Neisti - 23.04.1978, Page 10
utanúr heimi
4. tbl 1978 / 10
Stjórn Verkamannaflokksins
í Bretlandi hefur haft forystu
fyrir fyrstu árangursríku
árásinni á lífskjör bresku
verkalýösstéttarinnar siðan
1926-31. Raunlaun féllu um
12 og 1/2 % 1975 og '76.
1,4 milljónir eru atvinnu-
lausar f augnablikinu. Fél-
agsleg þjónusta hefur veriö
skert stórlega. Meö dyggri
aöstoö skrifræðisins í verka-
lýö sfélögunum hefur henni
tekist að halda launahækkun-
um að mestu innan 10% mark-
anna, en það er þriðja þrep
tekjustefnu Callaghan-stjórn-
arinnar. Stjórn Verkamanna-
flokksins hefur þannig tekist
að nokkru leyti það sem
íhaldsstjórn Heaths reyndi
á sinum tíma, með þeim af-
leiðingum að hún varð frá að
hverfa. Hér er um að ræða
mótsögn, sem liggur f
bresku verkalýðshreyfing-
unni sjálfri. A sama tima og
breska verkalýðsstéttin er
einhver sú skipulagslega
sterkasta og baráttuglaðasta
í Evrópu, þá er hún pólitískt
vanþroska. E>að er þessi
pólitiski vanþroski sem
stjórn Varkamannaflokksins
hefur nýtt sér.
KREPPA BRESKU HEIMS-
VA LDASTEFNUNNAR
Alþjóðlegi efnahagssam-
drátturinn 1974-6 kom mjög
harkalega við breska efna-
hagslúfið. Astæður þess eru
fyrst og fremst tvær, þ. e.
efnahagslegar afleiðingar
hruns heimsveldisins og
styrkur verkalýðsstéttarinn-
ar kom í veg fyrir meiri-
háttar hækkun arðránshlut-
fallsins.
Þangað til nú fyrir örfáum
árum hafa. mikilvægustu
hópar ráðastéttarinnar f
Bretlandi hlotið gróða sinn
af arðráni á erlendum verka-
lýð. Arið 1 968 fjárfesti
breska auðvaldið tvisvar
sinnum meira erlendis en
það vesturþýska og fjórum
sinnum meira heldur en það
japanska. Arið 1971 var upp-
hlaðið vesturþýskt auðmagn
í öðrum löndum 4% af þjóð-
arframleiðslu V-Þýskalands.
Samsvarandi tala er 8,2%
fyrir Bandaríkin en 16,7%
fyrir Bretland. Ef farið er
lengra aftur í timann verður
bilið milli Bretlands og ann-
arra heimsvaldaríkja jafnvel
enn meira hvað þetta varðar.
Valdahópurinn innan ráða-
stéttarinnar var fjármála-
auðvald, sem hafði hagsmuni
sina bundna við erlendar
fjárfestingar, og landeigend-
ur. Ihaldsflokkurinn tjáði
hagsmuni þessa hóps. Efna-
hags- og utanríkisstefna
breska ríkisins miðaðist
fram undir 1960 við hags-
muni hans. Hún var þvi oft
andstæð hagsmunum inn-
lenda iðnaðarauðmagnsins.
Afleiðingar þessarar stefnu
voru m. a. að efnahagslííið
í Bretlandi sjálfu drabbað-
ist niður. A timabilinu
1960-72 voru innlendar fjár-
festingar 16-18% af þjóðar-
framleiðslu. Samsvarandi
tala er 30-35% fyrir Japan,
23-27% fyrir V-Þýskaland
og 20-26% fyrir Frakkland.
Það var ekkert lífsspursmál
fyrir valdahóp ráðastéttar-
innar að halda uppi eða auka
arðránshlutfallið í Bretlandi
sjálfu. Pólitiskur og félags-
legur stöðugleiki f Bretlandi
skipti meira máli fyrir
heimsvaldahagsmunina.
