Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1976, Side 11

Samvinnan - 01.02.1976, Side 11
ið myndar venjulega geira með eldstöðina nærri odda hans og er geirahornið að jafnaði þvi breiðara þvi lengur sem gjóskufallið hefur varað, en ás mestrar þykktar gjóskulagsins í geiranum sýnir vindáttina á meðan á gjóskufallinu stóð. Fram til þessa hefur gjósku- tímatalið aðallega byggst á ljósu gjóskulögunum, þar eð þau eru bæði útbreiddust og einnig auðveldara að rekja þau í dökkum jarðveginum. Samanlagt er vitað um milli 15 og 20 ljós öskulög i jarðvegi hérlendis og verður nú vikið nánar að nokkrum þeirra. Við skulum byrja með þvi að líta á bakka mógrafar nærri Fossá á Skagaströnd, en sömu lög má víða sjá í skurðum með- fram akvegum í Austur-Húna- vatnssýslu. Þar blasa við þrjú Ijós lög, meðalsöndug eða fínni. (1. mynd). Hið efsta þessara iaga, svo sem fet undir yfirborði í mó- grafarveggnum, en mun dýpra víða í fokjarðvegi, er úr fyrsta gosi Heklu eftir að ísland byggðist, gosinu árið 1104, því gosi sem eyddi Þjórsárdal. Þykktarás þessa lags sem ýmist er nefnt H1 eða H1104, liggur einmitt um Austur-Húnavatns- sýslu, og í þessari mógröf er það um 2 sm, en hægt er að rekja það i jarðvegi vestur i Hrútafjörð og austur á bóginn til Fljótsdalshéraðs, en austan Eyjafjarðar er þykkt þess að- eins brot úr sentimetra og þarf aðgát til að finna það, en alls þekur það rúmlega helming landsins, og áætlað hefur ver- ið, að rúmmál gjóskunnar ný- fallinnar hafi verið um 2500 milljónir rúmmetra, eða þús- undfalt það er féll á Vest- manneyjakaupstað i gosinu 1973. Þetta gjóskulag er mjög gagnlegt við könnun á aldri fornra bæjarrústa á þeim svæðum, sem það nær til. T. d. þurftí ekki nema litla holu í aðalrúst hins margumtalaða og nokkuð dularfulla Hraun- þúfuklausturs til þess að sanna að sú rúst er eldri en 1104, því þetta lag er þar rétt ofaná gólfskáninni. Næsta ljósa lagið er talsvert neðar i jarðveginum og næst- um efst í því lurkalagi, sem svo viða er að finna í mýrum. Eins og Þorleifur Einarsson rakti í erindi sínu i þessum erindaflokki, hvarf skógur að mestu úr raklendi í byrjun síð- ara mýraskeiðs, fyrir um 2500 árum, og þetta ljósa lag er auð- sæilega ekki miklu eldra og samkvæmt geislakolstímatali er það um 2800 ára, en raun- verulegur aldur líklega um 2900 ár, vegna mismunar á geislakolsaldri og raunveruleg- um aldri sem hér er ei timi til að gera grein fyrir. Þetta gjóskulag er einnig úr Heklu komið og gengur undir nafninu Hekla 3. Hekla þrjú er mesta gjóskulagið i íslenzkum jarð- vegi, þekur um þrjá fjórðu landsins, og rúmmál þess ný- fallins hefur verið a. m. k. 12 þúsund milljónir rúmmetra, að þvi meðtöldu, er fallið hefur í sjó. Það hefur fundizt í mýr- um bæði í Noregi og Svíþjóð. Hér má rekja það í jarðvegs- sniðum með þjóðvegi frá Holtavörðuheiði austur i Breið- dal. Þykkast er það norðan- lands um Eyjafjörð, 8—10 sm, og mjög áberandi i nýjum skurðum með vegunum bæði þar og í Þingeyjarsýslum og þar víða nefnt efra Ijósa lagið. Er kemur austur á Mývatnsör- æfi og Hólsfjöll er það orðið fínkornaðra en fokjarðvegur- 5. mynd: Þykkt og útbreiðsla H3. HÚNAfLÖ, HÚNAFLÓ) HEKLA^ HEKLA 4(H4) ÍAbout4000 dyears B.P) • » THICKNESS of LAfER.Icm] + HtJUST VISBLE O Ht NOT FOUND -2— ISOOACH.lcml iHEKLA* JELFOSS THICKNESS of LAYER. [cm] h5 just visible h5 not found •ISOPACH. [cm] ®. mynd: Þykkt og útbreiösla H4. 7. mynd: Þykkt og útbreiðsla H5. 7

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.