Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1959, Qupperneq 26

Samvinnan - 01.03.1959, Qupperneq 26
Heklu-úlpan er hlý og vönduð flik FATAVERKSMIÐJAN HEKLA á alla f jölskylduna ustu og athyglisverðustu tilraun, sem gerð heíur verið núna lengi til þess að yrkja nútímaljóð — á íslenzku. Þorsteinn Valdimarsson gaf út ljóða- bók á skólaárum sínuni, Villta vor hét hún. Sú hók var sýnn vottur þess, að von væri á nýju skáldi. Tíu árum seinna, 10552, kom svo út önnur bók hans, Hrajnamál. og þar með var það iýðuin ljóst, að Þorsteinn væri skáld, þótt menn deildu bæði um ljóðform hans og skáld- legan svip kvæðanna. Þorsteini er það sýnilega rnikið vandamál, hvaða form hann á að velja ljóðum, og hefur hann leitað ýmissa bragða í þeim efnum. Mér er nær að halda, að honum láti bezt að yrkja undir þeim háttum, sem hann hef- ur sjálfur mótað, og tekst honum þó vel með fornu hættina og þjóðkvæðahætti. En beztu ljóð hans eru undir léttum, líð- andi söngháttum. Hversu mild hefur sólin vakið mörk og bvggð! O, morgunn himintær, aldrei ljómuðu sund þín slíku Ijósi skyggð, né gekk ljóð þitt hjarta nær. Hvað er breytt? spyrja börnin feginsrjóð. Þetta eitt, hvíslar árdagsgolan liljóð: Hér fór gestur um í nótt meðan djúpin dreymdi rótt — og í dögginni sér þó enga slóð. Yrkisefni skáldsins eru fjölþætt og koma þó flest í einn stað niður: — heim- hvörf. Sennilega eru það þessi heim- hvörf, sem gefa ljóðunum gildi fvrst og fremst og setja þeim takmörk. Þar brá um salar set til sorga og gleði, sem harpan hló eða grét; svo hægt hún lét skuggunum skipt í geði, og aftur sjónarsvið til syrgisheima þrengt við hinn þæga nið og þagnar frið horfinn að hjarta streyma. En stundum er þyngra fyrir og meira um. Oss blandast mál og mæti fölsk og gild og miðar óðum á slysaleið, gegn hollra vætta vild, unz áttalaus í heimanfjalla fylgd á feigðarglóðum vér rösurn loks frá ráði og vara trylld — vér! öld, sem kastar frelsi fyrir borð gegn fúlgum dala og lítur ógnað lífi á feðra storð, og veit það þó: hér þarf ei nema orð hvers þegns að tala. — A fyrr að verða oss feigum búið morð? Að vísu held ég að hér þurfi meira en orð: meinið liggur dýpra. Einmitt þarna kann að vera veiki punkturinn á skáld- skap Þorsteins: leit hans að fegurð og samræmi — heimhvarfið, leiðir hann stundum afvega frá hinum bitra sann- leika. Samt er skáldskapur hans gerður af traustara efni en flestra annara. og þegar bezt lætur hafinn yfir allan efa. Ljóðform Þorsteins hefur orðið mönn- um deiluefni; sumum þykir hann forn- legur um of, aðrir kvarta um nýjabragð og háttleysur. Formið er sjáanlega ekk- 26 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.