Spegillinn - 01.05.1965, Side 11

Spegillinn - 01.05.1965, Side 11
FARALDUR skreppur i Þjóðleikhúsið Það var hérna í vetur, að mig minnir seint í janúar, að ég sat á Skálanum klukkan rúmlega eitt og var búinn að lepja julienne-súpu, þar sem sá í botn á þrítugu, og ketglás plús spælt egg. Nú var ég að sötra úr seinni bollanum og stanga glásina úr tönnunum. Þá kom þerna hlaupandi og sagði flaumósa: »,Faraldur, Faraldur, það er síminn til þín, svei mér ef ég held ekki, að það sé sjálft Stjórnarráðið!“ „Hana-nú,“ tautaði ég, „aldrei er frið- ur» alltaf verið að blessa!" og siíaðist 1 apparatið. > >,Gúmorin, Faraldur hér,“ sagði ég munnalega í tólið. »»Góðan dag,“ sagði símakvendið hlutlaust, „Dómsmálaráðherrann óskar að tala við yður.“ fnnan stundar heyrðist óþýð rödd ráðherrans í tólinu: „Sælinú, Faraldur." »,Sæll og blessaður, þín hágöfgi," sagði ég kumpánlega, en við Jóhann er- um dús síðan við vorum saman á mælskunámskeiðum í Heimdalli í gamla daga. Munurinn varð bara sá, að hann .Varð mælskumaður, en ég ekki, og hann nú ráðherra, en ég senditík hans. >»Þú átt að fara sendiferð fyrir mig í kvöld, Faraldur". »Á ég að taka tannburstann með? Er það kannski Washington, Nýja Dehli eða Suður-Viet .?“ ..Ekkert af þeim stöðum. Þú átt að fara í Þjóðleikhúsið fyrir mig.“ » Æ, farðu nú gráskjóttur. Ég sem aldrei fer í 'sikhús, ég horfi aldrei á soleiðis, nema helzt verstu glæponana í bíóunum ... Má ég ekki heldur skreppa tii Suður-Vietnam?" >,Þú gerir eins og ég segi,“ sagði ráð- errann og byrsti sig. „Svo er mál með vexti, að ég hef frétt, að hann Guðlaug- Ur sé að láta setja upp eitthvert fratleik- rit, sem er fullt af klámi og óþverra, og það er frumsýning ’ öld. Heitir víst „Kvur er hræddur við Virginíu Volf“, hvern fjandann sem það nú a.mars þýð- r. Nú er ég bæði dóms- og kirkjumálaráð herra, og á að passa upp á siðferðið og kristindóminn í þessu landi, og ég vil ekkert klám og svínarí hafa í mínu landi, og allra sízt í ríkisstofnun. For- stáet?“ „En heyrir nú Þjóðleikhúsið ekki fremur undir hann Gylfa?“ vogaði ég mér að spyrja. „Kemur ekki mál við mig,“ sagði ráð- herrann og espaði sig. „Má vera, að stofnunin sem slík heyri formlega undir hann, en allt siðgæði og kristindómur heyrir þó undir mig, for helvíti.“ „Rétt segir þú, hinn frómi,“ svaraði ég auðmjúkur, „en akkurju ferðu ekki bara sjálfur? Þetta er jú fín frumsýn- ing, forsetinn er vís með að líta inn.“ „Éld þú sért ekki alminnilegur, mann- blaðra! Heldurðu að einn kirkjumálaráð- herra geti farið að látr sjá sig á klám- leikriti. („Hv-~ svo sem hann kynni að langa til þess,“ tautaði hann við sjálf- an sig). Þú leggur þér allt það hneyksl- anlega á minnið og gefur mér skýrslu á morgun. „Á ég að koma snemma í fyrramálið?“ „Nei, ég hugsa, að ég komi heldur seinna í ráðuneytið í fyrramálið. Ég þarf nefnilega að fara í partí hjá rússneska sendiherranum í kvöld. Það er út af sovét-sendinefndinni. Og það er siður hjá Rússanum að stinga út úr vodka- glasinu í einum grænum þegar skálað er fyr»V einhverjum foringjanum." „Er skálað fyrir Stalín ennþá?“ „Uss, nei, nei, þeir nefna ekki snöru í hengds manns húsi.“ „En Lenin og byltingin? Skálarðu með góðri samvizku fyrir þeim?“ „Nei, þá geri ég nefnilega bragð úr ellefta boðorðinu, einmitt vegna minnar eigin samvizku. Ég vel mér stað þannig, að ég sný baki að stórum blómsturpotti. Svo þegar á að skála fyrir einhverju, sem mér er ógeðfellt, þá helli ég vodk- anu úr glasinu aftur fyrir mig í pottinn og get svo sýnt glasið tómt við næsta umgang. Og svo er þá samvizkan í lagi. En ekki stoðar þessi andskoti — ég þarf að velja tvo góða sjálfstæðismenn í sýslumannsembætti - þurfa að hafa verið í Vöku, Heimdalli og Verði... og skipa eitthvert prestadót, sem söfnuð- irnir hafa fíflast til að kjósa. Ég er bara orðinn í vandræðum með hann Sigurbjörn, hann er farinn að verða svo helvíti frekur og heldur, að hann sé settur yfir kirkjumálaráðherrann sjálfan, bara af því að hann sé biskup .. Jæja, Faraldur minn, þú skipar honum Guðlaugi frá mér að láta þig fá orðalaust fríbílæti á fri nsýninguna í kvöld.“ „Skal gert, exellence,“ sagði ég og gekk aftur á bak fruktandi út um dyrn- ar. Seinni partur dagsins fór allur I und- irbúning að frumsýningarferðinni, sem ég kveið mjög fyrir. Fyrst labbaði ég mig inn í skrifstofu Þjóðleikhússins og staðnæmdist fyrir framan Valgerði, sem var með nefið niðri í bókhaldi sínu. „Góðan daginn, ætli ég geti fengið að tala við Þjóðleikhússtjóra?“ „Upptekinn,“ svaraði Valgerður stutt og laggott og leit ekki upp úr plöggun- um. „Dómsmálaráðherrann sendi mig nebblilega til hans.“ • Við þessar úpplýsingar leit Valgerð- ur svo snöggt- upp að gleraugun hröpuðu fram af nefinu á henni, en það gerði ekkert til, því að þau voru fest aftur fyrir eyru með flauélsböndum. ' „Nú, ert það þú, Faraldur,” sagði Val- gerður kumpánlega, við vorum einu sinni saman í barnaskóla. j,Jú, þú hlýtur að komast að eftir örstutta stund.“ Og það var eins og við manninn mælt, dyrnar opnuðust og út kom þjótandi ungskáld, sem ég þekkti úr Mokkakaffi. Hann skellti á eftir sér hurðinni, kast- aði handritabunka á gólfið og traðkaði á honum, bölvandi ákaflega: „Helvítis fífl og fantur er maðurinn, hann hefur Spegillinn 11

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.