Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1959, Page 11

Samvinnan - 01.03.1959, Page 11
neinu.“ Lee neitaði að svara frekari fyr- irspurnum. Nokkrum dögum seinna voru íbúar þorpsins vaktir snemma að morgni og þeim sagt að koma saman í hóp á hæð nokkurri í grennd við þorpið. Síðan fóru kommúnistamir um þorpið og létu greipar sópa í hinum 170 húsum þess. Þeir söfnuðu öllum búsáhöldum á trukka, en kveiktu í húsunum jafnótt og því var lokið. Á skammri stundu sáu íbúarnir þorpið þeirra verða að engu. Að svo búnu sögðu Lee Tak og hjálp- armenn hans fólkinu að ganga til borg- arinnar Tam Sim. Fólkið gat ekki ann- að en hlýtt og gekk þögult til borgar- innar. Sjúkum og lasburða var hjálpað. Þegar kom að úthverfum borgarinnar borgarinnar undir rökkrið, var numið staðar við hermannaskála úr bambus og timbri. Hér var einn af mörgum aðset- ursstöðvum Li Hing kommúnunnar. Kommúnistinn Lee byrjaði strax að gefa fyrirskipanir. í fyrsta lagi voru öll börn, nema korn- börn á brjósti, tekin af mæðrum sínum og komið fyrir í sérstökum hermanna- skála. Gamalt fólk og lasburða var látið í svonefnt „Hamingjuhús“. Þar skyldi það vinna að matartilbúningi og léttari störfum. Konur voru látnar í sérstaka skála og karlar í aðra. Fullhraustu fólki, konum jafnt sem körlum, var tilkynnt, að það yrði verkafólk. Yfir hvem skála var settur kommúnisti til stjórnar. Snemma morguns var flautað og öll- um skipað í raðir og var nú æfður vopna- burður um stund. Síðan var öllum skip- að á akrana og unnið sleytulaust til kvölds, með 15 mínútna matarhléi. Við kvöldmáltíðina ríkti þögn. Allir voru uppgefnir. Síðan var eiginmönnum sagt, að þeir gætu ekki verið hjá kon- um sínum. Konum var sagt, að þær gætu ekki fengið að sjá börnin. Aftur var flautað. Rafmagnsljós höfðu verið sett upp og dauðþreytt fólkið hélt enn á ak- urinn. Um miðnætti var loks gengið til skálanna. Menn máttu baða sig í ánni ef þeir vildu. Annars beint í bælið. Eftir fjóra og hálfa klukkustund var aftur flautað og þannig gekk það í þá tvo mánuði, sem Chang var meðlimur kommúnunnar. Hver dagurinn var öðr- um líkur og unnið alla sjö daga vikunn- ar. Stundum eftir kvöldmat var gefinn kostur á að sjá kvikmynd, eða óperu- flokk, sem var á ferðalagi. En þann tíma varð að bæta upp með eftirvinnu eftir miðnætti. Sjaldan kom það fyrir, að fólk færi á þesskonar skemmtanir. Svo voru pólitískir fundir — stundum þrír í viku. Fólkið hlakkaði til þeirra, því þá gat það hvílst, en kæmi það fyr- ir, að einhver þætti ekki sýna nægilega eftirtekt, voru launin hans lækkuð og var þó ekki úr háum söðli að detta í þeim efnum. Á fundunum var skýrt frá því, að kommúnurnar mundu gera Kína sterkt og fært um að sigra hina amer- ísku féndur, sem hefðu í hyggju að ráð- ast á landið. Stundum komu pólitískir leiðtogar á fundina og hengdu upp ,,Ameríkana“ úr pappír. Síðan var skot- ið á pappírsmanninn með riffli. Kommúnan var annars mjög lík öðr- um slíkum um allt landið. Meðlimirnir voru meira en 10 þúsund. Flestir unnu við akuryrkju, en margir unnu við vega- gerð. Vinnuharkan var takmarkalaus við hvort sem var. Eina hvíldin var á þjóðlegum helgidögum og þá var áskip- að allan daginn með pólitískum fundum, áróðurskvikmyndum og skrúðgöngum. Enginn fékk að vera út af fyrir sig — nema hann væri giftur. Giftur maður fékk að vera í örfáar mínútur einn með konunni sinni, hálfs- mánaðarlega. Eftir kvöldmat á laugar- dögum urðu allir að fara úr skálunum. Giftur maður fór á tiltekinn stað með konunni sinni „á sínu laugardags- kvöldi“ og á eftir varð konan að gefa „heilbrigðisnefndinni“ skýrslu. Sá tími, sem eiginmaðurinn var einn með kon- unni var nákvæmlega skráður í bók. Helzt máttu þau ekki vera lengur en 45 mínútur og ef þau notuðu allan þann tíma, varð konan að skýra fyrir heil- brigðisnefndinni, hversvegna þau hefðu verið svona eigingjörn og hugsunarlaus um annara hag. Á hverju laugardags- kvöldi var löng biðröð af hjónum fyrir utan hvern hermannaskála, sem biðu eftir því, að röðin kæmi að þeim. í bið- röðunum var ekki sagt eitt orð, hvorki í gamni né alvöru. Það var hræðileg nið- urlæging. Sjaldan var nóg að borða. Fólkinu var sagt, að það gæti keypt sér aukabita, en það hafði bara ekki peninga til þess. Sem verkamaður við akuryrkju hafði Chang 1.20 dollara á mánuði, en það er eftir ísl. gengi 19.60 kr. Kunningi hans, að nafni Tong Nan-liang, vann við vega- gerð og hafði 80 cent á mánuði, sam- svarandi 13.05 ísl. kr. Þegar leið að vetri og kólnaði í veðri, var fólkinu kalt við vinnuna, því flestir höfðu aðeins bómullarföt. Yfirmenn sögðu fólkinu, að „bráðum" mundi það fá tvenn föt á ári, önnnur hlýrri og ætl- uð til vetrarnotkunar. Þegar Chang flúði, seint í nóvember, voru þau enn ekki komin. Ástandið versnaði smám saman. Móð- ir Tongs var gömul og vart til vinnu. Hún var látin vinna 12 tíma á dag í „hamingjuhúsinu" og kvartaði mjög. Hún fékk að sjá son sinn eftir mánuð og bað hún hann þess „að flýja úr þessu víti á jörðu“. Stuttu seinna var Tong hýddur fyrir að hafa tekið á móti sendi- bréfi frá eldri bróður sínum í Hong Kong. Honum var sagt, að ekki mætti »-► Þegar krakkamir komast á legg, Ijær kommúnan þeim skóflu eða haka. Hér sjást börn grafa skipaskurð við Peking. Æsingafundur gegn Ameríkönum í Shanghai. Reynt er að hræða fólkið með því, að Ameríkanar ráðist á landið. Konur í bómullarfötum frá ríkinu mylja járngrýti fyrir ríkið. SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.