Samvinnan - 01.03.1959, Page 5
íelagssvæðið er haft í huga. Eins og á
stóð. þegar félagið var stofnað, árið
1909, voru samgöngurnar við umheim-
inn eingöngu af sjó og þess vegna eðli-
Jegt, að nærtækasti hafnarstaðurinn
vrði fvrir valinu. Nú hefur verið stofn-
nð útibú frá kaupfélaginu á Egilsstöð-
um og er stórum auðveldara fyrir Hér-
aðsbúa að sækja verzlun þangað.
Félagssvæði Kaupfélags Héraðsbúa
nær yfir 12 hreppa í tveim sýslum.
Sennilega nær félagssvæðið yfir fleiri
lireppa en í nokkru öðru kaupfélagi, að
undanskildu Kaupfélagi Arnesinga, sem
nær yfir 18 hreppa. Vegalengdir eru þó
mun lengri á Héraði og kemur þar til
staðsetning sjálfs kaupfélagsins. Frá
Reyðarfirði eru 146 km til þess bæjar,
sem lengst er í burtu á félagssvæðinu,
en það er Aðalból í Hrafnkelsdal.
Alöðrudalur á Fjöllum er einnig á félags-
svæðinu og þangað eru tæpir 140 km.
Fyrst eftir að kaupfélagið var stofnað.
sóttu bændur vörur til Reyðarfjarðar á
hestvögnum og fóru þá Fagradalsveg.
Vegalengdin milli Reyðarfjarðar og Eg-
ilsstaða er 35 km. Kaupfélagið á snjóbíl
og tvo tíu hjóla trukka og með þeim
annast það flutninga í ófærð. Kaupfé-
lagið annaðist áður flutninga til félags-
manna, en nú hafa bændur tekið þá í
sínar hendur að mestu.
Bændur eru óðum að stækka bú sín.
Meginbústofninn er sauðfé, en bændur
gera sér vonir um að geta drýgt tekjur
sínar með mjólkursölu í mjólkurbúið
nýja, sem Kaupfélag Héraðsbúa er að
koma upp á Egilsstöðum.
Síðastliðið haust var slátrað 44.144
dilkum og fullorðnu fé í sláturhús-
um Kau])félags Héraðsbúa. .Meöal-
þungi dilka var 14,33 kg. Árið áður var
sláturtalan 36.307 og meðalþunginn 15.30
kg. Fjárflestu einstaklingarnir hafa um
400 fjár, en yfirleitt eru búin of lítil til
að standast mikla fjárfestingu. véla-
kaup, bílakaup og bvggingar. Lítið er
um hlunnindi, selveiði á eiuni jörð. en
hvergi dúntekja né laxveði. Menn
stunda allmikið vinnu frá heimilum
sínum, til dæmis hefur undanfarið verið
mikil eftirspurn eftir vinnu við Gríms-
árvirkjunina. Reyðfirðingar hafa jafnan
atvinnu þar í plássinu, en yfirleitt má
segja. að bændur drýgi tekjur sínar all-
mikið á þennan hátt.
Búðareyri við Reyðarfjörð.
Þorpið heitir Búðareyri. en venju-
lega er það kallað „Reyðarfjörður". eða
..á Reyðarfirði". Ibúar eru 440 talsins,
eða nálægt 100 heimili. Undanfarið hef-
Séð upp Lagarfljót frá Egilsstöðum.
Búðareyrarkauptún stendur inn við batn Reyðarfjarðar. Eignir kaupfélagsins eru
neðst á eyrinni. Ofarlega til hægri er nýja félagsheimilið.
Frá Egilsstöðum. Bærinn stendur niðri við fljótið. Næst til vinstri er sláturhús
kaupfélagsins, þá mjólkursamlagið og þar fyrir neðan er útibú kaupfélagsins.
SAMVINNAN