Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1952, Page 11

Samvinnan - 01.10.1952, Page 11
Bifreið skipað upp úr Persier á Dynskógafjöru. örlítil hreyfing á skipinu og lyftist það í sandinum, enda þótt megin- þungi farmsins, járnið, væri enn ó- snert. Hinn 23. apríl var loks lokið við að koma bifreiðununt á land. Ekki þótti hagkvœmt að flytja bifreiðarnar til Reykjavíkur, og var horfið að því ráði að setja þær saman skammt frá strandstaðnum. Voru byggðir til þess skúrar á flöt- austan við réttina hjá Hafursey, og voru þar sett upp bráðabirgðaverk- stœði. Þangað voru fluttir bifreiða- kassarnir og settar saman 36 GMC vörubifreiðar og 64 Dodge fólksbif- reiðar, en þeim síðan ekið til höf- uðstaðarins. Eitt sinn, er Heusers skipstjóri kom að Hafursey og sá þessi mannvirki, lagði hann til við samferðamenn sína, að staðurinn yrði þareftir kallaður „Persier Tozvn“, en ekki er vitað, hvort nafnið hefur haldizt. Bifreiðarnar úr Persier voru seld- ar Islendingum og þegar teknar í notkun. Voru þær, allar 100, metnar til fjár á 1,298,000 krónur, en mundu nú sjálfsagt kosta um fimrn milljón- ir nýjar. Fjölmargar þessar bifreiðar eru enn í notkun víðs vegar um land- ið, og svo áberandi voru fólksbifreið- arnar á götum Reykjavíkur 1941, að útlendingar kölluðu borgina „Dodge City“. JÁRNINU FLEYGT I SJÓINN. Nú víkur sögunni aftur út í hið strandaða skip, þar sem eftir var að losa úr því þyngsta hluta farmsins, sem var járnið. Um þetta vandamál sagði stýrimaðurinn af Ægi svo í rétt- arhöldum út af björgun skipsins síð- ar um sumarið: „Þar sem auðséð var, að það mundi taka fleiri mánuði að losa það (járnið) allt saman á sama hátt og bifreiðarnar, þ. e. bjarga því upp á sandinn, var ákveðið að kasta því fyrir borð.“ Þar með var tekin sú sögulega á- kvörðun, sem áratug síðar hefur leitt til flókinna og harðsóttra málaferla, eins og kunnugt er. Verkið var þeg- ar hafið og á skömmum tíma var rúm- lega 5000 lestum af járni fleygt í sjó- inn báðum megin við skipið, og kem- ur það lítið við þessa sögu næstu 11 árin. Við losun þess kom einnig í ljós, að allmikil göt voru á skipinu og voru kafarar sendir til að finna þau og loka þeim til bráðabirgða. SKIPIÐ NÆST ÚT. Varðskipið Ægir bafði öðru hverju komið á strandstaðinn, meðan verið var að losa Persier. Hinn 7. maí kom skipið enn og átti nú að láta til skarar skríða um björgun. Hinn 14. maí var byrjað að toga í dráttarvír- ana og skrúfa skipsins jafnframt lát- in ganga aftur á bak. Næsta dag var enn togað, og tók þá skipið að breyf- ast, og á kvöldflóði þann dag náðist það á flot. Tveim tímum síðar var lagt af stað til RejTjavíkur, og voru allmargir skipsmenn af Ægi um borð í Persier auk áhafnar skipsins. Ægir sigldi á undan og var lína á milli skip- anna, aðallega til að stýra Persier, en vélar skipsins knúðu það áfram. Voru fjölmargar dælur hafðar í gangi, þar sem allmikill leki var í skipinu. Fjmst var siglt til Vestmannaeyja til að fá þar gert við dælu, en kómið til Reykjavíkur 17. ntaí og skipinu lagt á Kleppsvík og síðan í Gufunes- fjöru. Nú virtist björgun þesssa mikla og myndarlega skips giftusamlega lokið, en saga þess er þó ekki á enda. Það var skömmu síðar flutt í fjöruna við Klepp, og var œtlun- in að gera þar við það. En þar var því lagt þannig, að það stóð aðeins á frarn- og afturenda, en holt var undir miðju skipinu. Fór svo, að það þoldi ekki þungann og brotn- aði! fíeygðist skipið skammt fram- an við reykháf, svo að siglur sneru hver á móti annari. Var þetta sorg- legt slys eftir svo mikla fyrirhöfn við björgunina. Voru skemmdir svo alvarlegar, að skipið, sem liafði skömmu áður verið metið 2,5 milljónir, var nú ekki metið á meira en 115,000 kr. til niðurrifs! Þó tókst að gera við það að nokkru leyti, og vita menti hérlendis það síðast með vissu, að skipið var dregið áleiðis til Englands. Halda sumir því fram, að það hafi aldrei komizt þangað. Mikil málaferli voru sumarið 1941 út af björgun skipsins og var meðal annars um það deilt, hver ábyrgur bafi verið fyrir því, er það var flutt í Kleppsfjöru. Dæmdi sjó- og verzlunarréttur Skipaútgerð ríkisins 1000 000 króna í björgunarlaun, en útgerðin taldi sér bera meira og áfrýj- aði, og umboðsmenn tryggjenda töldu þetta alltof mikið og áfrýjuðu einn- ig. Dómur hæstaréttar var efnislega á sömu lund og undirréttardómurinn, nema hvað björgunarlaunin voru lækkuð niður í 500 000 krónur. ENDALOK SKIPSTJÓRANS. Ileusser skipstjóri dvaldist lengi (Frh. á bls. 21) 11

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.