Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1959, Page 12

Samvinnan - 01.03.1959, Page 12
Efni: ca. 100 gr. mjtíg gróft ga n. Prjónar nr. 8. Byrjið að neðan og fitjaðar upp 85 1. Prjónið 1 p. (á réttunni) þannig: 2 r.. lyftið næstu 1. af p. eins og snúinni 1. án þess að prjóna hana, með bandið á balc við þessa 1. Héðan í frá er þetta merkt eins og 1 1. Iaus fram af. * 4 r., 1 laus fram af * endurtak frá * til * p. á enda, endið með 2 r. — 2. p.: 2 r., 1 sn. * 4 r., 1 sn. Endurtak frá * til * prjóninn á enda. endið með 2 r. Prjónið þessa 2 p. tvisvar í viðbót. — 7. p.: 2 r., 1 laus fram af * 1 r., 2 r. sm. 1 r.5 1 1. laus fram af *, endurtak frá * til * p. á enda, endið með 2 r. — 8. p.: 2 r., 1 sn. * 3 r., 1 sn., * endurtak frá * ti * prjóninn á enda, endið með 2 r. — 9. p.: 2 r. sm., 1 1. laus af, * 2 r. sm., 1 r., 1 laus fram af, * endurtak frá * til * prjóninn á enda, endið með 2 r. sm. — 10. p.: 1 r? 1 sn., * 2 r., 1 sn. * endurtak frá * til * prjóninn á enda, endið með 1 r. — 11. p.: Prjónið 2 sinnum í fyrstu b, 1 1. laus fam af, * pjónið 2 sinnum í næstu 2 1., 1 1. Iaus fram af*, endurtakið frá * til * prjóninn á enda, endið með að prjóna 2var f síð- ustu 1. — 12. p.: eins og 2. p. — 13. p.: eins og I. p. — Prjónið síðustu 2 p. fjórum sinnum í við- bót, þvínæst eru prjónaðir 22 p. eins og 2. p. — 23. p.: eins cg 7. p. — 24. p.: eins og 8. p. — 25. p.: eins og 9. p. — 26. p.: eins og 10. p. — 27. p.: 1 r., 1 I. laus fram af, * 2 r. sm., 1 1. laus af*, endurtak frá * til * p. á enda, endið með 1 r. Prjónahúfa — 28. p.: *1 r., 1 sn.*, endurtak frá * til * prjón- inn á enda, endið með 1 r., * — 29. p.: *1 r., 1 1. laus fram af*, endurtak frá * til * prjóninn á enda, endið með 1 r. — Prjónið síðustu 2 p. tvisvar í viðbót, þvínæst er 34. p. prjónaður eins og 28. p. — 35. p.: prjónið 2 1. r. sm prjóninn á enda. — 36. p.: sn. 37. p.: prjónið 2 r., 1. sn. prjóninn á enda. — 38. p.: sn. — Slítið garnið frá, dragið það í gegnum lykkjurnar sem eftir eru og gangið vel frá endanum. Samsetning: saumið húfuna sarnan á röngunni. Snúið eða heklið granna snúru úr garninu og drag- ið hana í gegnum lykkjurnar ca. 5 cm. frá neðri brúninni- Dragið húfuna saman, svo hún falli vel að höfðinu. Bindið slaufu, sem festist, svo hún rakni ekki upp. *) r. == slétt lykkja. — sn. = snúin Iykkja. hann heldur skrifa undir nokkrum kringumstæðum. Chang og Tong fengu tækifæri til að talast við og þá ákváðu þeir að flýja. Þeir náðu í bát að nóttu til og flúðu i honum. Fiskimaðurinn Kwei hafði svipaða sögu að segja. Hann varð að láta komm- únuna hafa allan aflann. Bannað var að halda eftir fiskum til eigin viðurværis og hegning fyrir það var þrælkunar- vinna í Vestur-Kína. Kona Kweis sýndi mótþróa, þegar embættiskona komm- únunnar kom til þess að taka börnin. Þá Víða eru sett upp skilti þess efnis, að konur hafi annað að starfa en ala upp börn. Það er verkefni ríkisins. sagði embættiskonan: „Hvað er að þér? — Elskarðu börnin þín meira en föður- landið? Við kærum okkur ekkert um slíka eigingirni." Fyrst fengu