Spegillinn - 01.02.1957, Side 22
46
SPEGILLINN
Hann gæti ekki einusinni farið inn í krá
og fengið sér einn lítinn. Áður en mínúta
væri liðin, væri kvennagerið komið í kring-
um hann og reyndi að slíta af honum rauðu
hnappana, til þess að eiga til minja.
Og nú fékk Smith sína miklu liugdettu.
Hann setti upp yfirskeggið og gleraugun
og labbaði að leiksviðsdyrunum þar sem
Goggi átti að koma fram þetta kvöld. Auð-
vitað varð hann að ryðja frá sér fimm þús-
und kvenpersónum, til þess að komast leið-
ar sinnar.
Loks hitti hann Gogga í búningsherbergi
hans, og Goggi var forvitinn að vita erindi
hans.
— Ég kem til þess að útvega þér ein-
hvern stundarfrið og forða þér frá því, að
kvenfólkið rífi þig á hol.
— Það er vonlaust verk, sagði Goggi. —
Um leið og ég sýni á mér andlitið ....
— Þar komum við einmitt að kjarna
málsins, sagði Smith. — Ég ætla að lána
þér mitt andlit til að sýna í staðinn.
— Hvað áttu við?
Smith tók af sér falska yfirskeggið og
gleraugun.
— Almáttugur minn! æpti Goggi. -—
Þetta er eins og að líta í spegil. Við erum
bara alveg eins!
— Það er nú aðalatriðið, svaraði Smitli.
—- Nú geturðu loksins haft einhverja von.
Ég skal koma í leikhúsið og kvenfólkið
ræðst á mig. Þú kemur seinna, eins og ekk-
ert sé um að vera, og sleppur leiðar þinn-
ar. Svo fer ég á undan út úr leikhúsinu
aftur og sagan endurtekur sig, og kven-
fólkið verður farið á eftir mér þegar þú
kemur út, og þú getur komizt heim til þín
í ró og næði.
— Já, þetta er svei mér athugandi, sagði
Goggi.
— Fimmliundruðkall á viku, sagði Smith.
— Allt í lagi. Það er vel borgandi. Og
við byrjum fetrax?
— Auðvitað, svaraði Smitli.
Þegar sýningunni var lokið, fór Smith í
föt Gogga. Hundruð kvenpersóna hengdu
sig utan um hann, klórandi og öskrandi og
reynandi að kyssa hann. Hann komst með
naumindum í bílinn, og þegar þangað kom,
var hann alveg uppgefinn.
— Mér þætti gaman að vita, hvað hún
segir núna. Hann var að hugsa um konuna
sína blessaða. — Henni hefur aldrei þótt
mikið varið í andlitið á mér, en þegar liún
heyrir um kaupið, sem það hefur á ári,
vona ég, að verði upplit á lienni.
Þegar Smith kom heim til þess að segja
tíðindin, var konan ekki heima. Hinsvegar
lá blað á píanóinu, sem á var letrað: „Elsk-
an! Maturinn þinn er í bakaraofninum.
Ég er búin að bíða og bíða. Ég hélt við
ætluðum að fara í leikhúsið, til þess að sjá
hvort þessi Goggi er eins líkur þér og við
höldum. En svo komst þú ekki, og ég varð
að fara ein.
Smith gat ekki stillt sig um að hlæja.
Hann át mat sinn og æfði með sjálfum sér
það, sem hann ætlaði að segja við hana.
Hún kom lieim hálftíma seinna.
— Svo þú ert þá komitin, sagði hún. —
Þú lézt mig samt fara eina í leikliúsið.
— Segðu mér, sagði Smith. — Er ég
líkur honum?
—- Já, í andlitinu, en ....
— Hlustaðu nú á mig, sagði Smith.
En konan var farin út og hann var að
tala við sjálfan sig. Hann reis upp til að
elta hana, en velti þá liandtöskunni hennar
af litla borðinu, þar sem liún hafði lagt
hana. Og allt það safn, sem út úr henni
valt!
Þar á meðal rauður linappur.
Árum saman vissi ég aldrei, hvar rnaður-
inn minn var á kvöldin, og svo eitt kvöldið
kom ég snemma heim, og þá var hann þar.
—o—
— Elskan, sagði nýgifta Hollívúddbrúð-
in, — en livað íbúðin okkar er yndisleg.
Mér finnst ég bara hálfkannast við liana
.... Við höfum þó víst ekki verið gift
áður?
—o—
— Hversvegna gafstu fatageymslustúlk-
unni svona mikð?
— Sérðu ekki hattinn og frakkann, sem
ég fékk hjá henni?
-—o—
— Ég hef aldrei liaft þá ánægju að sjá
konuna^yðar.
— Hver segir, að það sé ánægja?
—o—
— Nonni sagði við mig, að ég væri átt-
unda undur veraldar.
— Og hvað sagðir þú?
— Ég sagði, að hann skyldi vara sig á
að láta mig sjá sig með hinum sjö.
Ritstjóri: Páll Skúlason — Teiknari: Halldór
Pétursson — Ritstjórn og afgreiðsla: Smára-
götu 14, Reykjavík — Sími 2702 — Árgangur-
inn er 12 blöS; um 220 bls., efni — Áskriftai-
verS kr. 85.00 — erlendis kr. 95.00; greiðist
fyrirfram — Áritun SPEGILLINN, Pósthólf
594, Reykjavík — BlaSið er prentað I Isafoldar-
prentsmiðju h.f.
onrrrTvrvinx 1 birgðarstöð vorri er jafnan fyrirlyggjandi: Smíðajárn í plötum og stöngum Stálbjálkar — Steypustyrktarjárn
SMURNINGSOLÍUR á allar vélar til sjós og lands Pípur, svartar og galvaniseraðar og margar aðrar vörur fyrir járn- og byggingarvöruiðnaðinn
OLÍUSALAN H.F. mhh
Hafnarstræti 10—12 — Reykjavík MiiiK