Spegillinn - 01.02.1957, Qupperneq 6

Spegillinn - 01.02.1957, Qupperneq 6
30 SPEDIULINN PRESTUR NOKKUR í Suður-Frakklandi, sem hafði litla aSsókn að messum sínum, tók upp á því fyrir skömmu að lialda dýfingasýningu og seldi sóknarbörnunum aðganginn, og stóð þá ekki á þeim að mæta. Meðal annars stakk það liöfðu tveir menn reynt á undan hon- um og báðir beðið bana, liinsvegar slapp klerkur óskaddaður frá tiltækinu. Sáu sóknarbörnin þá jafnskjótt, að þetta var ekki andskotalaust, og síðan hefur klerkur aðsókn, sem er talin vera Suður-Frakk- landsmet. 1 BANDARÍKJUNUM er einstaklingsframtakið farið að brugga nýja tegund landa, er dalalœ&a nefnist og verður þá væntanlega kallað kellingarvella liér sunnan lands, þegar farið verður að smúla því hingað. Er drykkur sá allur hinn göróttasti og liafa menn fyrir satt, að jafn- vel forhertir drykkjumenn, vestur þar, neyðist til að blanda hann saltsýru, áður en þeir beri við að leggja hann sér til munns. REYKJAVÍKURBÆR efndi til veglegs kokteilpartís mánudaginn 4. þ. m., í tilefni af því, að á þeim degi töldust vera 10 ár liðin síðan Gunnar Thor- oddsen tók við borgarstjóraembættinu. — Jafnframt munu einhverjir liafa minnst þess, að á sama degi voru liðin jafnmörg ár frá því að Bjarni liætti. Á SNÆFELLSNESI vestur skeði það hinn 18. janúar s.l., að ær ein grákollótt eignaðist tvö lömb, og vó livort um sig 4,5 kíló á vogir þær, er þar gilda. Svona lauslæti liefur áður átt sér stað í Eyjafirði og það merkilega er, að þar voru liinar seku líka grákollóttar. Um svipað leyti lesum vér í blöðum, að grá kindaskinn séu í afarháu verði á heims- markaðnum, svo að búfræðingar vorir ættu nú að gera sitt til að auka þetta lauslæti lieldur en hitt. Hvað sem ábatanum annars kann að líða, er hér á ferðinni merkilegt rannsóknarefni, sem vísindamenn vorir eiga vonandi eftir að heimska sig á. MORGUNBLAÐEÐ er eitthvað úrillt út í það, að íslenzka þjóð- in skuli senda komma — nánar til tekið Finnboga Rút — á þing Sameinuðu Þjóð- anna sem fulltrúa Islands. Oss finnst þetta ekki vera nema lofsverð hreinskilni. Þetta er sama og að segja við Sameinuðu Þjóð- irnar: „Svona erum við nú — og þaðan af verri“. LEYNIVlNSALAR urðu nýskeð fyrir því tjóni, að leynilög- regla Suðurnesja nappaði fyrir þeim sprúttbíl, sem var á leið til Keflavíkur, fullhlaðinn, og var kominn langleiðina þangað gegnum ófærðina, sem hefur reynzt mjólkurbílum um megn — en svo er líka aðgætandi, að sprúttið er eðlisléttara en mjólkin. Voru gerðar þama upptækar á- fengisbirgðir, að matsverði 26.000 krónur, en þar sem þetta skcði rétt á mánaðamót- unum síðustu, liöfum vér ekki getað grafið upp, hvort þetta var miðað við nýja eða gamla verðið. SUÐUR 1 MILANO skeði það fyrir nokkru, að lögfræðingar komu í sína árlegu heimsókn í fangelsi borgarinnar (því að þar em lögfræðingar svo almennilegir að heimsækja skjólstæð- inga sína einu sinni á ári, og hafa þá gjama fleyg upp á vasann). Notaði þá einn snið- ugur fangi tækifærið, setti upp falskt yfir- skegg og svört gleraugu og slóst í hópinn. Komst liann þannig út, án þess að nokkur þekkti hann frá lögfræðingunum. Eru lög- fræöingarnir nú mikið að hugsa um að gera liann að heiðursmeðlim félags síns, fyrir sniðugheitin. FRJÁLS ÞJÓÐ virðist ekkert vera á þeim buxunum að deyja drottni sínum, eins og margir vom að spá lienni eftir alþingiskosningarnar síðustu. Þvert á móti hefur hún nú lagt sér til spánnýjan hlaðliaus, þar sem nafn blaðs- ins er fellt inn í umgjörð af íslandskorti. Mun þetta vera einskonar myndgáta, sem lesist: „Frjáls þjóð í blönku landi“. GALATHEA heitir eitt merkilegt hafrannsóknaskip í eigu danskra og hefur undanfarið plægt heimshöfin með miklum árangri. Nýlega fann það t. d. merkileg kykvendi, sem sam- kvæmt kirkjubókum áttu að vera steindauð fyrir 300 milljónum ára, en gera þá bara svo vel að lifa enn góðu lífi. Er liér um að ræða „skilgetna forfeður“ núverandi snigla og kolkrabba. Rannsóknum þessum verður haldið áfram, og eru vísindamenn- irnir nú vongóðir um, að amma skrattans komi upp á önglinum lijá þeim, einn góð- an veðurdag. TOLLST J ÓRASKRIFSTOFAN í Reykjavík lét eitt kvöldið fyrir nokkru lesa þrívegis auglýsingu um tryggingar- gjald „ókvæntra kvenna“. Yirðist liér um ofnotkun kanselístíls að ræða, og ætti „hið opinbera“ framvegis að halda sér við tal- málið, ekki sízt með tilliti til þess, að venjulegu, dauðlegu fólki mun — að minnsta kosti í orði kveðnu — vera ætlað að skilja auglýsingarnar. ALÞINGI liefur nú samþykkt krataframbjóðandann Eggert G. Þorsteinsson, inn á sig. Var þetta einskonar skemmriskírn, með þingsálykt- im, því að síðar meir, ef tími vinnst til, á að ganga betur frá því með nýrri laga- setningu, ef ekki stjórnarskrárbreytingu. Auðvitað var fyrst leitað hófanna hjá Rannveigu, að hún endurskoðaði afstöðu sína til þingmennskunriar, en kom fyrir ekki. Verður því Eggert einskonar liænu- hani í þinginu, og á reyndar vel við, þar sem hann er þarna sama sem fyrir tvo flokka. Þessi árgangur SPEGILSINS kostar í lausasölu kr. 120.oo, en í áskrift kr. 85.00. Áskrift má panta í síma 2702 (opið allan daginn) eða skriflega í Pósthólf 594, Reykjavík. SPEGILLINN

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.