Neisti - 27.03.1983, Qupperneq 1

Neisti - 27.03.1983, Qupperneq 1
NEISTI 3.tbl. 1983 21. árg. Utgáfudagur 27.raars 1983 Fylking byltingarsinnaðra kommúnista — stuðningsdeild Fjórða Alþjóðasambandsins Yfirvinnubann hjá ÍSAL: Gegn auknu álagi á verkamenn 23. mars - þegar þetta er skrifað hefur yfirvinnubann verkamannafélagsins Hlifar staðið i 3 daga í álverinu i Straumsvik. Óánægjan i álverinu hefur grafið um sig i talsverðan tíma að sögn starfsmanna álversins, sem Neisti ræddi við. Kvartað er undan miklu vinnuálagi og slæmri vinnu- aðstöðu, óþrifum og lélegum aðbúnaði. En kannski er það ekki fyrst og fremst þetta sem veldur þvi að uppiír sýður núna, heldur miklu fremur breyttur andi meðal stjórnenda og yfirmanna á staðnum. Þar er nú öllu stjórnað með tilskip- unum. Þegar stjórn ÍSAL hótaði að segja upp fastráðnum starfs- mönnum lögðu verkamenn til að byrjað yrði á þvi að afnema yfirvinnu; í öðru lagi yrði hætt að veita verkefnum til verktaka utan fyrirtækisins og í þriðja Iagi yrði reynt að spara á öllum sviðum. ekki síst á sviði stjórnunar- og yfirbyggingar. Þessum tillögum var hafnað og þá boðaði Verkamannafél- agið Hlif i Hafnarfirði yfir- vinnubann. Neisti ræddi við Hallgrim Pétursson, formann Hlifar, þann 23. mars og bað hann skýra helstu ástæður deilunnar. Deilan er fyrst og fremst tilkomin vegna þess að stjórn ÍSAL ákvað að segja verka- mönnum upp vinnu á sama tima og yfirvinna var stóraukin, sagði Hallgrimur. Við sam- þykkjum alls ekki slikt aukið álag á menn. Auðvitað hefur alltaf verið um einhverja yfirvinnu að ræða, menn forfallast og sitthvað getur komið uppá, en það er ekkert likt því sem verið hefur að undanförnu. Ragnar Hall- dórsson segir yfirvinnuna til- komna vegna blautra rafskauta, það má auðvitað alltaf finna sér ástæðu, en ég held að hennar sé frekar að leita i uppsögnum, t.d. var sagt upp 17 manns nú allra síðustu daga. Á siðasta ári voru gerðar umfangsmiklar breytingar á vinnutilhögun vegna tækni- nýjunga. Af fenginni reynslu kom ýmislegt í ljós sem betur mátti fara, en reynt var að leysa málin og gengið út frá því að tryggja sem allra flestum áframhaldandi atvinnu, þótt um tilfærslur væri að ræða á milli deilda. Þetta gekk svona bærilega. - Menn hafa ýjað að þvi að svo virðist sem Verslunarráð haldi hér um stjórntauma og stýri afstöðu ISAL. Það má kannski segja það. Staðreyndin er að síðustu mán- uði hefur stjórn fyrirtækisins sýnt aukna hörku gagnvart verkafólki. Auðvitað hefur stjórn ÍSAL alltaf hugsað fyrst og fremst um hag fyrirtækisins, en nú hefur verið sýnd óbil- girni og harka sem við höfum ekki kynnst fyrr. Það er kannski Það ætla ég að vona. Ragnar Halldórsson vill að visu meina að aðgerðirnar skipti engu máli. Siðan segir hann i hinu orðinu að yfirvinnubannið komi til með að setja fyrir- tækið á hausinn. En þetta er svosem ekki einasta þver- sögnin i hans málflutningi. - Hefur ÍSAL hótað ykkur? Eftir að við tilkynntum yfirvinnubannið barst okkur bréf þar sem stjórn ÍSAL mót- mælti banninu og sagði það verið að nota okkur sem til- raunadýr fyrir stefnu Verslunar- ráðs fslands. - Hingað til hefur stjórn ÍSAL neitað að ræða við Hlif. Hvert heldurðu að áframhaldið verði? Yfirvinnubannið var samþykkt einróma á fundi sem haldinn var með félagsmönnum Hlifar er vinna hjá ÍSAL. Það var siðan boðað skriflega daginn eftir frá og með 20. mars, eða með 10 daga fyrirvara. Það hefði þvi átt að gefast nægur timi til samninga- viðræðna, hefði einhver vilji verið til þeirra. Aðgerðin var boðuð ótima- bundið og framhald hennar byggist því eingöngu á mann- skapnum. Svona aðgerðir eru ekki ákveðnar af einhverjum mönnum á einhverri skrifstofu úti bæ, það gengur aldrei. Ákvörðunin er þeirra sem þátt taka í aðgerðinni. Er yfirvinnubannið farið að hafa einhver áhrif? bæði brot á samningum og lög- um um stéttarfélög og