Samvinnan - 01.03.1959, Qupperneq 16
arbrögð og hefur veitt kristniboðinu öfl-
ugt viðnám og afsvar. Einnig þessi trú-
arbrögð eiga nú mjög í vök að verjast,
og sum hinna æðri þeirra eiga stórmikla
trúararfleifð sameiginlega kristnum
mönnum. Hér þarf nýja starfsaðferð. Ný
samtök ábyrgra, hleypidómalausra og
viturra manna hinna æðri trúarbragða
mannkyns, til þess að verjast sameigin-
legum óvini: þeirri flóðöldu guðvana vél-
menningar og lítilsvirðingar á frelsi ein-
staklingsins, mannhelgi og gildi persónu-
leikans, sem atómöld er albúin að velta
yfir allar þjóðir, austurs og vesturs.
Maðurinn sem samfélagsvera, í órofa
samfélagi við aðra menn og ábyrgur fyr-
ir Guði. Jarðlífið í órofa sambandi við
það, sem á eftir því kemur. Þá breytingu
þarf kirkjan að gera á starfsháttum sín-
um, að þessi verði þungamiðja alls, sem
hún kennir, en margt annað falli úr
kenningu hennar burt, sem búið er að
þjóna markmiði sínu, er ekki lífrænt
lengur og nær hvorki eyrum, hug né
hjarta mannsins á atómöld.
26. febr. 1959
Jón Auðuns.
Ezra Pétursson
læknir
Svar mitt er já.
Með spurningunni mun hér vera átt
við hina lútersku ríkiskirkju Norður-
landa.
Boðskapur kirkjunnar um kærleika og
miskunn guðs til manna, eins og hann
birtist þeim í orðinu sem varð hold „og
hann bjó með oss fullur náðar og sann-
leika“, er.hin æðsta vizka. Sá eilífi sann-
leikur fellur aldrei úr gildi, og getur ekki
orðið úreltur.
Öll þekkingarleit manna, framþróun
og framfaraviðleitni miðar að því að op-
inbera þeim þennan sannleika og gera
þeim hann skiljanlegan, og til hans
liggja allar hinar mismunandi brautir
vísindalegrar þekkingar, lista og trúar-
bragða.
Eilífðareðli sínu samkvæmt hefur
hann alltaf verið til og þessvegna er ekki
þörf á því búa hann til, finna upp eða
uppgötva með visindalegum eða kirkju-
legum starfsaðferðum.
Hann skín og Ijómar í dýrð sinni af
sjálfum sér, og ekkert getur endurbætt
hann, fegrað eða prýtt. Það er því að
færa skörina upp í bekkinn ef leitazt er
við að styðja hann eða styrkja með vís-
indalegum eða hagfræðilegum rökum,
eða betrumbæta með andahyggju eða
guðspeki.
Kirkjan er hinsvegar mannlegt starfs-
tæki til þess að flytja þessa sálarorku
niður á jörðina til mannanna. Hún er því
háð tímanlegum og mannlegum tak-
mörkum og þeim umbreytingum sem
þeim eru samfara. Ef hún ekki skilur
sinn vitjunartíma, verða starfsaðferðir
hennar úreltar.
Hún á að vera æðst og fullkomnust
allra mannlegra stofnana, hafin hátt yf-
ir dægurþras í fullkomnu frelsi og sjálf-
stæði sínu, öllum óháð og engum undir-
gefin.
Það er hennar aðalsmerki og frumburð-
arréttur. Trúi hún á sjálfa sig og skap-
ara sinn til þess að sjá sér farborða,
verður hún öflug og sterk, eins og
kaþólska kirkjan og aðrar óháðar frí-
kirkjur. Treysti hún ekki á Hann, heldur
selji ríkisvaldinu frumburðarrétt sinn
fyrir brauð og baunarétt eins og Esaú
forðum, lítilsvirðir hún frumburðarrétt
sinn og trú um leið og glatar trausti
safnaðanna, eins og átt hefur sér stað
nú á Norðurlöndum.
