Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1959, Síða 4

Samvinnan - 01.03.1959, Síða 4
 Komlft víð hjá K á Reyðarfirði . - *... w, m m | W. w |p ' [ij h"" & - f; líi ' s A torg-inu framan við verzlunarhús Kaupfélags Héraðsbúa á Búðareyri. Fljótsdalshérað er grösugt og fagurt undirlendi. Þar hefur yfirleitt verið góður búskapur. enda landkostir með betra móti. Af þjóðfrægum býlum má nefna Skriðuklaustur í Fljótsdal. skóla- setrið Hallormsstað, prestssetrið Valla- nes, stórbýlið Egilsstaði, skólasetrið Eiða, Aðalból í Hrafnkelsdal, Hjaltastað í Hjaltastaðaþinghá, Hofteig í Jökuldal og fleiri vel kunna bæi mætti nefna. A þessum slóðum hafa búið merkir bændur. þjóðkunnir kennimenn og skáld. Páll Ólafsson, skáld, bjó á Hall- freðarstöðum í Hróarstungu, en forfeð- ur hans bjuggu á Kolfreyjustað í Fá- skrúðsfirði og voru skáldmæltir vel. Séra Stefán Ólafsson, skáld, bjó í Valla- nesi og Gunnar Gunnarsson bjó á Skriðuklaustri síðastur skálda. Fljótsdalshéraðið hefur verið nokkuð einangrað, hvað samgöngur snertir fram til þessa. Hár fjallgarður skilur Aust- fjarðahafnirnar frá sjálfu héraðinu. Að- alleiðirnar, um Fjarðarheiði til Seyðis- fjarðar og um Fagradal til Reyðarfjarð- ar, eru eftir fjallaskörðum, sem fljótlega verða ófær í snjóum. Vegurinn norður vfir Jökuldalsheiði og Fjallasveit teppist að sjálfsögðu fljótlega eftir að vetur gengur í garð. Tækni nútímans hefur ráðið bót á þessu og rutt úr vegi verstu hindrun- unum. Stórkostlegastan þátt í því eiga flugsamgöngumar. Nú er svo komið að stór hluti af flutningum á þessar slóðir er með flugvélum Flugfélags Islands, sem hefur flugáætlun á Egilsstaði. Gildir það bæði um vöru- og fólksflutn- inga. í öðru lagi hafa menn nú til um- ráða stórvirk tæki til þess að ryðja fjall- vegina og eins til þess að brjótast vfir þá í þæfingsfærð. Þetta hefur haft mikla þýðingu fyrir Kaupfélag Héraðsbúa, sem staðsett er á Búðareyri við Reyðarfjörð. Segja má. að staðurinn sé ekki vel valinn, þegar Þorsteinn Jónsson, kaupfélagsstjóri fylg- ist með uppskipun úr Dísarfelli á bryggj- unni á Bakkagerðiseyri. 4 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.