Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1959, Page 21

Samvinnan - 01.03.1959, Page 21
LITLAKAFFI Framhaldssaga eftir Kristmann Guðmundsson Ungfrú Sara ætlaði að malda í móinn, en varð of sein, því að þeir voru þegar komnir inn í herbergiskytruna hans Napóleons. — „Almáttugur hjálpi mér!“ sagði hún. „Eg vona, að það sjáist ekki í koppinn undir rúminu! — Svona, farðu á eftir þeim, maður, og talaðu við hann.“ Napóleon Jónsson hvarf inn á eftir gestum sínum, en kom að vörmu spori út aftur og sagði felmtraður: ..Hann vill fá koníak. Heila flösku. óátekna! Hvað eigum við að taka til bragðs?“ Ungfrú Sara hafði siglt marga krappa báru um ævina og var vön því að vera fljót að átta sig. Það hafði ekki farið fram hjá henni. hvers vegna brennivíns- salanum á loftinu hafði orðið svo tíðset- ið hjá Gunnari Berg síðustu vikurnar. Og þótt hún hefði litið komu hans óhýru auga til að byrja með. var henni orðið Ijóst, að það gat stundum komið sér vel að hafa samband við hann. „Farðu fram til hans Gunnars, og sendu hann til lians Jónmundar eftir einni, og snöggur nú!“ Þannig atvikaðist það. að rás viðburð- anna flækti mvndhöggvarann í það net, sem honum tókst aldrei síðan að brjót- ast úr. Þegar hann kom aftur frá Jón- mundi. var hann með fjórar á sér. En inni í „einkaskrifstofu“ forstjórans gerðist glatt á hjalla. því að koníakið var gott, og Napóleon Jónsson gat ekki verið þekktur fyrir að látast, er hann drakk með svo sallafínum manni sem cand. med. og cir. Sveinssjmi. Hann levfði gestinum að fylla glas hans hvað eftir annað og varð allvel kenndur í fyrsta sinn síðan hann setti á stofn Litlakaffi. Cand. med. og cir. Sveinsson var sí- talandi, en sagði þó í rauninni fátt. því að hann endaði sjaldan setningu. — „Mér hefur skilizt, herra,“ sagði hann og mælti fram í nefið, „að þér séuð nafni — hm, hm, — en hvar er svo yðar Jóse- fína, — ef mér leyfist —?“ „Hún er systir mín og býr norður í landi,“ svaraði Napóleon Jónsson af barnslegri einlægni. Rauðkollur hló. „Þú rnátt ekki taka kandídatinn allt of hátíðlega, Napóleon minn,“ sagði hann. „Þetta er fyrirmynd- armaður, en dálítið utan við sig Eigin- lega ætti hann að vera landlæknir, en það henti hann dálítið óhapp, þegar hann var að bvrja á frægðarbrautinni. Hann var sem sé að skera upp mann og taka úr honum botnlangann, og það gekk allt saman vel, nema hvað hann glevmdi einum skærum inni í kviðar- holinu á sjúklingnum. Prófessorinn mis- skildi þetta, og síðan hefur Sveinsson ekki fengizt við lækningar.“ Halldór Pétursson teiknaði myndirnar Sögulok „Er hann þá bju-jaður á búskap núna?“ spurði Napóleon Jónsson. „Búskap? Hvernig?“ spurði Rauðkoll- ur hissa. „Ja, fvrirgefðu, en mér heyrðist þú vera að tala eitthvað um ,.metkýr“ — eða svoleiðis." Rauðkollur hló hrossahlátur og tæmdi glas sitt. „Eg þarf nú að fara,“ sagði hann. „Þú hugsar um kandídatinn og sérð til, að hann þorni ekki upp. En láttu hann borga fyrir sig, áður en hann fer; hann hefur nóga peninga núna, en það er ekki víst, að liann hafi þá á morgun!“ Þegar þeir voru orðnir einir, cand. med. cir. Sveinsson og Napóleon Jónsson, gerðist kandídatinn angurvær og fór að tala um, að lif sitt væri mislukkað, því að í rauninni hefði hann átt að vera skáld. — „Það var mitt talent, sjáið þér til. herra. Má ég lesa yður nokkur ljóð?“ „Mín er ánægjan og yðar lítillætið,“ sagði Napóleon Jónsson auðmjúklega. Cand. med. og cir. Sveinsson tók af sér gleraugun, fægði þau vandlega. setti þau upp aftur og dró nokkur skrifuð blöð upp úr vasa sínum. — „Eg bið yð- ur að athuga, herra,“ mælti hann draf- andi, „að ég er skáld framtíðarinnar, hátt hafinn yfir þær hækjur, sem nefn- ast stuðlar og rím. Andi minn fer með himinskautum og kemur ekki við jörð- ina. nema nauðsyn beri til. En hlýðið nú á, herra: mikla líf sjá ég var á frakklandi og spáni gandreið milli skýja stuggar við mér ný lína golsóttri hækju á blárri fjöður skýjaglópsins sprækur bali ríður sléttum fola himintjöld hvít rauðra haustvega“ Cand. med. og cir. Sveinsson brosti yfirlætislega og leit á veitingamanninn. „Hvað haldið þér, að þeir séu margir, herra,“ sagði hann, „sem þannig hafa ort á voru landi, íslandi?“ „Vonandi fáir,“ sagði Napóleon Jóns- son, en tók sig á: „Ég meina, þetta er algerlega einstætt!“ „Ég skyldi nú halda það!“ sagði kandídatinn. „Eða hvað segið þér þá um þetta héma: í grátklökkum fílabeinsturni hamingjunnar býr enginn veit öngull í helvítið og blæðir úr lionum þéttskipuð einvera SAMVINNAN 21

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.