Spegillinn - 01.02.1957, Síða 16

Spegillinn - 01.02.1957, Síða 16
40 SPEGILLINN höfðu listfræðinámskeiðin hans Lúðvígs eftir Johansonskerfinu gef- ið prýðilega raun, þótt aldrei væri það fullþakkað, fremur en önnur menningarviðleitni, meðan skiln- ingurinn var af skornum skamti. — Heyrðu Kibbi, sagði drengur- inn og hnippti í mig. — Þú ert svo agalega daufur í dálkinn núna. Ertu kannske að hugsa um gamla daga og vandamálin, sem þið vor- uð alltaf að streða við ? Eigum við að líta hérna inn í aðalbæki- stöðvar Listamannaklúbbsins, ég held að rithöfundarnir séu fjöl- mennir þar núna og ég hef kort af því að ég ætla að verða lista- maður. Voru nú rithöfundarnir ekki ósköp framlágir þegar þú varst ungur, eins og raunar allir aðrir, sem kölluðu sig listamenn í þá daga? — Þú tekur munninn nokkuð fullann, drengur minn. En þú ættir ekki að vera of rogginn yfir allri menningunni, sem mest er að þakka óeigingjörnu starfi okkar, sem nú erum orðin gömul. Víst áttum við glæsilega rithöfunda, eins og sjá má í skjölum lista- mannalaunaskiptanefndarinnar, og einu sinni höfðu þeir félag, sem klofnaði í tvennt. En svo þegar þeir þurftu að mæta á samnorrænu þingi urðu bæði félögin að senda fulltrúa, en það þótti frændum vor- um kynlegt fyrirbrigði, að Islend- ingar komu tvöfaldir til þings. Stofnuðu bæði félögin þá samband og sambandsstjórn, svo að rithöf- undarnir gætu mætt einfaldir á komandi þingum og mynduðu þannig þá einingu út á við, sem enn er styrkur þeirra. Aftur á móti fóru myndlistarmenn í svo marga mola, að ekki komst samband á aftur. En einu sinni var barón hér og átti fjós á þessum slóðum og stígurinn þangað var kallaður Bar- ónsstígur og þangað erum við nú komnir. — Oj bara, að hafa fjós í borg- inni, sagði drengurinn. — Er þetta með menninguna í ungdæmi þínu annars ekki tómt karlagrobb? — Fjósið er löngu horfið, en líttu á hvað komið er í staðinn. — Gútemplarahöllin, sagði dreng- urinn. og svo horfðum við um stund frá okkur numdir á þessa stórglæsilegu byggingu. Gamlir menn eru alltaf að grúska í fortíð- inni og nú mundi ég eftir mynd í blaði fyrir langalöngu af hallar- teikningu eftir Freymóð. En hér stóð veruleikinn sjálfur úr steini, stáli, gleri, kopar og plasti. Það er gaman að lifa slíkar stundir. — Segðu mér eitt, Kibbi, sagði drengurinn og rauf þögula hugleið- ingu okkar með forvitni sinni. — Var ekki eitthvað bogið við virð- inguna og áhugann fyrir leiklist- inni hjá ykkur, eins og ýmsu öðru, úr því að Leikfélagið var sett eins og bílskúr eða útikamar þarna á bak við höllina? — Það var nú eitthvað annað, sagði ég, sem alltaf vil koma auga á jákvæðu hliðina á hverju menn- ingarmáli. — Áhuginn var ódrep- andi. Sá möguleiki er að vísu til, að gleymst hafði að lóðin var gefin öðru menningarfyrirtæki við há- tíðlegt tækifæri, en hitt er þó senni- legra og í betra samræmi við heil- brigða hugsun, að skki hafi Leik- félaginu þótt meiri sómi sýndur á sextugsafmælinu með öðru, en að staðsetja það í skjóli þeirrar hallar er SKT ætti heima í, en það var þá þegar viðurkennt sem snar þáttur í menningarlífi borgarinnar. Drengurinn sagði ekki neitt. Svo löbbuðum við aftur niður í Hitt blöskraði mér aftu'r á móti hvernig maðurinn var til fara. Hann var í brúnum buxum, mér Ongur og fremur snotur) og sem sýnilega voru frá því mað- Þar sem hann sat á stólnum og urinn var um fermingu, þvi að teygði frá sér fæturna, sá ég síð- þær voru að springa utan af hon- ar nærbuxur slanda niður undan um, svo að rennilásinn blasti við báðum skálum buxna haHs, utan mér á nýmynduðum kúluvamba yí'r sokkunum. Maðurinn var ó- V mannsins (því maðurinn sýndist rakaður, illa greiddur og yfirleitt

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.