Þess vegna gaf borgarastétt-
in yfirleitt eftir gagnvart
verkalýðsstéttinni án meiri-
háttar átaka, nema þegar að-
gerðir verkalýðsins ógnuðu
pólitiskum stöðugleika Bret-
lands eða sjálfum völdum
borgarastéttarinnar, eins og
i allsherjarverkfallinu 1926.
Það var þetta sem gerði
300 ára stöðugt þingræði
mögulegt. Afleiðingin var
líka sú, að breska borgara-
stéttin missti af þeirri hækk-
un arðránshlutfallsins, sem
fasisminn og heimstyrjöldin
færði borgarastéttum ann-
arra Evrópulanda.
Tvær heims styrjaldir, ný-
lendubyltingin, aukin sam-
keppni frá öðrum heims-
valdalöndum og hnignun
breska efnahagslifsins sjálfs
grófu smám saman undan
heimsveldinu. Upp úr 1960
var orðið ljóst að ekki var
lengur hægt að halda áfram
á sömu braut. A sama tíma
voru kraftahlutföllin innan
ráðastéttarinnar að breytast.
Innlenda iðnaðarauðmagnið
var að leysa gamla fjármála-
auðvaldið og landeigendur af
hólmi sem valdahóp. Það
krafðist nýrrar stefnu, -
'tF fj_______
stefnu sem hefur verið fylgt
af öllum ríkis stjórnum síðan
Verkamannaflokkurinn komst
til valda 1 964.
Hin nýja stefna var:
l.Breytt utanríkisstefna,
þ. e. niðurskurður hernaðar-
sjást best í falli gróðahlut-
fallsiná, en 1965 var það
fyrir skatt um 11 , 5% en
hefur verið í kringum 3, 5%
siðan 1976, þ. e. faliið um
70% á þessu tímabili.
VERKALÝÐSBARATTAN
Stjórn Verkamannaflokks-
ins 1964-9 tókst ekki að
halda aftur af verkalýðsstétt-
inni og tekjustefna hennar,
þ. e. takmarkaðar launahækk-
anir við einhverja upphæð og 1
þá lægri en verðbólgan, var
brotin á bak aftur. Borgara-
stéttin sem hafði stutt stjórn
Verkamannaflokksins í upp-
hafi, kaus þvi að fá Ikalds-
flokkinn aftur til valda, sér-
staklega þar sem flokkurinn
hafði snúist til fylgis við
hagsmuni iðnaðarauðmagns-
ins undir forystu Heaths.
Jhaldsflokkurinn komst til
valda 1969. Stjórnin ákvað
að nota stjórnlist beinnar
árásar 1 stað þeirrar stjórn-
listar innlimunar sem
Wilsonstjórnin hafði beitt.
Með innlimun meinum við
það, þegar ríkis stjórn held-
ur góðu sambandi við skrif-
ræðið 1 verkalýðsfélögunum,
fær það til að samþykkja þær
fórnir sem verkalýðurinn
á að bera og sjá síðan um
að halda aftur af honum.
Gekk þetta allt sæmilega
framan af, en efnahagssam-
drátturinn hjálpaði þó nokkuð
upp á. En í raun og veru
BRETLAND»---------
ÚR L’lKKISTU
HEIMSVELDIS
-------------FYRRI HLUTI
máttarins og afnám hinnar
hefðbundnu samfylkingar
með bandarfska auðvaldinu.
f staðinn skyldi koma aukin
samvinna við borgarastéttir
annarra Evrópulanda.
2. Innganga 1 EBE og ný efna-
hagsstefna sem miðaðist við
hagsmuni þess stóriðnaðar-
auðmagns sem var staðsett 1
Bretlandi. Gengi pundsins
skyldi ekki lengur miðast við
þörf gamla fjármálaauðvalds-
ins fyrir stöðugan gjaldmið-
il fyrir alþjóðlega fjármála-
starfsemi sfna, heldur fyrir
þarfir útflutningsiðnaðarins.
3. Endurskipulagning efna-
hagslifsins, aukin samþjöpp-
un auðmagnsins og stórkost-
leg hækkun arðránshlutfalls-
ins.
1967 var ár hins nýja tfma.