hjónin að búa saman í bátnum eins og þau og aðrir fiskimenn voru vanir að gera. Siðar rak að því, að þau áttu að búa aðskilin í hermanna- skálum. Gagnstætt öllum lögum fór konan inn í barnaskálann og komst að raun um að börnin hennar og mörg önnur voru veik. Hún fékk að hafa þau hjá sér á meðan og þá notaði fjölskyld- an tækifærið og flúði á bátnum. Það er fróðlegt í þessu sambandi að vita hvað þeir í Kremi segja um þessa hluti. Bandaríski þingmaðurinn Hump- hrey var nýlega á ferð í Moskvu og átti langt tal við Chrushcev, meðal annars um kommúnurnar í Kína. „Þær eru gam- aldags,“ sagði Chrushcev um kommún- urnar, „við reyndum þetta hérna eftir byltinguna. Þær gáfust ekki vel. Ríkisbú og samyrkjubú hafa reynzt miklu bet- ur. — Þú veizt, senator," sagði hann ennfremur, „á hverju kommúnur eru byggðar. — Grundvallaratriðið er: „Menn framleiða eftir hæfileikum og bera úr býtum eftir þörfum." — Þú veizt, að það gengur ekki til lengdar.“ Indverskur menntamaður, Dr. Sripati Chandrasekhar, ferðaðist nýlega um Kína og skrifaði nokkru seinna grein í blaðið Indias Statesman. Þar sagði hann: „í kommúnunum eru einstakling- arnir álika réttháir og dýr í dýragarði. Mismunurinn er þó sá, að dýrin eru ekki ofurseld þrældómi." Dr. Sripati sagði fréttamönnum, að hann hefði ferðazt um fjórar kommúnur og ekki séð eitt einasta glaðlegt andlit. „Það var eins og fólkið bæri óbærilegar byrðar,“ sagði hann. Hvað segja íslenzkir kommúnistar? Jú, þeir hafa hrifizt sem vonlegt er. Þann 11. febrúar 1959 var grein í Þjóð- viljanum um kommúnurnar í Kína. Þar er vitnað í ræðu, sem Brynjólfur Bjarna- son flutti á fundi hjá Sósíalistafélagi Reykjavíkur. Þar segir hann: „Ég efast um, að nokkursstaðar í heiminum sé jafn ánægt fólk. Það leyn- ir sér ekki að hér er þjóð, sem mikil hamingja hefur fallið í skaut. Hér hefur eitthvað stórkostlegt gerzt. Þessu fólki hefur verið fluttur mikill fögnuður.“ — „Fyrir augum fólks er eins og mikið kraftaverk hafi gerzt. Þetta er skýring- in á lífsgleði kínversku þjóðarinnar, bjartsýni hennar, sjálfstrausti og stór- hug, eldmóði hennar og siðferðisstyrk, óbilandi trausti hennar á stjórn sinni og forustuflokki, Kommúnistaflokknum, og því þjóðskipulagi, sem á örskammri stund hefur valdið slíkum umskiptum, socialismanum." Hvorum á svo að trúa, Brynjólfi eða flóttafólkinu, sem flúði föðurland sitt? Mikoyan, varaforsætisráðherra Rússa, sagði í Bandaríkjaför sinni, að það væri fjarlægt takmark, að hver verkamaður i Rússlandi ætti bíl. Eftir því að dæma var það þó takmark. í Kina er það tak- mark, að enginn eigi neitt, ekki einu sinni fötin, sem hann gengur í. Gula hættan er meiri en nokkru sinni áður. Kínversku kommúnistaforingjana dreymir um mikinn herstyrk og kjarn- orkusprengjur eru helgasta takmarkið. Rússar hræðast, að skepnan rísi gegn skapara sínum, þegar hún hefur mátt til. Kannske hinn vestræni heimur og Rússland eigi eftir að standa saman gegn þeim vesalings fátæku, kínversku börnum, sem í dag er kennt að hata — umfram allt. G. S. SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.