Samvinnan - 01.08.1957, Síða 15
föður síns, þegar hann lauk námi ár-
ið 1938. Þeir ráku síðan verkstæðið
saman til 1951. Um leið og Benedikt
stofnaði verkstæðið hóf Guðmundur
nám hjá honum. Snemma á stríðsár-
unum byggðu þeir saman húsið á
Laufásvegi 18 og hófu framleiðslu þar
árið 1943.
Þegar þeir bræður höfðu lokið námi
og lært það sem völ var á hér, héldu
þeir til frekara náms á Norðurlöndum.
Það nám virðist hafa orðið mjög ár-
angursríkt. Norðurlandabúar og þó
sérstaklega Danir eru álitnir fremstu
húsgagnasmiðir heimsins. Húsgögn
eru talsverð útflutningsframleiðsla hjá
þeim og er til dæmis mikið selt til
Bandaríkjanna. Þeir voru brautryðj-
endur í notkun ýmissa harðviðarteg-
unda og einnig hafa þeir gengið á
undan með form, sem oft minna tals-
vert á nútíma höggmyndalist.
Árið 1949 fór Guðmundur til Dan-
merkur til náms í listiðnaði. Jón fór
árið eftir til Norðurlandanna og
kynnti sér nýjungar í húsgagnagerð.
Tveim árum síðar fóru þeir bræður
saman til Danmerkur og Svíþjóðar í
kynnisför og einnig til efniskaupa.
Þeir telja mikil vandkvæði á því að
fá gott efni, en nýtízku húsgagnagerð
byggist einmitt á góðu efni. Erfitt er
að fá leyfi fyrir efni frá þeim lönd-
um, sem hafa það bezt.
Helztu viðartegundir, sem þeir
nota, eru eik og teak, en auk þess nota
þeir mahogny, hnotu, birki og álmvið.
Bezta húsgagnaeikin er janönsk.
Danir flytja mikið inn af henni og
hingað er hún fengin frá Danmörku.
Þeir fá teakið líka þaðan, en það er
upprunnið frá Síam.
Eftir Norðurlandaförina 1952
breyttu þeir verzluninni allmikið. Áð-
ur smíðuðu þeir eftir pöntunum,
meðal annars innréttuðu þeir hæsta-
rétt. Eftir breytinguna hafa þeir ein-
göngu smíðað nýtízku húsgögn, sem
seld eru þar í verzluninni. Um það
leyti fóru þeir einnig að verzla með
ljósaútbúnað, finnska keramik, list-
(Framh. á bls. 87)
Ilér að ofan eru sýnishom af húsgagnafram-
leidslu þeirra brceðra á Laufásvegi 18. Takið
eftir stólunum á neðstu myndinni, sem hægt er
að raða saman og búa til sófa úr. Þeir geta eins
staðið einir út af fyrir sig. Sófaborðið er úr teak
með messinghólkum neðst á fótunum. A þessum
stólum er aðallega einlitt Gefjunaráklœði.
SAMVINNAN 15