Samvinnan - 01.10.1952, Page 23
ar og fleira. Var deildin hin fjölbreytt-
asta og snotrasta. Annars staðar á
sýningunni voru deildir frá Kaupjé-
lagi Arnesinga, sem sýndi starfsemi
hinna miklu bifreiðaverkstæða og
vélsmiðja á Selfossi, og deild frá efna-
gerð KRON, sem sýndi Record-vörur
og fleira.
Sýningardeild Sambandsins skar
sig nokkuð úr öðrum deildum Iðn-
sýningarinnar fyrir það, hve björt
hún var og létt yfir henni. Hlaut hún
mjög lofsamlega dóma flestra sýning-
argesta, og gaf glögga jdirsýn yfir
hinn fjölbreytta iðnað samvinnu-
nranna í landinu. Mestan þátt í að
setja hinn fagra og sérstæða svip á
sýninguna átti ungur Akureyringur,
Jón Karlsson, sem stjórnaði uppsetn-
ingu á deild Sambandsins. Stundar
Jón nám í húsgagnateikningu í Sví-
þjóð, en hefur einnig kynnzt nokkuð
sýningum þar ytra og tekið þátt í
undirbúningi sýningardeilda á stórum
verzlunarsýningum þar. Var Jón
staddur hér heima í sumarleyfi, er
hann tók að sér að stjórna deild Sam-
bandsins, en hann er nú farinn til
Stokkhólms til að halda áfram nám-
inu. Jón teiknaði einnig húsgögnin í
Sambandsdeildinni, en þau hafa vak-
ið mikla athygli. Auk Jóns annaðist
sérstök nefnd allan undirbúning og
skipulag sýningarinnar fyrir SlS, en
formaður hennar var Harry Fredrik-
sen, framkvæmdastjóri iðnaðardeild-
ar SÍS, og aðrir nefndarmenn Erick
Hoppe, arkitekt, Valgarð Olafsson,
A þessu sumri og hausti hafa verið
haldnar á sjö stöðum hátíðasamkomur
í tilefni af 50 ára afmæli SÍS, og er þá
ekki meðtalin hin mikla afmælishátíð
Þingeyinga á Húsavík, sem getið var í
síðasta hefti. Á þessum samkomum
hefur verið saman kominn mikill
fjöldi manna, allt upp í 1250, en kaup-
félögin á hinum ýmsu stöðum hafa
gengizt fyrir samkomunum og annazt
undirbúning þeirra í samvinnu við
fræðsludeild SÍS.
Samkomurnar voru haldnar á eftir-
Jón Karlsson,
scm var framkvœmdastjóri SlS-deildar
Iðnsýningarinnar 1952.
fulltrúi í útflutningsdeild, Benedikt
Gröndal, ritstjóri, og á Akureyri Arn-
þór Þorsteinsson, verksmiðjustjóri.
Framkvæmdastjóri Iðnsýningar-
innar allrar var Helgi Bergs, verk-
fræðingur SlS, en hann fékk leyfi frá
störfum í Sambandinu á meðan. Arki-
tekt var Skarphéðinn Jóhannesson.
töldum stöðum: Á Sveinseyri í Tálkna-
firði, en að þeirri samkomu stóðu
kaupfélög Arnfirðinga, Tálknfirðinga,
Patreksfjarðar og Rauðasands; að
Núpi í Dýrafirði, en þar stóðu fyrir
kaupfélög ísfirðinga, Súgfirðinga, Ön-
firðinga og Dýrfirðinga; að Árnesi í
Strandasýslu á vegum Kaupfélags
Strandamanna; í Grindavík á vegum
Kaupfélags Suðurnesja; að Skógum
undir Eyjafjöllum að tilhlutan kaup-
félaga Rangæinga og Skaftfellinga, og
loks að Reykjaskóla í Hrútafirði fyrir
atbeina Kf. Hrútfirðinga. Loks var
haldin liátíðarsamkoma í Bifröst á
samvinnudaginn.
Samkomur þessar voru fjölsóttar, og
voru viðstaddir frá 200 upp í 1250 (að
Skógum), og voru hvarvetna fluttar
ræður, lesin frumort kvæði og marg-
víslegt annað gert til skemmtunar.
Munu tvö af kvæðum þeim, sem fram
komu að Núpi, birt síðar í Samvinn-
unni. Á hinni fjölmennu samkomu að
Skógurn var samþykkt með lófataki
svofelld orðsending:
„I tilefni af hinum merku tímamót-
um frumherja samvinnusamtaka í
landinu, og með virðingu og þakklæti
hinna mörgu, er notið liafa reynslu og
baráttu þeirra, er kjark höfðu til að
reisa merki samvinnunnar á íslandi og
bera það fram til sigurs, senda sam-
vinnumenn í Vestur-Skaptafellssýslu
og Rangárvallasýslu, saman komnir á
minningar- og fagnaðarsamkomu í
béraðsskólanum að Skógum undir
Eyjafjöllum, hinn 7. september 1952,
Kaupfélagi Þingeyinga — vegna braut-
ryðjendastarfs þess og ötuls starfs um
70 ára skeið í þágu samvinnunnar á
íslandi — og Sambandi íslenzkra sam-
vinnufélaga — vegna 50 ára starfsemi
þess og forustu í samvinnusamtökum
landsmanna, samfara ómetanlegri að-
stoð og fyrirgreiðslu við hin dreifðu
sambandsfélög út um byggðir landsins
— sínar hugheilustu kveðjur, þakklæti
og heilla óskir. Sú er ósk vor, að eldur
samvinnuhugsjónarinnar megi á kom-
andi tímum svo sem hingað til, við-
halda vexti og heilbrigðri þróun sam-
vinnusamtakanna á sem flestum svið-
um þjóðlífsins, til blessunar fyrir
aldna og óborna.“
----- —• • •»--------
I síðustu heimsstyrjöld voru
nokkrar flugkonur teknar í þjón-
ustu enska hersins. Þegar ein þeirra,
Jane Davis, átti von á barni, var
henni bannað að fljúga. Hún mót-
mælti þessu og taldi, að engin lög
bönnuðu flugmönnum að stjórna
flugvél, þótt þeir væru með barni.
Loks tókst þó að finna ákvæði í
reglugerð, sem útilokaði, að hún fengi
að fljúga lengur. Ákvæði þetta var á
þá leið, að flugmenn í þriðja flokki
mættu ekki flytja farþega!
Fjölsóttar samkomur kaupfélag-
anna í tilefni 50 ára afmæli S.I.S.
23