vinnu- deilur. í þessu bréfi er þess einn- ig krafist, að Hlif verði látin sæta ábyrgð fyrir hugsanlegan skaða sem fyrirtækið kunni að verða fyrir af þessum aðgerðum. Við höfum nú fengið svona hótanir áður og tökum þær ekki nærri okkur. Það má einnig benda á að skv. samningum okkar eru verkamenn verndaðir gegn óhóf- legri yfirvinnu. Inni samningum eru ákvæði um að ekki megi vinna meira en 5 vaktir á '/2 mánuði í yfirvinnu, eða 3 vaktir á viku. Við lögðum mikla áherslu á að fá þetta atriði inní samninga. Það er nóg fyrir menn að vera 8 tíma í einu á þessum stað, hann er ekki svo heilsusam- legur. -bþ- Forystugrein Kjósum verkalýðsflokkana! Fylkingin mun pkki bjóða fram í Alþingis- kosningunum að þessu sinni. Líklegt er að tvennar kosningar verði nú með stuttu millibili, og við teljum ástæðulaust að bjóða fram í þeim báðum. Fylkingin setti sér ákveðin verkefni á nýyfirstöðnu þingi sínu. Þátttaka í Alþingiskosningum getur auðvitað verið mikilvægur liður í þvf uppbyggingar- starfi. Eins og nú standa sakir mundi þó kosningaþátttaka hafa truflandi áhrif á framkvæmd fyrstu verkefna Fylkingarinnar á þessu sviði á næstu vikum og mánuðum. Fylkingin hvetur því stuðningsmenn sína til að kjósa annanhvorn verkalýðsflokkanna í kosningunum 23. apríl n.k. í Reykjavík munu Fylkingarfélagar kjósa Álþýðubandalagið, og hvetja stuðningsmenn til að fara að dæmi sínu. Að öðru leyti teljum við ekki vert fyrir þá sem stutt hafa verkalýðs- flokkana hingað til, að kjósa öðruvísi en þeir hafa gert hingað til, enda er það samanlagt fylgi þeirra sem máli skiptir, en ekki hvort annar flokkurinn hefur einhver atkvæði af hinum. Fýlkingin leggur sérstaka áherslu á það, að verka- fólk láti ekki blekkjast af Vilmundar- og kvenna- framboðunum. ítrekaður tillöguflutningur Vilmundar Gylfasonar um afskipti ríkisins af innri málum verka- Iýðshreyfingarinnar gerir það að verkum, að enginn stuðningsmaður verkalýðshreyfingarinnar getur stutt Bandalag jafnaðarmanna. Tilraun kvennalistanna til að hefja sig vfir stéttirnar og hafna því að taka skýra afstöðu í meginátökum þjóðfélagsins vekur efasemdir um það, hverja og hvað þeir munu styðja, er á þing er komið. Atkvæði greitt hinum nýju listum mun m.ö.o. alls ekki verða til þess að styrkja baráttustöðu verkalýðshreyfingarinnar, né auka líkurnar á framgangi þeirra baráttumála, sem mestu skipta alþýðufólk í landinu. o- • _ __> 11 o Sja nanar a bls. Z. Fylkingin eflir starf sitt i verkalýðshrey fingunni. Á 35. þingi Fylkingarinnar, sem haldið var á dögunum, var meginniðurstaðan sú, að Fylkingin mun á næsta starfsthnabili einbeita sér að því að efla stöðu sína innan samtaka launafólks. Fylkingin hefur hingað til byggt öflun nýliða á róttæku náms- og menntafólki, en hreyfingu þess hefur mjög sett ofan undanfarið. Þrátt fyrir nokkur tengsl og fáeina, félaga innan verkalýðssamtakanna hefur Fylk- ingin starfað í útjaðri verkalýðshreyfingarinnar. Á komandi árum verða samtök verkalýðsins í brennidepli þjóðfélagslegra átaka á Islandi. Fylk- ingarfélagar verða að taka þátt í þessum átökum, ef þeim á að miða eitthvað í þá átt, að byggja upp nýjan verkalýðsflokk, byltingarsinnaðan verkalýðs- flokk. Hann verður aldrei skapaður utan þeirra samtaka, sem verkafólk hefur þegar myndað til að standa vörð urn kjör sín og rétt. Þessi niðurstaða mun leiða til margvíslegra breytinga á starfi samtakanna. Þess er ekki að vænta að fyrst um sinn vcrði Vart stórfenglegs árangurs í þessu starfi. En þessi leið er nin eina færa, þó torsótt sé. Fylkingin leggur því ótrauð á brattann. Sjó nónar i opnu. Réttur kvenna til fóstureyðinga kostaði baráttu, ogþaðmun kosta baráttu að haldahonum. BIs. 4. Bygging leiguhúsnæðis á félagslegum grundvelli er að verða helsta hagsmunamál ungs fólks. Sjábls. 4.

x

Neisti

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.