Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1976, Side 29

Samvinnan - 01.02.1976, Side 29
yfir því, að sumt fólk skuli ekki vilja eiga heima í annarri eins stofu, þar sem alls konar auðæfi blasi við. Benoní svarar því til, að það sé ekki við betra að búast hjá manngarmi eins og sér. Og hann sýnir Gil- bert hljóðfærið og segir, að það sé spilverk, hann sýnir honum saumaborðið, greypt silfri og tinnuviði, og síðan tekur hann upp sjálft borð- silfrið. Fyrir þetta hef ég borg- að hundrað dali, segir hann. Gilbert hristir höfuðið og botnar enn ekkert i því, að sumt fólk skuli vilja fleygja sliku frá sér. Að lokum segir hann: Hún var ekki hamingjusöm á svipinn í kirkjunni. Rósa? Var hún það ekki? Nei. Það var alveg eins og hún iðraðist. Benoní reis á fætur, stóð uppréttur frammi fyrir Gilbert og sagði: Hérna sérðu hringinn. Nú á hann ekki lengur að vera á hendinni á mér til ásteyting- ar í lífinu . . . Hann tekur hringitm af hægri hendinni og flytur hann yfir á þá vinstri nieð þessum orðum: Sástu, hvað ég gerði? Gilbert svarar þvi hátiðlega játandi. Siðan sækir Benoní alman- akið og segir: Þú sérð þetta merki? Nú strika ég það út. Það er syl- veríusmessa, sem ég strika út. Sylveríusmessa, hefur Gil- ber upp eftir honum. Þú hefur verið sjónarvottur að þessu, segir Benoní. Þegar þessu er lokið, hug- kvæmist honum ekki fleira, sem hann geti látið Lappan- um finnast til um, og hann gerist þögull . . . Gilbert fer inn í búð á Sæ- lundi og segir frá hjónavigsl- unni, að önnur eins fínheit hafi enginn maður séð, að hvita slæðan hafi dregizt með íörðu, að brúðurin hafi fengið hann, sem hún vildi, og væri hamingjusöm að sjá. Og hann Mack hafi sjálfur verið i kirkj- unni. Þegar Gilbert Lappi hafði lokið sér af á Sælundi, rangl- aði hann nokkra stund um á Veginum heim að Hringjara- bæ. Brúðhjónin komu, þegar á kvöldið leið, Rósa var enn ríð- andi, en Arentsen yngri var orðinn rasssár i hnakknum, og Það var aumkunarverð sjón að sjá hann þramma fótgangandi uieð hestinn í taumi. Kvöldið var bjart og hlýtt í veðri, sól Var enn á lofti, en sjófuglarn- ir höfðu tekið á sig náðir. Gilbert tók ofan húfuna fyr- ir brúðhjónunum. Rósa reið á- fram, en Arentsen yngri stanz- aði og lét Gilbert taka við hest- inum. Hann var þreyttur og bálvondur. Hana, taktu við bikkjunni og tjóðraðu hana einhvers staðar. Ég er búinn að draga hana nógu lengi á eftir mér. Ég var í kirkjunni og sá yður, segir Gilbert. Arentsen yngri svaraði og var argur: Ég var líka i kirkjunni og horfði á hjónavígsluna. Ég hafði ekki tækifæri til þess að koma mér undan. Síðan héldu þau Rósa og Arentsen yngri innreið sína í Hringjarabæ, þar sem þeim var ætlað heimili . . . Nokkrum dögum seinna fór Benoní út með stórnótina og fulla skipshöfn. Menn treystu svo á aflasæld hans, að hon- um buðust fleiri menn en hann þurfti á að halda. Sveinn vakt- ari var einn í hópnum og var útgerðarmaður hjá nóteigand- anum sjálfum. ♦ ERTU ANÆGÐUR? með með með með meö meö með með með meö með reksturinn? ágóðann? söluna? framleiðsluna? bókhaldið? forstjórann? starfsfólkið? stjórnarfundina? andrúmsloftið á vinnustað? þjóöarbúskapinn? lifið yfirleitt? Ef svarið er já. — Til hamingju Ef þú vilt hins vegar gera betur — hvernig væri þá að kynna sér stjórnunarfræðslu Stjórnunarfélagsins. Við sendum ókeypis bækling með upplýsingum um 26 mismunandi námskeið, sem eru sniðin fyrir þig. Nánari upplvsingar á skrifstofu Stjórnunarfélagsins, Skipholti 37, sími 82930. STJORNUNARFÉLAG ÍSLANDS HAFNIR SEM SKIP EIMSKIPAFELAGSINS SIGLA TIL —O Feróir vikulega —O Feróir á tíu daga til hálfsmánaóar fresti o Feróir á hálfsmánaóar til þriggja vikna fresti • Feróir eftir flutningsþörf VIKULEGAR HRAÐFERÐIR Frá ANTWERPEN mánodaga - FELIXSTOWE þriájudoga - KAUPMANNAHOFN ------••--- - ROTTERDAM ---••--- - GAUTABORG miávikudoga - HAMBORG fimmtudoga EINNIG REGLUBUNDNAR FERÐIR Frá NORFOLK WESTON POINT KRISTIANSAND HELSINGBORG GDYNIA VENTSPILS VALKOM FEROIR FRÁ ÖORUM HÖFNUM EFTIR FLUTNINGSÞÖRF

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.