2.nóvember kallaði George
Brown þáverandi utanríkis-
ráðherra stjórnar Verka-
mannaflokksins hersveitir
Breta x Mið-Austurlöndum
heim. Hann’.-.kallaði þetta
skref "lok heimsvaldaskeiðs-
ins". 7. nóvember var svo
gengi pundsins fellt. Þetta
voru sfðustu naglarnir f lík-
kistu breska heimsveldisins.
Samningaviðræður voru hafn
ar við Efnahagsbandalagið.
Mikill samsláttur fyrirtækja
átti sér stað undir forsjá
ríkisins. Ein afurðin var
British Leyland (framleiðsla
bflar, 3-400. 000 starfsm.
sem framleiða um 3-4%
þjóðarframleiðslunnar).
Tvö ljón voru þó 1 veginum.
Stefnubreytingin hafði verið
gerð heldur seint, þar sem
efnahagsástand heimsins fór
versnandi og skammt var f
alþjóðlega' efnahagssamdrátt-
inn 1974-6. Það sem er þó
meir um vert, var að borg-
arastéttinni reyndist ófært
að hækka arðránshlutfallið.
Verkalýðsstéttin hélt sfnu og
vel það. Afleiðingar þessa
hafði stjórninni ekki lent sam-
an við nein af meginher-
fylkjum bresku verkalýðs-
stéttarinnar, þegar efnahags-
lifið tók að rétta við seinni
hluta ársins 1971. Þau fóru
fljótlega f gang og unnu
hvern sigurinn á fætur öðrum
Það var þvf þrennt til
bragðs að taka fyrir Heath:
a) að gefast upp, b) nota her-
inn til að brjóta niður ein-
hvern mikilvægan hluta verka-
lýðsstéttarinnar f verkfalls-
baráttu og breyta þannig
kraftahlutföllunum borgara-
verkalýðshreyfingarinnar,
tókst námaverkamönnum að
gersigra stjórnina.
Þrátt fyrir að Heath reyndi
eftir þetta að breyta um
taktfk, þ. e. vingast við
hægrisinnuðustu leiðtoga
verkalýðshreyfingarinnar og
fá þá til liðs við sig gegn
verkalýðnum, kom allt fyrir
ekki. Þótt þeir hefðu fegnir
viljað þiggja boðið, þá vissu
þeir að þeir myndu umsvifa-
laust tapa fylgi sfnu og stöðu.
Hver hópurinn á fætur öðrum
tróð þá braut sem náma-
verkamenn höfðu rutt. Þeg-
ar svo námaverkamenn leku
sama leikinn árið 1974, sá
íhaldsstjórnin sér ekki ann-
að fært en að boða til kosn-
inga 1 þeirri von að vinna
þær og öðlast þannig pólitfskt
vopn gegn verkalýðshreyfing-
unni.
fhaldsflokkurinn beið meiri-
háttar ósigur í kosningunum
ffebrúar 1974. Hanntapaði
stórum hluta verkalýðsfylg-
is sfns og fékk lægsta hlut-
fall atkvæða á þessari öld.
Vegna þessa og upplxomu
skoska þjóðernisflokksins,
sem veikti fháldsflokkinn
gffurlega f Skotlandi, auk
þess sem hann tjáir klofning
innan ráðastéttarinnar f
Bretlandi, þá hefur fhalds-
flokkurinn verið f djúpri
kreppu sfðan. Svo djúp er
kreppa þessi, að meiri-
hluti borgarastéttarinnar
lftur ekki á hann sem væn-
iegan rfkis stjórnarvalkost.
En hún leit öðru vfsi á mál-
in árið 1 974.
V erkamannaflokkurinn
náði ekki hreinum meiri-
hluta f febrúar 1974 og fékk
f rauninni lægsta atkvæða-
hlutfall á eftirstríðsárunum.
eins og Tony Benn orkumála*-
ráðherra. Auk þess höfum
við alls kyns sentríska hópa
eins og Militant-hópinn.
Innan Ungsósfalista, þ. e.
æskulýðssamtaka Verka-
mannaflokksins, eru róttæk-
ir sósíalistar sterkir.
