Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1976, Side 27

Samvinnan - 01.02.1976, Side 27
Mundi hún taka við þeim? Hann gat að minnsta kosti sent borðsilfrið til hennar. Af volgurslegri viðkvæmni gerði hann sér í hugarlund, að Rósu mundi vökna um augun, þegar henni bærist þessi stórmann- lega gjöf: Ó, Benoní, ég sé eft- ir því, að ég tók þig ekki held- ur! Sjáið þið til, ekki hafði hún sent honum aftur hring- inn og krossinn, eins og hún hafði sagzt ætla að gera, þá mundi hún kannski eiga þá áfram af ást til hans. Gat hann ekki að minnsta kosti sent henni skeiðina og gaffal- inn, sem hann hafði tekið frá handa henni og búið um sér- staklega? Hún mundi víst ekki taka við neinu. Benoní ranglaði yfir að Sæ- lundi, hryggur og i uppnámi, hellt í sig heilmiklu af brenni- víni í búðinni og hafði það að yfirvarpi, að einhver veiki væri kominn í sig. Siðan sneri hann heim aftur. Þéttfullur náði hann nú í sálmabókina til þess að iðka guðrækni. En hann hafði sterka söngrödd og var hræddur um, að Sveinn vaktari mundi heyra til sin, og því varð hann bara að lesa sálmana, en það leiddist hon- um. Hann stóð um stund úti á lokuðum svölunum og horfði fram fyrir sig. En það stóð á sama, hvort hann horfði út um gulu, bláu eða rauðu rúð- Urnar, alstaðar voru dúfurnar fyrir og dritu niður um allan naustvegginn. Einu sinni var sannarlega til annars ætlazt, bæði með lituðu rúðurnar og úúfurnar handa Rósu . . . Hann gekk út á klappir. Rétt á undan honum er Schöning vitavörður á gangi, útslitinn og kyrkingslegur og þvi likast, sem örbirgðin hefði tálgað af hon- Um öll hold. Hann var eitt- hvað að reika þarna um á klöppunum og hlusta á sjó- fuglana og athuga það lítið, Sem þarna var af gróðri. Gagn- stætt venju kastaði hann kveðju á Benoní og fór að skeggræða við hann: Þér, Hartvigsen, sem hafið til þess efnin, þér ættuð að kaupa þessar klappir, sagði hann. Eg að kaupa? Ég á nógar klappir fyrir, svaraði Benoní. Nei, þér eigið ekki nógu langt. bér ættuð að kaupa allt svæð- upp að Almenningsmörkum. Hvað ætti ég að gera við það? Það er mikils virði. Er það mikils virði? Það er fullt af blýmálmi að ihnan. Hvað um það? Málmi! segir Benoni með lítilsvirðingu. Já, málmi. Málmi fyrir milljón. En annars er málmur- inn fullur af silfri. Benoní horfir á vitavörðinn og trúir honum ekki. Af hverju kaupið þér það ekki sjálfur? Vitavörðurinn brosir vesald- arlega og horfir beint fram fyr- ir sig. Ég hef í fyrsta lagi ekki efni á því, í öðru lagi hef ég ekkert við þetta að gera. En þér ættuð að gera það, sem eigið lífið framundan. Þér eruð nú ekki heldur svo gamall. Onei. En hvað ætti ég að gera við meira, en ég hef? Ég er orðinn vitavörður í fjórða flokks vita, og það er nákvæm- lega nóg til þess að halda í okkur líftórunni, við erum ekki meiri átvögl en svo. Allt i einu spyr Benoní: Hafið þér talað um þetta við hann Mack? Og vitavörðurinn svaraði þessu ekki nema með tveim orðum, en fyrirlitningin leyndi sér ekki i hreimnum: Við Mack! Um leið og Benoní heldur í gagnstæða átt, hugsar hann með sjálfum sér: það er svei mér gott, að klappirnar skuli vera fullar af silfri að innan. Það er Arnor i Hópinu, sem á þær, hann á í máli við sjó- mann úti í útverum út af bát- töku í leyfisleysi, og það er dýrt að eiga í máli: nú nýlega teymdi hann aðra kúna sína til málflutningsmannsins i Hringjarabæ. Jájá, hann Niku- lás er að gifta sig í dag, og þá þarf hann sjálfsagt á kúnni að halda, og þau Rósa bæði. Benoní verður gagntekinn af endurminningunni um Rósu. Hann er kominn inn á Al- menningsveg, honum vöknar um augu, hann gætir sín ekki og fleygir sér snögglega niður á vegarbrúnina . . . Hef ég ekki verið eins og ég átti að vera, segðu mér það? Hef ég ekki yfirleitt handfjallað þig mjúk- lega og með varúð, þegar ég hef tekið á þér, til þess að gera þér ekki mein? Ó, guð, vertu mér líknsamur! Þröstur Magnússon Víð höflim eiðarfærin og verkunar- vörurnar itr t±_j Viö erum umboösmenn fyrir: Þorskanet frá: MORISHITA FISHING NET LTD. "Islandshringinn” og aörar plastvörur frá A/S PANCO Víra frá: FIRTH CLEVELAND ROPES LTD. Saltfiskþurrkunarsamstæöur frá A/S RAUFOSS og PYROFABRIKKEN Slægingarvélar frá: A/S ATLAS Loönuflokkunarvélar frá KRONBORG Fiskþvottavélar frá: SKEIDES MEK. FABRIKKER A/S Pökkunarvélar fyrir saltfisk frá A/S MASKINTEKNIKK F/V Kassaþvottavélar frá: FREDRIKSONS Bindivélar frá SIGNODE Umboössala fyrir: HAMPIÐJUNA H.F Innflytjendur á salti, striga og öllum helstu útgeróarvörum. SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA @ Sjávarafurðadeild SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 28200 23

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.