Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1952, Blaðsíða 12

Samvinnan - 01.10.1952, Blaðsíða 12
Ostgerð og ostneyzla Eftir Jónas Kristjánsson, mjólkurbússtjóra íslenzkir bændur hafa frá land- námstíð verið miklir mjólkurfram- leiðendur, enda hafa mjólk og mjólk- urmatur skipað öndvegið í hinu dag- lega viðurværi íslendinga og gera það enn í dag. Menn og þjóðir hafa frá ómuna tíð þekkt og skilið hinn alhliða næring- armátt mjólkurinnar, ekki einungis fyrir börnin og annað ungviði, heldur og fyrir fullorðna á öllum aldurs- skeiðum lífsins. Þó hafa rannsóknir og þekking síðari tíma stutt þennan skilning og leitt enn betur í ljós, að mjólkin inniheldur öll nauðsynleg efni lífsverunum til vaxtar og þroska. Mjólkin sjálf hefur að vísu fremur lítið geymsluþol. En með ostgerðinni hafa löngu liðnar kynslóðir fundið sí- gilda aðferð til að geyma þurrefni mjólkurinnar í þéttara formi og handhægara til neyzlu á hverjum tíma, án þess þó að nokkuð verulega tapist af hennar dásamlega ljúffengi og mikla næringarkrafti. -- Tvö þúsund ára gömul rit sanna, að þekkingin um ostgerðina, og ostinn, sem afburðagóðan mat, var þá þegar kunn í Suður-Frakklandi, Ítalíu, Grikklandi, Egyptalandi og Gyðinga- landi. En ostgerð og ostneyzla hefur síðan breiðzt út frá þessum löndum um hinn gjörvalla heim. — Ostgerð tíðkaðist mjög á íslandi þegar á landnámsöld, en sennilega hefur ostframleiðslan verið nokkuð einhæf eða aðeins gerðir hinir svo kölluðu súrostar. Hleypi-ostgerðin mun hins vegar vera tiltölulega ung iðngrein hér á landi, en þó höfum við nú tileinkað okkur ofurlítið brot af þessum gömlu atvinnuvísindum, og með þeirri aðstoð, sem þekking og tækni nútímans veitir, framleiðum við nú hér á landi nokkrar ostteg- undir, sem geta verið fyllilega sam- keppnisfærar á heimsmarkaðinum hvað vörugæði snertir. Við nútíma ostgerð eru að vísu notaðar margvíslegar aðferðir, sem hér skal ekki gerð nein tilraun til að lýsa, en þó skal það tekið fram, að undirstaða góðrar ostgerðar er enn sem fyrr hreinlæti og nákvæmni og aftur hreinlæti og nákvæmni. — Til ostgerðarinnar er ætíð valin bezta mjólkin, sem völ er á, en til frekara öryggis er hún jafnan gerilsneydd áð- ur en osttilbúningur hefst. Lager- geymsla ostanna tekur nokkrar vik- ur eða nokkra mánuði, allt eftir teg- undum, en allan lagertímann þarf að hafa vakandi umsjón og hirðingu á hverjum osti, á líkan hátt og góð hús- móðir hefur jafnan vakandi augu með öllu er varðar hina daglegu matargerð á heimili hennar. Allir landsmenn geta nú fengið góðan ost til hinnar daglegu neyzlu. En vegna þess að ostgerðin, í núver- andi mynd, er ung hér á landi, þá skortir okkur fullan skilning á fæðu- Grcinarhöfundurinn i ostageymslu mjólkurbús KEA á Akureyri. 12

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.