Spegillinn - 01.01.1953, Blaðsíða 12

Spegillinn - 01.01.1953, Blaðsíða 12
B SPEGILLINN NÝTT FÉLAG myndlistamanna hefur nýskeð verið stofnað hér í höfuðstaðn- um, mestmegnis af gömlum og íhaldssömum málurum, en þó er Jón Engilberts þar með, sem ann- ars hefur getað brugðið því fyrir sig að vera byltingagjárn og bal- stýrugur. Dettur oss í hug, hvort eigi að nota hann sem einskonar missing link, ef þeir gömlu þurfa eitthvað að tala við september- kommana. GRIKKIR hafa snögglega fengið mikinn áhuga á því að þreyta knattspyrnu við Islendinga, og munu hugsa sem svo, að þar sem vér ekki tókum þátt í síðustu Olympíuknattspyrnu, ættum vér að vera viðráðanlegir. Er það meistaraflokkur Makedóníu, sem horfur eru á að hingað komi, og leggja blöðin mikið upp úr landkynningu þeirri, er af þessu geti leitt. Ojæja, það er nú svo. Ekki erum vér nú neitt hárvissir um, að það yrði oss sérlega gagnlegt, ef Grikkir færu að dæma saltfiskinn okkar eftir knattspyrnumönnunum. SUÐURAMERÍKUMENN hafa, fyrir milligöngu matvælastofnunar SÞ, farið þess á leit að fá lár.aðan héðan fiskiskipstjóra, til þess að kenna innfæddum nýtízku fisk- MORGUNBLAÐIÐ getur þess, eftir fregnum í dönsku blaði, að kommarnir séu búnir að slá eign sinni á Hanníbal, með húð og hári, og er kollega hálffúll yfir þessu. Það má hann líka gjarna vera eftir að hafa árum saman japlað á ásælni kommanna, og svo reynast þeir svona hógværir í ágirndinni, þegar til kastanna kemur. (Annars virðist ráð Hanníbals svo á reiki um þessar mundir, að hann gæti alveg eins vel vaknað hjá íhaldinu, einn góðan veðurdag.) ALÞINGI hefur nú fellt tillögu þess efnis að fjölga prófessorum við Háskóla vcrn í lögum og læknisfræði. Hinsvegar er haft eftir því, að þessar deildir megi gjarna hirða það, sem guðfræðideildin hefur af óþarfa vinnukrafti, síðan dósentastríðið geisaði, hérna á árunum. DAGSBRÚNARMENN, sem voru að koma af félagsfundi, meðan á verkfallinu stóð, löbbuðu sig niður að Alþingishúsi og hrópuðu niður með stjórnina. Þetta þótti stjórninni hinn mesti uppsláttur, er sjálfir hennar römmustu andstæð- ingar viðurkenndu þannig, að hún gæti komizt neðar en þegar var orðið. FJÁRANSRÁÐ flutti sig um set í byrjun þessa nýja árs, og er nú til húsa — ásamt KRON og Ríkinu — við Skólavörðustíg; beint á móti Steininum. Mun það gert vegna þeirra, sem sækja um byggingarleyfi, til þess að gsta bent þeim á, hvert þeir fari, ef þeir byggja í trássi við ákvæðí ráðsins. Munu á komandi tímum margir óska ráðinu yfir götuna. veiðar, og hefur skipstjórinn þegar verið valinn — ef úr þessu kynni að verða. Sá er aðeins hængur á, að sunnan Mexikóflóa fyrirfinnst ekkert almennilegt fiskiskip, heldur er fiskað á manndrápsskeljum og doríum. Af þeim ástæðum var hætt við að senda þeim kjarnorkumann- inn, sem var á ferðinni í laxám vorum sl. sumar, þar eð það þótti ein- sætt, að fiskiskipin þar syðra myndu ekki þola sprengingarnar. BIBLÍUFÉLAGIÐ í Washington hefur nýskeð afhent sendinefnd Rússa á þingi SÞ hel- víta mikla biblíu að gjöf til Stalíns. Er þetta talið vera gert að undir- lagi einhverra lævísra gyðingahatara, því að Stalín ku ekki vera neitt oflirifinn af þeirri þjóð, þó að hann fari ekki að kynnast henni enn betur með því að lesa bibliuna, ofan á allt annað. MORGUNBLAÐIÐ getur þess, að Churchill hafi fyrir skömmu farið véstur um haf á QUEEN MARY, og hafi hreppt hið versta veður, en staðið sig með ágætum og verið að skrifa ævisögu sína á leiðinni. Nú vitum vér, hversvegna margar sjálfs- ævisögur eru eins og þær eru. Vitanlega hafa þær verið skrif- aðar í veltingi. ALÞÝÐUBLAÐIÐ (sem nú hefur endurreist sinn gamla haus, undir regímenti Hanní- bals) er eitthvað forvitið að vita, hvað ferðalag Hlíðdals til Suður- Ameríku, sem tók tvo mánuði, hafi kostað. Er blaðið eitthvað að nefna sparnað á nafn í þessu sambandi. Oss þætti nú fróðlegra — eða að minnsta kosti grínagtugra — að heyra eitthvað um gagnið af för þessari. SVISSNESK úrasmiðja hefur fundið upp nýtt úr, sem hún fullyrðir, að geti gengið öldum saman, án allrar upptrekkingar, og sé það rakinn í loftinu, sem dregur upp verkið. Vér höfum átt tal um þessa nýjung við Sigurþór og skilist á honum, að stéttin láti sér fátt um finnast. Hinsvegar munu nokkrar stúkur hafa pantað úr, til þess að komast að raun um, hvort þar sé nokkur raki í lofti, sem ekki á þar að vera. Eins mun eiga að setja svona úr upp á sjálfu Alþingi, og skal það haft til marks, að ef það getur gengið þar, svo teljandi sé, séu ræðurnar ekki eins rakalaus- ar og hingað til hefur verið haldið fram. ÞYNGSTI MAÐUR heimsins er nýlega látinn suður í Indlandi, og léttist mannkynið á þeim degi um 30Q kíló, en sú var vigt þess framliðna. Segja blöð, að 25 fíleflda karlmenn hafi þurft til að tosa honum til grafar, en það verður nú samt aldrei nema 12 kíló á mann, og þætti ekki mikið, norður hér. Ennfremur er það tekið fram, að hinn framliðni hafi verið þing- maður og mjög vinsæll. Út úr öllum þessum upplýsingum þykjumst vér geta lesið, að þetta hafi verið ístrukrati, sem hafi ekki getað lifað af meðferðina á Stefáni Jóhanni.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.