Ríkiskirkjan hér á landi er veik og
vanmáttug; kirkjurnar standa auðar og
tómar eða tæplega hálffullar þegar bezt
lætur, að stórhátíðum og jarðarförum
undanskildum. Það ætti að vera æðsta
takmark og keppikefli æskublóma lands-
ins að búa sig með guðfræðinámi undir
það að gerast þjónar hennar.
í stað þess hefur aðsókn að guð-
fræðideild háskólans hrakað ár frá ári.
í fyrra var aðeins einn innsækjandi,
og síðastliðið haust raunverulega enginn.
Sá eini innsækjandi, sem lét þá skrá sig,
mun ekki geta hafið nám þar fyrr en á
næsta ári, að sögn prófessoranna þar
sjálfra.
Aumara getur þetta ekki orðið. Á sama
tíma sækja fleiri hundruð stúdenta í
hinar deildir háskólans.
í þessu felst engin gagnrýni á kirkjuna
sjálfa eða á prestastétt landsins. Þeir
vinna flestir eins vel og hægt er við þau
skilyrði sem fyrir hendi eru, og þó nokkr-
ir betur en búast mætti við.
Það er líkast því sem íslenzka kirkjan
liggi í dvala í einhverjum sjúklegum
svefnhöfga. Safnaðarmeðlimirnir og
prestarnir þurfa að sameinast um það
að drepa hana úr drórna, og leysa hana
úr þeim ánauðarböndum, sem hún hefur
sjálf ofið sér. Þá getur hún risið upp að
nýju, endurfædd, óháð og sterk.
Rvík 15.2. 1959
Ezra Pétursson.
Höfuðatriði
kenningar-
innar standa
í fullu gildi.
Gunnar Arnason
sóknarprestur, Kópavogi
Áður en þessu er svarað verður að
gera grein fyrir eðli og ætlan kirkjunn-
ar annars vegar, en höfuðeinkenni at-
ómaldarinnar hins vegar. Annars væri
svarið órökstutt og gæti virzt út í hött.
Kirkjan er afmarkað trúfélag með á-
kveðinn höfuðboðskap. Þessi staðreynd
haggast ekkert við þá almennu vit-
neskju, að hún er margklofin í hinar og
þessar deildir, sem hver um sig eru brytj-
aðar niður í ótal flokka. Þrátt fyrir allt,
sem þeim ber á milli, er það sameigin-
legt, að allir telja sig boða trú Jesú
Krists og einhverskonar trú á hann
sjálfan. Og Biblían, einkum Nýjatesta-
mentið, er þeirra aðal heimildarrit og
trúarbók. í 2. kap. Postulasögunnar er
starfsemi kirkjunnar skýrgreind eins og
hún var frá upphafi vega og er enn í
dag. „Þeir (þ. e. frumsöfnuðurinn) héldu
sér stöðuglega við kenning postulanna
og samfélagið og brotning brauðsins og
bænirnar." Með öðrum orðum: kristnir
menn stofnuðu strax í upphafi félag
(samfélagið, söfnuðinn) til þess að boða
kristindóminn eins og þeir skildu hann
og viðurkenndu (kenning postulanna).
Og það gerðu þeir fyrst og fremst með
ákveðnu sniði, því messuformi, sem vér
höldum í megindráttum enn í dag (bæn-
um, sakramenntum, prédikun og sálma-
söng).
Þess er skylt að gæta, að kirkjan telur
æðstu sannindi sín ekki fengin fyrir til-
verknað mannsins sjálfs né verði þau
raunar heldur af honum sönnuð, heldur
séu þau gefin, — opinberuð af Guði, og
þeim verði að trúa.
Það, sem veldur því að vorir tímar eru
kallaðir atómöld er viss sigur visinda-
mannanna. Þeim hefur tekizt að upp-
götva og beizla margfalt kröftugri orku
en áður var þekkt, hvað þá handsömuð.
Nýtt tæki, nokkurs konar Aladínslampi,
hefur komið til sögunnar. Þessa kraftur
er svo öflugur, að talið er að leggja megi
með honum borgir og mannvirki í rúst-
ir í einni svipan, granda jafnvel öllu lífi
á jörðunni, meira að segja sprengja
hnött vorn upp í loftið. Þetta er hér fyrst
16 SAMVINNAN