Spegillinn - 01.02.1957, Blaðsíða 9
SPEGILLINN
33
Almælt tíðindi
Margri húsmóðurinni íslenzkri
mun fara að þykja þröngt fyrir
dyrum, morguninn sem hún vakn-
ar við það, að straujarinn er kom-
inn upp í fimmkall, ekki sízt ef
hún hefur haft á prjónunum áform
stór um að baka sér eitthvað með
kaffinu, og margur húsbóndinn
mun verða að láta sér nægja mola-
kaffi í staðinn fyrir að fá sætt kaffi
og með því nema þá molasykur-
inn fari sömu leiðina, svo að hann
verði að láta sér nægja hundheið-
ið kaffi — þangað til þeir dobla
kaffiverðið. Margir kjósendur
vinstri flokkanna munu hugsa með
trega til þeirra tíma, þegar íhaldið
sat að völdum og straujarinn kost-
aði ekki nema þrjár og sextíu,
þrátt fyrir óhórlega álagningu
heildsalanna. Nú hefur þessi álagn-
ing verið skorin niður úr pllu valdi,
en samt hækkar varan um þrjátíu
og átta komma eitthvað prósent.
Sem betur fer, lagast vonandi stat-
usinn hjá sárþjáðum ríkissjóði eitt-
hvað, að minnsta kosti sem svarar
einni nefnd.
Stjórnin okkar núverandi hafði
þá góðu sérstöðu, að því er hún
sjálf segir, að hafa verkalýðinn á
sínu bandi, svo að halda mætti, að
bráðum myndu ekki aðrir en elztu
menn og fornfræðingar kannast
við strækur og þessháttar vesen.
Einhvernveginn er það samt svo,
að þrír aðilar hafa strækað á
stjórnina, venjulega skammstafaðir
F. F. F., sem útleggst: Fiskur, Flug-
menn, Farmenn. Þessir þrír urðu
að minnsta kosti fyrstir til, hvort
sem nokkrir koma á eftir. Fiskinn
mun verða að telja ráðstöfun guðs;
ýmist hefur hann enginn verið eða
gæftaleysi hefur orðið honum til
lífs og útgerðinni til dauða, og
leggja gamlir menn og grandvarir
þetta þannig út, að guð sé íhalds-
guð, sem sé ekkert hrifinn af að
hafa kommana í stjórn, svoleiðis
bölvaða heiðingja, sem tilbiðja
Stalín, að minnsta kosti alla þá
daga, sem þeim sé leyft það, og þó
hafi þeir verið verstir upp á síð-
kastið, þegar þeir tilbiðja hann
annan daginn og vita ekki hvað
þeir eigi að tilbiðja hinn daginn.
Sem sagt vont, og ekki von á
betra fiskiríi, meðan svo til geng-
ur.
Hvað snertir flugmennina og far-
mennina, væri vitanlega einfald-
ast að hækka við þá kaupið og
lækka krónuna um leið, en það
virðist ekki mundi duga, hvað flug-
mennina snertir, því að þeir vilja
vera á norskum taxta og sýnir
þetta skyldugt vinarþel til frænd-
þjóðanna. Ennfremur munu þeir
hafa komið sér upp sérstakri geng-
„Gestapó“-a5ferðir á leiðinni?
Bannar stjórnin utanferðir
nema með sérstöku leyfi ?
Sú frétl gengur nú staflaust í bænum, að Gylfi i». Gisla-
son iiafi lagt fram þá tillögu í ríkisstjórninni, að setja það
fólk undir rannsókn, sem fór til útlanda á síðasta ári. Sagt
er, að hann hafi fengið tillöguna samþykkta með fulltingi
kommúnista