Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1952, Blaðsíða 16

Samvinnan - 01.10.1952, Blaðsíða 16
Hvor sigrar, Eisenhower eða Stevenson? 50—60 milljónLr kjósa á mitli þeirra 5. nóvember Þriðjudaginn eftir fyrsta mánudag í nóvember næstkomandi kjósa Bandaríkjamenn sér forseta til næstu fjögurra ára. Þá lýkur margra mán- aða baráttu um það, hver skuli fara með æðstu völd í hinu mikla lýðveldi vestan hafs, en aðfaranótt miðviku- dags eða þann dag verður að öllum líkinduin Ijóst, hvernig dómur 50—60 milljón kjósenda hefur fallið. Verður það Eisenhower eða Stev- enson? Unr það geta fáfróðir jafnt sem sérfróðir spáð, og um það geta skoðanakannanir sagt fyrir. En revnslan hefur sannað áþreifanlega í Bandaríkjunum sem öðrum sönnum lýðræðislöndum, að það er erfitt að segja fyrir um hug fjöldans, og var- legast að trúa engu, fyrr en endanleg úrslit kosninganna eru kunn. KOSNIR KJÖRMENN. Þegar Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu, munu þeir að formi ekki kjósa á milli sjálfra forsetaefnanna, heldur kjósa kjörmenn, sem síðan kjósa forsetann. Þegar Bandaríkin voru stofnuð fyrir rúmlega hálfri ann- ari öld, höfðu höfundar stjórnarskrár ríkisins ekki þá trú á alþýðu manna, sem nú ríkir. Þeir ákváðu, að þing hinna einstöku fylkja skyldu kjósa kjörmenn, sem síðan kysu forseta, og voru þannig tveir milliliðir settir milli fólksins sjálfs og forsetans — sjálfsagt „til öryggis“. Síðar hefur þetta breytzt þannig, að nú kýs fólkið sjálft, en ekki fylkisþingin, kjörmennina, og nú er svo komið, að kjörmennirnir eru ekkert nema formsatriði, sem fyrr eða síðar verður breytt. Þó eru ekki sterkar líkur á, að forsetar verði í ná- inni framtíð valdir eftir beinurn at- kvæðafjölda, og eru til þess margar ástæður. Hvert ríki í Bandaríkjunum hefur jafn marga kjörmenn við forsetakosn- ingu og það hefur samanlagt öldunga- og fulltrúadeildarþingmenn. Nú er tölu fulltrúadeildarþingmanna breytt við hvert aðalmanntal á tíu ára fresti, svo að styrkur fylkjanna breytist nokkuð eftir íbúafjölda þeirra, en öld- ungadeildarþingmenn eru ávallt tveir, hvort senr ríkin eru stór eða smá. Af þessu leiðir það, að hugsanlegt er fyrir frambjóðanda að hljóta meiri- hluta kjörmanna, enda þótt hann hafi ekki meirihluta kjósenda. Þetta kom fyrir 1876, er Tilden hlaut 250 000 at- kvæðum meira en Heyes, en Heyes einum kjörmanni fleira. Þetta kom aftur fyrir 1888, er Harrison hlaut 233 kjörmenn gegn 168, en Cleveland 95 000 atvæðum meira. Enn getur þetta að sjálfsögðu komið fyrir. Lögum samkvæmt koma kjörmenn hvers ríkis saman og kjósa, hverjir í sinni höfuðborg, en atkvæðin eru síð- an send til Washington og talin há- tíðlega í þinginu. Ef enginn frambjóð- andi fær meira en helming kjörmanna, kýs fulltrúadeildin forseta úr hópi þriggja hæstu frambjóðenda, en þó þannig, að fulltrúar hvers fjdkis hafa saman eitt atkvæði. Hljóti enginn varaforseti meirihluta, kýs öldunga- deildin á sama hátt varaforseta, nema hvað allir deildarmenn hafa atkvæð- isrétt. KOSNINGAÞÁTTTAKA. Yfirleitt er þátttaka í kosningum í Bandaríkjunum minni en í flestum ríkjum Vestur-Evrópu. Höfuðástæð- an til þess er sennilega sú, að stjórn- nrálaþroski er ekki eins almennur eða mikill og í nágrannaríkjum okkar, en / áratugi liafa forsetaefni i Bandarikjunum hagað baráttu sinni á pann hátt, að ferðast um land■ ið i sérstalcri járnbrautarlesl og koma við i hverjum bœ. Fólhið safnast utan um lestina, og fram- bjóðandinn talar af afturpalli hennar. eins og Stevenson gerir á myndinni. 16

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.