Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1952, Side 18

Samvinnan - 01.10.1952, Side 18
Heimilistækninni fleygir fram Um frystikús á kverju. heimili — sjálfvirkar jDVottavélar og uppfDvottavélar — úrgangskvörn og fleiri sllk tæki Véltæknin hefur undanfarin ár haldið innreið sína á íslenzk heimili í allstórum stíl. Þvottavélar, hrærivél- ar, ryksugur, ísskápar og hvers kyns önnur tæki eru þegar til á þúsundum heimila í landinu, og létta þar störf húsmæðranna á hinn undraverðasta hátt, auk þess sem þau gera þeim ým- islegt kleift, sem áður var ekki unnt að gera, til aukinna þæginda, hrein- lætis eða ánægju. Því miður eru ekki til nákvæmar skýrslur um fjölda slíkra tækja á ís- lenzkum heimilum, og væri nógu fróð- legt að sjá þær, ef unnt væri að afla þeirra. En hitt er hverjum manni Ijóst, að þau heimili eru stórum fleiri, sem hafa lítið eða ekkert af heimilistækj- um, en hin, sem hafa mörg til umráða. Það er því full ástæða til að ætla, að innflutningur og framleiðsla slíkra tækja fari enn vaxandi hér á landi. Undanfarna mánuði hefur verið flutt inn í landið mjög mikið af heim- ilistækjum, og nú í fyrsta sinn er Ánœgð húsmóðir með hinn nýja steiharojn sinn. framboð þeirra svo mikið, að hægt er að fá þau fyrirvaralítið. En sá bögg- ull fylgir skammrifi, að tækin eru orð- in dýr. Valda því bæði hækkandi verð erlendis og sérstaklega hinn svonefndi bátagjaldeyrir, en fyrir hann eru vél- ar þessar keyptar. Þrátt fyrir þetta þykir Samvinnunni ástæða til að segja stuttlega frá helztu nýjungum á sviði heimilistækninnar, og hefur blaðið leitað til Braga Freymóðsson- ar, verkfræðings, og spurt hann spjörunum úr. „FRYSTIHÚS“ Á HVERJU HEIMILL Á sviði ísskápanna er það helzta nýjungin, að b.yrjað er að selja skápa, sem afhríma sig sjálfir, og þarf ekkert að hugsa um slíkt eins og á eldri skáp- unum. Er örlítið byrjað að flytja þessa skápa hingað til lands, en þeir eru enn sem komið er nokkru dýrari en hinir eldri. Þá hafa verið gerðar ýmsar útlitsbreytingar á skápunum og teknar upp smærri nýjungar eins og hillur, sem má draga út og fleira slíkt. En það er annað á sviði kæli- tækninnar, sem er athyglisvert fyr- ir íslenzk heimili, ekki sízt til sveita. Nú ryður það sér ört til rúms vest- an hafs, að heimili kauþa svonefnd- ar frystikistur („Home freezers“), en í þeim eru bæði frystir og geymsluhólf. Getur fólk hraðfryst flest matvæli sjálft í kistunum og geymt þau múnuðum saman, og reynist þetta að vonum skaþa skil- yrði til mjög hagkvæmra matar- kauþa. Hefur selzt geysilegt magn af þessum frystikistum í Bandaríkj- ttnum, og telja menn þar vestra, að kisturnar borgi sig á 1—3 árum. Flest þessi „heimilisfrystihús“ eru eins og kistur í laginu, og taka frá 9 til 30 rúmfet í geymsluhólfin. I fryst- inum má hraðfrysta matvæli í cello- phanumbúðum, og kælir hann þau ört niður í 20—30 gráðu frost. Þessi tæki fást nú einnig með sama ytra lagi og venjulegir ísskápar. Hefur rafmagns- deild SÍS flutt inn nokkur tæki af hvorri gerð frá Westinghouse verk- smiðjunum, en 16 rúmfeta kista kost- ar hingað komin um 13 000 krónur. Hér er rétt að geta þess, að nokkr- ir menn hér á landi hafa komið upp frystiklefum á heimilum sínum og hefur Sambandið útvegað þeim lítil frystikerfi frá hinum kunnu Sabroe verksmiðjum í Danmörku, sem fram- leitt hafa fjöldan allan af kælikerfum fyrir frystihús hér á landi. Hafa verið settir upp 6 og 10 rúmmetra klefar, og kosta tækin í þá minni um 6 000 krón- ur, en í þá stærri 7—10 000 kr. ÞVOTTAVÉLAR. Þvottavélin mun sennilega vera það tæki (utan eldavéla), sem mest er til af á íslenzkum heimilum, og er yfir- Þannig litur úrgangskvörnin út, neðan á vask- inum. 18

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.