Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1976, Side 19

Samvinnan - 01.02.1976, Side 19
uðu. Handiðn og landbúnaðar- störf drógust saman og meira eða minna sjálfvirk iðnaðar- framleiðsla kom i staðinn. Samtímis var krafizt meiri þekkingar af tiltölulega fá- mennum hópi — stjórnendum og tæknimönnum. Með aukinni tækni og vélakosti hafa kröfur til þekkingar farið vaxandi og leitað i fleiri farvegi. í mörg- um öðrum atvinnugreinum — verzlun, þjónustu, og jafnvel landbúnaði — eru gerðar vax- andi kröfur til þekkingar hins starfandi fólks. Þannig hefur hin hraða útbreiðsla sjálfvirkr- ar gagnavinnslu leitt til þess að starfsfólk á öllum stigum hefur orðið að afla sér nýrrar þekkingar og leikni. Þegar einhver hefur aukið við þekkingu sina eða leikni hefur nám farið fram. Nám er ákveðið ferli, sem við getum ekki fylgt með berum augum og verðum ekki vör við nema sem breytingu á atferli t. d. með fjölda réttra svara við þekkingarprófi. Grundvallar- forsenda námsins er, að sá er nemur, geti fylgzt með breyt- ingunni á atferli sínu. Sál- fræðingar segja ósjaldan að nemandinn verði að fá svörun. Oft er einnig slett enska orð- inu „feed-back“ (endurgjöf) í þessu tilviki. Heyrnarlaus mað- ur fær ekki svörun (feed back), þegar hann myndar ákveðin hljóð. Hann megnar ekki að leiðrétta atferli sitt og því get- ur hann ekki talað. Með æfingu eða þjálfun er yfirleitt átt við þá námsað- ferð, sem felst í þvi að endur- taka ákveðna athöfn til þess að öðlast leikni (æfingin skap- ar meistarann). Námsfræðingar hafa gert til- raunir með ólíkar námsaðferð- ir og komizt að eftirfarandi niðurstöðum: ★ Endurteknar smáæfingar með hléum á milli gefa betri arangur á tímaeiningum en stöðug æfing á lengra timabili. ★ Þvi fyrr, sem nemandinn fær upplýsingar um árangur sinn i prófi (feed-back), því betur festist hið lærða í minni. Hið versta er að fá aldrei upp- lýsingar um árangur. ★ Það er heppilegt að skipta löngu verki, sem læra skal, á skemmri tímabil, en þó ekki svo stuttu, að þau myndi ekki eðlilega einingu. ★ Þegar læra skal ákveðna leikni er heppilegast að læra af eigin reynslu. Þetta hefur þó ekki i för með sér, að óeðli- fegt sé að fá munnleg fyrir- mæli fyrst eða sýnikennslu. ir Leikni eykst ekki jöfnum skrefum með æfingunni. Það virðast myndast eins konar námsþrep, þegar framfarirnar standa i stað eða aukast hægt. Þegar numið er enn um skeið er eins og þekking nemandans færist skyndilega skör hærra. ★ Sumt fólk á auðveldara með að muna það sem það heyrir (heyrnarminni), aðrir það sem þeir sjá (sjónminni) og enn aðrir það sem þeir end- urtaka (vélrænt minni). Allir menn hafa einhvers konar blöndu þessara eiginleika. Því er það, að nám gengur betur sé lögð áherzla á alla þættina meira eða minna samtimis s. s. með fyrirléstrum, heimalestri og umræðum. ★ Rætt er um að nám geti beinzt að lausn vandamála, sérstaklega þegar námið krefst skilnings (i stað fræðslu). ★ í mörgum tilvikum at- vinnulífsins og reyndar einka- lífsins einnig, er erfitt að nota þekkingu sina fyrirhafnarlaust. Óljóst kann að vera hvar vandamálið leynist eða hvernig verði bezt á það ráðizt. Ljóst er það eitt, að hlutirnir eru ekki eins og þeir eiga að vera. Til þess að búa menn betur undir slíkar aðstæður, er ósjaldan beitt dæmum úr raunveruleik- anum. Enda þótt samfélagið sjái fyrir fjölbreyttri menntun á síðari árum og áratugum, hafa vaxandi kröfur til þekkingar starfsfólks leitt til þess að fjöldi fyrirtækja gengst fyrir umfangsmikilli menntun inn- an eigin veggja. Markmiðið með menntunarstarfsemi inn- an fyrirtækjanna (skipulags- heildanna) er í fyrsta lagi að skapa leikni t. d. til þess að nota vélar fyrirtækisins. En mörg stórfyrirtæki hafa einnig menntunarstarfsemi, sem mið- ar fremur að aukinni þekkingu t. d. til þess að auðvelda mönn- um aukinn frama. Nefna má í þessu sambandi annars konar menntunarstarfsemi t. d. nám- skeið í rekstrarhagfræðum, sem miða að því að auka al- mennan áhuga á rekstrar- fræðum og áhuga starfsfólks á stjórnun. Með slíkri fræðslu- starfsemi gera atvinnurekend- ur sér vonir um að vinnan verði starfsmönnum áhuga- verðari, þegar hún verður séð í samhengi og frá sjónarhóli starfsfólks er unnt að leggja meiri áherzlu á kröfu um að fá upplýsingar um og aukin áhrif á rekstur fyrirtækis- ins. + í Möðrudal „Margt hefur gerst í Möðrudal" milli blárra fjalla. Þar ég gisti háran hal og hestamanninn snjalla. Kostuleg er kirkja hans með klukku fögru spili, tónlist þessa merka manns og málverk uppá þili. Ef kjósa ættu höldar hal sem hæfði tignu landi myndi Jón í Möðrudal mikill frambjóðandi. Sá hefur aldrei lotið lýð sem lítilþægur biður, en fákum reið hann fljótin stríð þó freyddi upp á siður. Hann er niðji fjallafróns hvar fuglar veiða grimmir, og máni og stjarna munu Jóns minnast þegar dimmir.

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.