Þingflokkurinn er f raun-
inni sjálfstæður gagnvart
þingi flokksins, og hann
velur rfkisstjórnina. Þannig
gerist það oft að þing flokk-
sins.hefur eina stefnu, en
þingflokkurinn og rfkisstjórn-
in aðra. Dæmi um betta er
að sfðasta þing samþykkti
með þó nokkrum meirihluta
að berjast fyrir frjálsum
fóstureyðingum. Samt mun
stór hluti þingmanna Verka-
mannaflokksins greiða at
kvæði gegn þeim á þingi Það
sem er þó enn motsagna-
kenndara er, að f augnablik-
inu eru stuðningsmenn Tri-
bune-hópsins að afla til vin-
stri við hann f meirihluta f
framkvæmdanefnd flokksins,
meðan hægri armurinn ræð-
ur lögum og lofum f þingfl-
okki flokksins og rfkisstjórn-
inni. Þannig verða sam-
þykktir flokksþings algjörlega
dauður bókstafur, en eins og
kunnugt er, þá senda verka-
lýðsfélögin fulltrúa á flokks-
þing Verkamannaflokksins.
Það er f ljósi þessarar
samsetningar Verkamanna-
flokksins og uppbyggingar
verkalýðshreyfingarinnar,
sem verður að skilja bæði
afstöðu borgarastéttarinnar
árið 1974 cg það sem hefur
verið að gerast f Bretlandi
a3 undanförnu.
FRAMHALD í
IUÆSTA BLAÐ!
mAr guðmundsson skrifar frA lundúnaborg
stéttinni 1 hag, eða c) nota
allan annan mögulegan póli-
tfskan og efnahagslegan styrk
til þess að ná sama mark-
miði. - Þó annar möguleik-
inn hafi werið ræddur á sfn—
um tfma, meira að segja
opið f borgarapressunni, þá
þótti hann of hættulegur.
Það var þess vegna sem
ákveðið var, og það gersam-
lega meðvitað, að reyna að
sigra námaverkamenn f op-
inni baráttu. City of London
Newspaper skýrði svo frá
l.febrúar 1972: „Mánuðum
áður en kolaverkfallið hófst,
sögðu ráðherrar 1 einkavið-
tölum, að ríkisstjórnin myndx
tryggja árangur ’ viðnámsins
gegn verðbólgu’ með gersigri
yfir námaverkamönnum. " Ef
þetta hefði tekist, hefðu
kraftahlutföllin milli stéttanna
breyst á afgerandi hátt og
fhaldsstjórnin væri við völd
Stéttaátökin krystölluðust þvf
f átökum ríkisstjórnarinnar
og námave rkamanna. Allri
borgarastéttinni var þetta
ljóst og meirihluta verkalýðs-
ins. Með gffurlegri baráttu-
gleði, notkun hreyfanlegra
verkfallsvakta, sem f raun
stjórnuðu verkfallinu, og
vegna almenns stuðnings
Aðrar kosningar urðu þvf að
fara fram í október. f báð-
um kosningunum studdu
allir hlutar borgarastéttar-
innar fhaldsflokkinn, þrátt
fyrir að ljóst væri að hann
myndi tapa kosningunum.
VERKA MA NNA F LOKKUR -
INN
Breski Verkamannaflokkur
inn er ansi sundurleit sam-
steypa.Við getum þó^greint
nokkra meginstrauma.
Forystan ber að telja hæg-
ri arm flokksins, sem er
samansettur af hægri skrif-
finnum innan verkalýðsfélag-
anna, meirihluta þingflokks-
ins og ríkisstjórnarinnar.
Við höfum einnig stóran
skipulagðan hóp, sem álftur
sig sósfalfskan, þ. e. Tri-
bune-hópinn, sem er nokk-
urs konar Alþýðubandalag
innan Verkamannaflokksins.
Þessi hópur samanstendur
af vinstri skriffinnum 1
vsrkalýðshreyfingunni, eins
og Jack Jones fyrrverandi
leiðtoga TGWU (Transport
and General Workers Union
- verkalýðsfélag flutninga-
og almennra verkamanna) og
vinstrisinnuðum þingmönnum