Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1959, Page 25

Samvinnan - 01.03.1959, Page 25
Ný viðhorf í ljóðlist: Þorsteinn Valdemarsson, skáld Sveinbjörn Beinteinsson. Það er ekki úr vegi að spyrja. livað við höfum að gera með ljóðagerð nú á dögum. Getum við ekki verið án ljóða framvegis? Ef ti! vill mætti leysa málið á sama hátt og nú er gert við kristindóminn eða „trúna", sem við köllum svo: reisa ein- hver efnismikil musteri formsins og láta kjarna málsins eiga sig. En kirkjur án trúarstarfs eru sem kalkaðar grafir og engum til sóma; eins er ljóðagerð án til- gangs og boðskapar einber hégómi og nokkurskonar háðsmerki í vandkvæðum okkar. Islenzk ljóð hafa jafnan verið öðrum þræði einföld og augljós eins og flestar stökur og tækifæriskveðskapur er enn í dag; annarsvegar hafa skáldin unað við flókið form og málþrautir til hins ýtr- asta. Formþróun ísl. ljóðlistar hefur a.m.k. tvívegis farið út í öfgar: í drótt- kvæðum forðum og í rímum seinni alda. ISIér er nær að halda. að þjóðhagslegar aðstæður hafa valdið þessum öfgum og stýrt þeim; þær voru varúðarráðstafan- ir í nauðum. Ljóðlist okkar er vel á vegi stödd meðan jafnvægi helzt milli íhalds- semi og nýungagirni. Við skulum líta til baka um stund. A dögum Snorra Sturlusonar var öll ljóða- gerð að leysast upp í danskvæði, sem lítt fylgdu íslenzkum bragreglum. Snorri bjargaði hinu forna kveðskaparlagi með því að skrifa Eddu og kenna þjóð sinni að yrkja á íslenzku. Þeir samtíðarmenn hans, er helzt þóttust fallnir til forustu i menntamálum síns tíma, dæmdu skáld- skap Snorra með því að segja. að sést hefði: „leir aldregi meiri“. Það urðu samt Eftir Sveinbjörn Beinteinsson rímurnar. sem samþýddu nýtt og gam- alt í ljóðlist. Og þótt ekki væri allt glæst í þeim nýjungum, sem hér hófust eftir siðaskipti, einkum í sálmagerð, þá tókst þó Hallgrími Péturssyni að skapa úr því efni stórbrotnasta skáldverk íslenzkra ljóðskálda. Seinna mótuðu svo þeir Jón á Bægisá og Jónas Hallgrímsson þann ljóðastíl. sem rikt hefur siðan í miklu veldi — en er nú kominn á fallanda fót. Um hríð hefur verið mjög leitazt við að skapa nýjan stíl í ljóðagerð hér á landi og hefur gengið á ýmsu. Merki- legastar eru tilraunir nokkurra skálda að yrkja án ríms og stuðla og jafnvel án háttbundinnar hrynjandi. Að vísu hefur þessum ágætu skáldum ekki skilizt. að ljóðlist verðtir að eiga sér einhvern stað í aldarfari síns tíma, annars er hún dauðadæmd eins og ótímabylting. En þessar tilraunir eru fyrst og freinst merkilegar vegna þess, að þar er að finna flest það, sem skáldlegast er í nýrri Ijóðagerð og frumlegast. Enn aðrir hafa leitað þröngra forma og farið sínar leiðir fjarri alþýðu. en ekki hefur tekizt að skapa úr þessu neitt við hæfi. En hvað er framundan? Það gæti verið rétt að líta fyrst á, hvað er að baki. Um það leyti. sem ísland var að byggjast, þróaðist í Noregi svipmikill og fagur skáldskapur eins og sjá má af Ynglingatali. Haraldskvæði o. fl. Islend- ingar mótuðu ljóðagerð í fastara form: dróttkvæðastílinn. Og þegar þeir loks brutu þann stil af sér eftir margar aldir, þá mótuðu þeir annan stil svipaðs eðlis: rímnaformið. Það er greinilegt, að umrót og ný- breytni hefur jafnan leitt af sér það sem stórbrotnast er í Ijóðlist íslendinga. Það er einkennilegt samspil þjóðkvæða (Eddukvæða) og dróttkvæða í Völuspá; þar slær einnig saman heiðni og kristin- dómi, íhaldssemi og byltingu. Allt þetta verður þó skiljanlegra ef gert er ráð fyrir að Völuspá sé yngri en skáldskap- ur Egils og allur sá galdur og kvngi, sem hann er gerður af. Þegar dróttkvæðin voru hætt að vera lifandi skáldskapur og dansar og annað slíkt var að verða ríkjandi ljóðagerð, þá komu rímurnar til sögunnar. byggðar á fræðum Snorra og lögmálum íslenzkrar braglistar, en tóku til sín hugmyndir og skáldskap dansanna. Skáldskaparafrek Hallgríms Péturssonar er gott dæmi þess, hvernig fögur list skapast úr sam- ræmingu fornrar reglu og nýs ahlaranda. Snilld Jónasar Hallgrímssonar í ljóði er okkur nýtíðarmönnum ljósari en list Hallgríms. af því að tungutak hans og hugsjón er nærstæðara menningu þeirri og hugsunarhætti. sem við hrærumst í. En skáldlist okkar lifir ekki á því einu að þvæla og útþynna Ijóðastíl þessara liðnu snillinga; við verðum að krefjast þess af skáldum okkar, að þau yrki við hæfi þessara tíma og í þeim anda, sem nútíðin krefst. Og þótt vel megi svo fara. að einhverskonar rímnalist leysi þann vanda að skila ljóðamennt okkar og orðlist inn í framtíðina. þá er ekki ástæðulaust að leitað sé annara leiða í formi og stíl. íslenzkan hefur mjög mikið mótazt af ljóðagerð þjóðarinnar og það er vafa- laust, að hin almenna iðkun ljóðlistar hefur átt einna drýgstan þátt í því að varðveita málið og viðhalda traustleik þess. Það ætti því ekki að vera þrætu- mál, hvort þörf er fyrir Ijóðlist í nútím- anum, heldur hitt, hversu yrkja beri, svo að alþýða fái notið Ijóðanna og hafi eitthvað til þeirra að sækja. Það verður varla lýðum ljóst fyrr en löngu síðar, hvaða skáld hafa stórmannlegast brugðizt við vandamálum sinnar aldar, hvaða skáld hafa bezt skilið þörf og kröfu tímans. Enda þótt það bíði seinni tímans að metast um gildi nútímaljóða, þá verðum við samt að taka afstöðu til þeirra samtíðarmanna, sem hafa verið kallaðir til þess að yrkja Ijóð þeirrar aldar, sem er að líða. Ég hef haft þenn- an formála svo langan vegna þess. að ég vildi reyna að sýna fram á, að ljóðagerð þessa tíma er stuttur kafli í langri sogu — að öll alvarleg ljóðlist hlýtur að vera borin uppi af nauðsvn. sögulegri; þetta held ég skáldin mættu gera sér betur ljóst en verið hefur. — Ljóðabókin Heim- hvörf hefur að færa einhverja alvarleg- SflMVINNAN 25

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.