lífs og með stóraukinni ræktun og bættum búnaðarháttum mun hann einnig geta skilað þjóðinni töluvert meiru en hann hefur gert undanfarið. En erfiðleikar virðast á því að samræma verð íslenzkra landbúnaðarafurða við heims- markaðsverð til að gera þær að stöðugri útflutningsvöru, en jafnvel það kann framtíðin að leysa. Þrátt fyrir þetta mun landbúnaðurinn ekki frekar en fiskveiðarnar geta tryggt þá stórfelldu framleiðslu — og tekjuaukningu, sem þjóðin verður að fá til þess að tryggja framtíð sína. Þá er ónefnd þriðja stóratvinnugrein landsmanna, eins og nú standa sakir, en það er iðnaðurinn. Er ástæða til að staldra við og íhuga, hvort einmitt þar liggi ekki ónot- leiðin? aðar auðlindir, óbeizluð orka, sem gæti skapað íbúum þessa lands bæði afkastaaukningu og öryggi. Þarf ekki að íhuga þau mál lengi til að komast að þeirri niðurstöðu, að svo sé, og iðnaðurinn gefi sterkastar og beztar vonir um framtíðina í þessu landi. Nýlega er afstaðin mikil iðnsýning í Reykjavík, þar sem sýnt var, hvað íslendingar hafa þegar gert á sviði iðnaðarins. Kom þar fram fjölbreytni og atorka í fram- leiðslu margvíslegs varnings, sem ýmsum mun hafa kom- ið á óvart. En þó er það ekki framleiðsla á neyzluvöru eða rekstursvöru í smáum stíl fyrir innlendan markað, sem hér skiptir mestu máli. Það er stóriðja, þar sem tiltölulega fáir menn en miklar vélar og mikil orka skapa stórverð- mæti til útflutnings, sem íslendinga vantar, og einmitt á þessu sviði eru fyrir hendi möguleikar, sem hagnýta verð- ur til hins ýtrasta. A Iðnsýningunni eru myndir af tveim verksmiðjum, sem þegar er verið að reisa, og teljast til þessarar grein- ar iðnaðarins. Eru það áburðar- og sementsverksmiðjurn- ar, en þar munu örfáir tugir manna framleiða verðmæti fyrir tugi milljóna á ári, byrja á því að spara algerlega stóra liði á innflutningsreikningum þjóðarinnar og síðar vonandi hefja útflutning. Báðar þessar verksmiðjur verða stór lóð á vogarskálum aukinnar framleiðslu, og það er meira af slíku, sem gefur þjóðinni vonir um aukin afköst, er tryggja munu lífskjör hennar og bæta. I grein um Iðnsýninguna segir merkur efnafræðingur, að það sé „skáldlegur óskadraumur“, sem einhvers staðar er letrað á sýningunni, að á íslandi sé „gnótt nýtra efna í jörðu, lofti og legi“. En landið býður fram orku — geysi- mikla orku í fallvötnum og hverum, og það er einmitt ork- an, sem er eitt undirstöðuatriði iðnaðar. Hvergi í heim- inum mun mikil og ódýr orka hafa legið ónotuð til lang- frama, heldur spretta ávallt upp í kringum hana marg- víslegar iðngreinar, og undantekningalítið starf og vel- megun fyrir fólkið. Hér á landi eru möguleikar til stórvirkjana, sem enn (Frh. á bls. 26) 3

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.